Morgunblaðið - 09.01.2018, Síða 13

Morgunblaðið - 09.01.2018, Síða 13
„Ég hef komið út og séð fjaðrir úti um allt og sé þá sjálfan morð- staðinn. Þeir eru klókir og kunna sitt fag enda rándýr og í eðli þeirra að veiða. Helst vildi ég að fólk héldi þeim bara inni fyrir enda ekki nátt- úruleg rándýr á þessu svæði,“ segir Sigríður sem hefur allt annað við- horf til ránfugla. „Þeir eru hluti af náttúrunni og eru að veiða sér til matar, ekki skemmtunar eins og heimiliskett- irnir. Hingað í garðinn kemur stundum smyrill en þá sest hann í stóra ösp hérna. Það er mjög áhuga- vert að verða vitni að því. Allir smá- fuglarnir frjósa og verða eins og vaxstyttur og það verður hálfgerð störukeppni milli þeirra og smyrils- ins,“ segir hún en spurð um þessi sérkennilegu viðbrögð telur Sigríð- ur að þarna hafi hreyfing eitthvað með málið að gera. „Ég þori ekki að fullyrða neitt en mig grunar að þetta tengist hreyfingu. Ég hef séð smyrilinn steypa sér hér niður í garðinn og þá eru ofboðsleg læti og mikill hama- gangur. Þetta er hins vegar bara eðlilegur gangur náttúrunnar og við verðum að virða það.“ Að lokum bendir hún á að allir þeir sem vilja gleðja fuglana ættu að skrá sig í fuglavinafélagið en þar er hægt að fá afslátt af æti fyrir fugla og leiðbeiningar. Smáfuglar í körfu Gráþrestir, skógarþrestir og aðrir smáfuglar sækja í góðgæti í körfu undir eldhúsglugganum. Smáfugl Auðnutittlingurinn vegur aðeins um fjórtán grömm. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2018 Auðvelt er að lokka fugla í garðinn með fóðrun allan ársins hring með góðu að- gengi að bað- og drykkjarvatni. Á vefsíðu Fuglaverndar, fuglavernd.is/verkefnin/ gardfuglar/fodrun-gardfugla, eru ýmis ráð um fóðrun fugla: Tittlingar og finkur Snjótittlingar, auðnutittlingar og finkur eru fræætur sem best er að gefa á fóðurpöllum eða hús- þökum. Barrfinkur og auðnutittlingar éta gjarnan úr hangandi fóðurdöllum. Snjótitt- lingar kjósa að eta fræ (sólblómafræ og allskonar finkukorn) af jörðinni eða kurl- aðan maís þó þeir éti líka af fóðurpöllum. Þrestir, starar Skógarþrestir, svart- þrestir og starar eta skordýr og önnur smádýr en ber á haustin. Í vetr- arhörkum leita þeir í æti sem menn bera út í garð og eru sólgnir í feit- meti. Einnig þiggja þeir ávexti, t.d. epli, perur og rúsínur. Brauðmeti helst blandað með matarolíu eða öðru feitmeti er líka vel þegið. Best er að koma kræsingunum fyrir á fóðurpalli eða hengja upp í tré. Epli og perur er best að skera í tvennt og stinga upp á greinarenda 1-2 metra frá jörðu. Hrafnar Sumir gefa hrafninum, sérstaklega þegar snjór er yfir og erf- itt að finna æti. Hrafninn borðar flest sem býðst og er sérstaklega sólg- inn í fitu. Hægt að fá kjötafganga og tólg í betri kjötbúðum fyrir lítið. Erlendir gestir Erlendar fuglategundir, t.d. gráþröstur, söngþröstur, mistilþröstur, silkitoppa, glóbrystingur og hettusöngvari, halda sig stundum vetrarlangt á Íslandi og eru þá oft háðar matargjöfum. Erlendu þrestirnir hafa svipaðar matarvenjur og skógarþrestir og éta feitmeti, ávexti og brauð. Silkitoppur eru sérhæfðar berjaætur og éta einkum ávexti svo sem epli og perur. Glóbrystingar vilja helst fá brauðbita eða kjötsag. Hettusöngvarar éta feitmeti og ávexti. FUGLAVERND.IS Skógarþröstur Munið að gefa smáfuglunum Vilborg Davíðsdóttir, rithöfundur og þjóðfræðingur, verður gestur Bókasafns Seltjarnarness á fyrsta Bókmenntakvöldi ársins 2018 kl. 19.30-20.30 í kvöld, þriðjudagskvöldið 9. janúar. Blóðug jörð er þriðja og síðasta bók Vilborgar í þrí- leik um landnámskonuna Auði djúpúðgu. Bókin er sjálf- stæð saga um flótta Auðar yfir hafið frá Skotlandi til Ís- lands. Hefst sagan árið 883 þegar veldi norrænna manna á Bretlandseyjum riðar til falls og Auður Ketilsdóttir stendur ein uppi, umkringd óvinum. Fyrri bækurnar tvær, Auður og Vígroði, hlutu afar góðar viðtökur lesenda og gagnrýnenda og var sú fyrri tilnefnd til Íslensku bókmenntaverð- launanna. Allir velkomnir. Kaffi og meðlæti. Vilborg Davíðsdóttir Endilega … … mætið á fyrsta bókmenntakvöld ársins Fjölbreytt úrval af gæða viftum frá Vent-Axia fyrir eldhúsið, baðherbergið, skrifstofuna, verkstæðið eða hesthúsið. Við aðstoðum ykkur við rétta valið. Lo-Carbon Silhouette 125 Centrif-duo Silent 12in Wall fan Hi-line Sabre Plate DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS Hreint loft og velíðan Það borgar sig að nota það besta VENT–AXIA VIFTUR HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum Nú fástSnickers vinnuföt í

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.