Morgunblaðið - 04.01.2018, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2018
Kona tekur mynd af öldu skella á varnargarði í New
Brighton á Norðvestur-Englandi þegar stormurinn
Eleanor gekk þar yfir í gær. Stormurinn raskaði flug-
umferð og lestasamgöngum í Frakklandi, Belgíu og
Hollandi eftir að hafa farið yfir England og Írland.
T.a.m. þurfti að fresta um 60% brottfara á Charles de
Gaulle-flugvelli í París. 220.000 heimili í Frakklandi og
27.000 á Írlandi voru án rafmagns vegna óveðursins.
Stomurinn Eleanor olli usla í Evrópulöndum
AFP
Raskaði flug- og lestasamgöngum
Norðurfloti rússneska sjóhersins
hyggst auka verulega umfang eftir-
litsflugs véla sinna yfir hafsvæðum
á norðurslóðum í ár, að því er fram
kemur á fréttavef Arctic Now. Nýir
flugvellir og miklar endurbætur á
eldri völlum á síðustu árum gera
Norðurflotanum kleift að halda
uppi reglulegu eftirlitsflugi á
stærri svæðum en áður.
Fram kemur í fréttatilkynningu
frá Norðurflotanum að herflug-
vélar af gerðunum Tu-142 og Il-38
fóru í meira en 70 eftirlitsferðir yf-
ir hafsvæði á norðurslóðum á ný-
liðnu ári. Ráðgert sé að halda þessu
flugi áfram og auka umfang þess
verulega, m.a. með því að nota
endurbættan flugvöll á Nýju-
Síberíueyjum. Á meðal annarra
valla sem hafa verið endurbættir er
Severomorsk-1, aðalflugvöllur
Norðurflotans. Hann hefur verið
endurbættur svo rækilega að líta
má á hann sem alveg nýjan flugvöll.
Nýr flugvöllur á Franz Jósefs landi
verður tekinn í notkun fyrir her-
flugvélar af gerðinni MiG-31 og
Su-34. Að sögn sjóhersins er mark-
miðið með auknu eftirlitsflugi m.a.
að auka öryggi skipa á siglingaleið-
inni norðan við Rússland.
Rússar auka
eftirlitsflug á
norðurslóðum
30% afsláttur af
rafdrifnum skrifborðum
Bæjarlind 8-10
201 Kópavogur
sími 510 7300
www.ag.is
ag@ag.is
Verð frá 68.947 kr.
Hæðarstillanleg rafdrifin borð stuðla að betri
líkamsstöðu og bættri líðan í vinnunni.
STOFNAÐ 1956
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
SKODAOCTAVIA TDI COMBI
nýskr. 02/2017, ekinn 49 Þ.km, 2,0L dísel,
sjálfskiptur.Verð 3.680.000 kr.
Raðnúmer 257239
HYUNDAI SANTA FE PREMIUM2.2 TDI
09/2017, nýr og óekinn bíll, dísel (200 hö),
sjálfskiptur, leður, glerþak o.fl.
Verð 7.650.000 kr. Raðnúmer 230680
Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is
AUDI A6 2,0 TDI
nýskr. 03/2013, ekinn 103 Þ.km, dísel, sjálfskiptur,
S-line sæti, 19“ álfelgur o.fl.Verð 4.440.000 kr.
Raðnúmer 256375
M.BENZ C 220D AVANTGARDE
Árg. 2016, ekinn aðeins 8 Þ.km, dísel, sjálfskiptur,
mjög vel búinn! Verð 5.690.000 kr.
Raðnúmer 255217
LAND ROVER DISCOVERY 3 S G4
nýskr.10/2007, ekinn 163 Þ.km, dísel,
sjálfskiptur, 7manna, leður. Toppeintak!
Verð 2.990.000 kr. Raðnúmer 257247
Yfirmaður Byltingarvarðarins, úr-
valssveita klerkastjórnarinnar í Ír-
an, sagði í gær að liðsmönnum hans
hefði tekist að binda enda á götumót-
mælin sem hófust í landinu á
fimmtudaginn var. Hann tilkynnti
þetta þegar tugir þúsunda manna
tóku þátt í göngum víða um landið til
stuðnings klerkastjórninni.
Yfirmaður Byltingarvarðarins
sagði að um 15.000 manns hefðu tek-
ið þátt í mótmælum í þremur hér-
uðum og allt að 1.500 í þeim fjöl-
mennustu. Margir þeirra hefðu verið
handteknir. Hann lýsti þeim sem
gagnbyltingarsinnum og sagði að
meðal mótmælendanna væru menn
sem vildu að stofnað yrði nýtt kon-
ungsríki í Íran. Hermt er að 21 mað-
ur hafi látið lífið í mótmælunum.
AFP
Klerkum hampað Stuðningsmenn klerkastjórnarinnar halda á myndum af
Ali Khamenei erkiklerki og forvera hans, Ruhollah Khomeini, í borginni Qom.
Segjast hafa bundið
enda á mótmælin