Morgunblaðið - 04.01.2018, Síða 13

Morgunblaðið - 04.01.2018, Síða 13
Morgunblaðið/Hari hennar, en þau byggjast á því að Rakel hefur flokkað orðin. „Fullorðnu nemendurnir sem ég kenni eru oft mjög uppteknir af íslensku málfræðinni, sem þeir eiga erfitt með að skilja og tileinka sér, en myndorðaspjöldin mín eru ein- mitt tæki sem allir sem læra ís- lensku sem annað mál geta nýtt sér. Ég hef prófað þetta á mínum nem- endum og komist að því að þetta virkar vel. Það er hægt að nýta þetta á fjölbreyttan hátt, til dæmis til að byggja upp orðaforða á fyrsta stigi, síðar er hægt að nota þetta inn í einfaldar setningar og svo áfram stig af stigi, til að æfa nútíð og þátíð, sem og öll þau málfræðiatriði sem tengjast sagnorðunum og nafnorð- unum. Ég var búin að prufukeyra sagnirnar meira en nafnorðin og það var frábært að sjá hversu vel þetta virkaði, því hluti af tungu- málanáminu er að búa til sínar eigin setningar. Ef ég væri að læra rúss- nesku eða annað mál gjörólíkt ís- lensku, þá er ekki víst að ég væri með þær sagnir og orð á takteinum sem ég væri búin að læra á fyrsta stigi, hvað þá hvernig ég ætti að beygja orðin. Myndorðaspjöldin henta vel við slíkar aðstæður, ég læt nemendur til dæmis draga spjöld og þá gefst þeim tækifæri til að læra nýjar sagnir,“ segir Rakel og bætir við að nemendur taki stundum myndir á símana sína af spjöldunum og þannig geti þeir æft sig heima. Að tala ekki sama og skrifa Rakel segir að það geti tekið langan tíma að ná tökum á nýju tungumáli þegar ekki er hægt að út- skýra á öðru tungumáli og nemandi er ekki læs á latneskt stafróf og kann ekki heldur að skrifa það. „Það seinkar mjög ferlinu, en það er mjög persónubundið hvað það tekur langan tíma. Ég hef verið að kenna nemendum sem komast á fjórða til fimmta stig á einu til tveimur árum, sem er mjög góður námsárangur. En það er annað að læra að tala nýtt tungumál en að lesa og skrifa. Sumir geta kannski tekið þátt í ein- földum samræðum og gert grein fyrir sjálfum sér á íslensku eftir eitt til tvö námskeið, en hafa samt mjög takmarkaðan orðaforða. Þetta tekur allt sinn tíma.“ Nýtist í grunnskólunum Rakel segir að fólk hafi nefnt það við sig að myndorðaspjöldin gætu einnig nýst öðrum hópum en erlendum nemendum, til dæmis börnum sem glíma við málþroska- raskanir, fullorðnum alzheimer- sjúklingum og einstaklingum sem hafa orðið fyrir málstoli m.a. vegna heilablóðfalls. „Ég veit að til er efni, myndir og annað, sem er verið að nota í iðju- og þroskaþjálfun, svo ég giska á að spjöldin mín gætu líka nýst á þeim vettvangi. Og þó ég nýti þetta efni til kennslu með fullorðnum, þá er ég nú þegar búin að selja nokkra kassa til grunnskóla, því þar eru mörg börn sem læra íslensku sem annað tungumál. Ég sé fyrir mér að þetta námstæki kæmi sér vel þar, því í grunnskólum á Íslandi eru er- lendir nemendur sem hafa ekkert annað tungumál en sitt eigið. Þetta eru ungir krakkar sem eru fljót og opin fyrir lærdómi og svona mynda- spjöld hljóta að flýta töluvert fyrir náminu.“ Ómældar vinnustundir Rakel segist hafa unnið undanfarin tvö ár að þróun og gerð myndorðaspjald- anna en hún fékk styrk til að vinna að verkefninu hjá Fræðslusjóði framhalds- fræðslunnar. „Stór hluti þeirra peninga fór í prentun- ina, en það liggja ómældar vinnustundir að baki þessu hjá mér. Ég prófaði ýmislegt fleira sem ekki var hægt að gefa út í kassanum í þetta sinn, en ef til vill geri ég síðar framhald, það fer eftir viðtökunum.“ Myndorðaspjöldin fást ekki í búðum, en hægt er að panta þau á vefsíðunni islenskunaman.word- press.com og þar er fjallað um myndorðaspjöldin undir val- hnappnum: Námsefni. Myndorðaspjöldin Flokkar íslenskra nafnorða, kvenkyn, karlkyn og hvorugkyn. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2018 Veit á vandaða lausn Verið velkomin í verslun okkar Opið virka daga kl. 8:30–17:00 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is MIKILVÆGUR STUÐNINGUR Bjóðum mikið úrval af vönduðum stuðningshlífum á góðu verði. Kíktu til okkar og við aðstoðum þig við að finna réttu lausnina fyrir þig. ÖKKLAHLÍF MJÓBAKSSPELKUR OLNBOGASPELKA Vinnur á móti bjúgmyndun og bólgu. Þægileg að vera í og gengur í flesta skó. Notast eftir tognun og sem fyrirbyggjandi. Henta við miklum, langvarandi bakverkjum og/eða óstöðugleika í mjóbaki, útbungun á brjóski, brjósklosi eða stenosu. Olnbogaspelka sem vinnur á móti bjúgmyndun. Notast m.a við tognun í olnboga, tennis/golfolnboga eða gigt í olnboga. Nú í samn ingi við Sjúkratry ggingar Íslands Ísbjörn Að sjálfsögðu mætti einn ísbjörn til leiks, í úlpu. Kalt Einhver hrollur var í þessari konu en hún brosti þó og geislaði af hreysti. Svalur Þessi maður skartaði glæsilegri glimmergrímu og ógnarflottum sundbol. Myndorðaspjöldunum er skipt niður í alls níu beygingarflokka nafnorða og sagnorða. Spjöldin eru alls 720; 306 sagnorðaspjöld í þremur beygingarflokkum og 414 nafnorð í sex beygingarflokkum. Þau eru öll saman í einum kassa en beygingarflokkunum haldið aðskildum hverjum í sinni öskju. Aftan á spjöldunum kemur beygingin fram. Aftan á sagna-spjöldunum er aðeins beygingin í nú- tíðinni sýnd. Hugmyndin að spjöldunum er byggð á kennslu- fræðihugmynd sem mætti kalla athafna- nám á íslensku (learn- ing by doing) og svo hinni rótgrónu hugmynd að við lærum best með endurtekningunni. Lærist með endurtekningu ÍSLENSKUNÁMAN GEYMIR MYNDORÐASPJÖLD Kennari Rakel Sigurgeirsdóttir hefur kennt íslensku sem annað tungumál í mörg ár.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.