Morgunblaðið - 09.01.2018, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2018
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
VWGOLF COMFORTLINE 4MOTION
nýskr. 07/2015, ekinn 74 Þ.km, dísel, 6 gíra.
Verð 2.980 þkr. SPRENGIVERÐ 2.490 þkr.
Raðnúmer 257174
MAZDA CX7 GRANDTOURING AWD
Árg. 2007, ekinn 110 Þ.km, bensín, sjálfskiptur.
Verð 1.680 þkr. Sprengiverð 1.350 þkr.
Raðnúmer 256335
Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is
VWTIGUAN SPORT& STYLE
nýskr. 032015, ekinn 62 Þ.km, dísel, sjálfskiptur.
Verð 3.980 þkr. SPRENGIVERÐ 3.490 þkr.
Raðnúmer 256500
HONDA JAZZ ELEGANCE
nýskr. 05/2014, ekinn 42 Þ.km, bensín, sjálfskiptur.
Verð 1.790 þkr. SPRENGIVERÐ1.490 þkr.
Raðnúmer 255735
FORD FOCUS TITANIUM STATION
nýskr. 05/2014, ekinn 43 Þ.km, bensín, sjálfskiptur.
Verð 2.490 þkr. SPRENGIVERÐ 1.990 þkr.
Raðnúmer 256481
3.490 þkr. 2.490 þkr. 1.350 þkr. 1.490 þkr. 1.990 þkr.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Meginmarkmið höfunda er að
móta heilsteypt skipulag vist-
legrar byggðar, fjölbreyttrar
íþróttastarfsemi og almennrar úti-
vistar í sátt við náttúru svæð-
isins.“ Þannig segir m.a. í umsögn
dómnefndar um vinningstillögu í
framkvæmdasamkeppni um
rammaskipulag Vífilsstaðalands í
Garðabæ. Fjór-
ar tillögur bár-
ust í samkeppn-
inni og bar
tillaga Arki-
tektastofunnar
Batterísins,
Landslagsarki-
tektastofunnar
Landslags og
Verkfræðistof-
unnar Eflu sig-
ur úr býtum.
Svæðið sem rammaskipulagið mun
ná til er um 145 hektarar að stærð.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í
Garðabæ, segir að næsta verkefni
sé að vinningshafar móti end-
anlega tillögu að rammaskipulagi í
samvinnu við bæjaryfirvöld í
Garðabæ. Í beinu framhaldi af því
verði farið í að deiliskipuleggja
svæðið. Byrjað verði á að deili-
skipuleggja svæði í Vetrarmýri
undir skóla- og íþróttasvæði og
reyna eigi að hefja framkvæmdir
við fjölnota íþróttahús með yf-
irbyggðum knattspyrnuvelli í ár.
Samkvæmt fjárhagsáætlun Garða-
bæjar fyrir 2018 verður 300 millj-
ónum króna varið til að hefja und-
irbúning við byggingu fjölnota
íþróttahúss í Vetrarmýri.
Uppbygging á næstu árum
Gunnar segir að jafnframt verði
Hnoðraholtið deiliskipulagt sem
íbúðabyggð en vestasti hluti þess
byggðist fyrir 30 árum. „Af
Hnoðraholti er glæsilegt útsýni til
allra átta og þar sjáum við meðal
annars fyrir okkur byggð á góðu
og tiltölulega sléttu landi sem
hentar t.d. fyrir lágreist einbýlis-
hús, parhús og raðhús sem eft-
irspurn er eftir. Vinningstillagan
gerir síðan ráð fyrir því að næst
skóla- og íþróttasvæði verði fjöl-
býli sem skapar möguleika á íbúð-
um fyrir ungar barnafjölskyldur.
Við viljum geta byrjað að út-
hluta lóðum í Hnoðraholti og hefja
framkvæmdir þar sem fyrst, en
svæðið er eitt flottasta bygging-
arland á höfuðborgarsvæðinu. Síð-
an verður svæðið allt, það er holtið
og hlíðin, tekið til uppbyggingar á
næstu árum,“ segir Gunnar.
Á heimasíðu Garðabæjar segir
að uppbygging Vífilsstaðahverfis
sé hafin. „Á næstu árum mun þar
rísa glæsilegt íbúðahverfi sem
hringar sig um golfvöll, skólasvæði
og íþróttasvæði og við jaðar frið-
lýstra svæða og skógræktarsvæða.
Byggðin verður um leið miðsvæðis
á höfuðborgarsvæðinu með góðar
tengingar við meginsamgönguæð-
ar.
Í nýju aðalskipulagi Garðabæjar
er gert ráð fyrir að svæði Vetrar-
mýrar, Hnoðraholts og Vífilsstaða
verði eitt skólasvæði með 1.200-
1.500 íbúðum. Gunnar segir
hugsanlegt að einingarnar verði
heldur fleiri. Samkvæmt áætlunum
verða skólabyggingar á svæðinu
6.650 fermetrar og knatthús 9.000
fermetrar.
Samningur við ríkið forsendan
Vorið 2017 var undirritaður
samningur um kaup Garðabæjar á
jörðinni Vífilsstöðum af ríkissjóði.
Um var að ræða alls 202,4 hektara
sem að hluta til var viðfangsefni
samkeppninnar nú. Gunnar segir
að þessi kaup hafi verið forsenda
þess að hægt hafi verið að skipu-
leggja svæðið með byggingaráform
í huga. Í samningnum voru und-
anskildar allar húseignir ríkisins á
Vífilsstöðum en gerðir verða lóð-
arleigusamningar um eignirnar,
samkvæmt því sem fram kom í
fréttum síðasta vor.
Hann segir að þegar deiliskipu-
lag fyrir skóla- og íþróttasvæði
liggi endanlega fyrir komi í ljós
hvort og þá hversu mikið af að-
stöðu Golfklúbbs Kópavogs og
Garðabæjar fari undir mannvirki.
Þá geti verið að samhliða uppbygg-
ingunni í Vetrarmýri þurfi bæj-
arfélagið að gera golfbrautir í stað
þeirra sem hugsanlega fara undir
skóla og fjölnota íþróttahús. Sam-
kvæmt rammaskipulaginu færist
golfvöllurinn að hluta til suðaust-
urs, í átt að Vífilsstaðavatni og
verða nokkrar brautir nálægt vatn-
inu, eins og sjá má á kortinu.
Breyting á vegakerfi
Í umsögn um vinningstillöguna
segir að heildarvegakerfi sé nokk-
uð vel leyst út frá hæðarlegu og
umferðarskipulagi. Vífils-
staðavegur er framlengdur upp
fyrir golfvöllinn í hlíðum Smala-
holts að Leirdalsopi sem aðalteng-
ing í gegnum svæðið og Elliða-
vatnsvegur er færður ofar og fjær
vatninu, í skarðið milli Smalaholts
og Skyggnisholts.
„Útfærslur þessara vegtenginga
verða eitt mikilvægasta atriði sem
við þurfum að horfa til við mótun
endanlegs rammaskipulags og
aðalskipulagsbreytinga í kjölfar
þess. Þar þarf að horfa til ýmissa
þátta enda tóku þátttakendur í
samkeppninni á ólíkan hátt á þessu
úrlausnarefni,“ segir Gunnar.
Í Smalaholti, austan við það
svæði sem sýnt er á kortinu, er í
aðalskipulagi gert ráð fyrir að
verði kirkjugarður. „Staðsetning
kapellu sem sjónrænt kennileiti
fremst á Vífilstaðahálsi er vel leyst
í samhengi við kirkjugarð í Rjúpna-
dal. Umfang kirkjugarðs þyrfti þó
að skoða betur,“ segir í umsögn-
inni.
Verðlaun í samkeppninni voru
afhent skömmu fyrir jól, en um leið
var opnuð sýning á innsendum til-
lögum í íþróttamiðstöðinni Ásgarði,
sem stendur til loka febrúar. Auk
þess eru tillögurnar til sýnis í and-
dyri Golfskála GKG við Vífils-
staðaveg.
Um 1.500 íbúðir í Vífilsstaðahverfi
Byrjað á skóla- og íþróttasvæði í Vetrarmýri Viljum geta byrjað að úthluta lóðum í Hnoðraholti
og hefja framkvæmdir sem fyrst, segir bæjarstjórinn Hluti golfvallar færður nær Vífilsstaðavatni
Gunnar
Einarsson
Nýtt íbúðahverfi í Garðabæ
Hnoðraholt
Vífilsstaðavegur
Ví
fil
ss
ta
ða
ve
gu
r
Elliðavatnsvegur
Smalaholt
Vatnsmýri
Vífilsstaðavöllur
Arnarnesvegur
KÓPA
VOG
UR
Salahver f i
Hæðir
Gi l
Búði r
Lundir
G
A
R
Ð
A
B
Æ
R R
ey
kj
an
es
b
ra
u
t
R
e
y
k
ja
n
e
sb
ra
u
t
Vetrarmýri
Vífilsstaðir
Vífilsstaðavatn
Samkeppnin um rammaskipu-
lagið var haldin í samvinnu
Garðabæjar og Arkitektafélags
Íslands og var Sigurður Guð-
mundsson, formaður skipu-
lagsnefndar Garðabæjar, for-
maður dómnefndar. Í niður-
stöðukafla í umsögn
nefndarinnar um vinnings-
tillöguna segir:
„Tillagan er vel framsett og
leysir vel þau viðfangsefni sem
lögð voru fyrir í keppnislýsingu
og í henni næst að mynda
áhugavert miðsvæði með góð-
ar tengingar við nærliggjandi
hverfi. Gönguásinn frá Vífils-
stöðum að Hnoðraholti um
miðkjarna er tvímælalaust
sterkasti hluti tillögunnar. Ás-
inn, ásamt öðrum þverásum,
tengir gangandi og hjólandi
umferð á skilvirkan hátt við
alla hverfishluta að miðju
kjarnans.“
Í umsögninni segir að sögu-
legu hlutverki Vífilsstaða séu
gerð góð skil. Byggðin austan
við Vífilsstaði nái góðum
tengslum við náttúruna og
vatnið.
„Helsti veikleiki tillögunnar
er gatnakerfið á Hnoðraholti
og einnig mætti nýta háholtið
betur án þess að ganga mikið
á opna rýmið og jafnvel skoða
fjölbýli næst Arnarnesvegi.
Einnig er ljóst að vinna þarf
meira með útfærslu golfvallar
og íþróttasvæðis. Þær breyt-
ingar sem dómnefnd telur að
þurfi að gera á tillögunni eru
allar framkvæmanlegar án
þess að umbylta þurfi meg-
inhugmynd hennar,“ segir í
umsögninni.
Áhugavert
miðsvæði
TENGSL VIÐ NÁTTÚRUNA
OG VÍFILSSTAÐAVATN