Morgunblaðið - 09.01.2018, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2018
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Leikfimi með Maríu kl. 9. Smíðar, útskurður, pappamódel
með leiðbeinanda kl. 9-16. Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl.
12.30. Handavinna með leiðbeinanda kl. 12.30-16. Kóræfing. MS
fræðslu- og félagsstarf kl. 14-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl.
11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Sími 535 2700.
Áskirkja Spilum félagsvist í Dal, neðri sal kirkjunnar og byrjum kl 20.
Allir velkomnir. Safnaðarfélag Áskirkju við Vesturbrún.
Boðinn Botsía kl. 10.30. Brids og kanasta kl. 13.
Bústaðakirkja Félagsstarfið á sínum stað miðvikudaginn kl. 13. Spil,
handavinna, framhaldssaga og kaffið góða. Hugleiðing og bæn frá
sóknarpresti. Hólmfríður djákni sér um stundina. Allir velkomnir.
Dalbraut 18-20 Félagsvist kl. 14.
Fella- og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12, súpa og brauð á vægu
verði eftir stundina. Fyrsta samvera á nýju ári. Spjöllum saman um
jólabækurna og eigum góða samveru. Spilum, prjónum, púslum og
föndrum. Verið hjartanlega velkomin
Garðabær Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl.
9.30-16. Hægt að panta hádegismat með dags fyrirvara í síma
617 1503. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 14-15.45. Vatns-
leikfimi, Sjálandi, kl. 8.20/15.15. Qi gong, Sjálandi, kl. 9. Gönguhópur
fer frá Jónshúsi kl. 10. Botsía Sjálandi kl. 11.50. Karlaleikfimi Sjálandi
kl. 13. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14.45. Línudans í Kirkjuhvoli kl.
13.30 / 14.30.
Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Keramikmálun kl. 9-12.
Glervinnustofa með leiðbeinanda kl 13-16. Leikfimi Maríu kl. 10-10.45.
Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.30. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 10 stólaleikfimi, kl. 13 handavinna, kl.
13 hreyfi- og jafnvægisæfingar, kl. 13.30 alkort, kl. 14 hreyfi- og jafn-
vægisæfingar, kl. 16 dans.
Grafarvogskirkja Opið hús fyrir eldri borgara í kirkjunni kl. 13-15.30.
Í upphafi er söngstund í kirkjunni með Hilmari Erni og gestur dagsins
er sr. Guðrún Karls Helgudóttir. Þá er í boði handavinna, spil og spjall
fyrir þau sem vilja. Samverunni lýkur með kaffiveitingum kl. 15.
Grensáskirkja Kyrrðarstund kl. 12.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Hjúkrunarfræðingur kl. 9.30-10.30. Hádegismatur kl. 11.30. Bónusbíll-
inn kl. 12.15. Gönguhópur kl. 13, þegar veður leyfir. Félagsvist kl.
13.15. Kaffi kl. 14.15.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl.
9.45, jóga kl. 9 hjá Ragnheiði, hádegismatur kl. 11.30. Helgistund kl.
14, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið kl.
8.50, thai chi kl. 9, myndlistarnámskeið hjá Margréti Zophoníasdóttur
kl. 9, leikfimin með Guðnýju kl. 10, Bónusbíll kl. 12.40, postulínsmálun
kl. 13, brids kl. 13, bókabíll kl. 14.30, síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir vel-
komnir óháð aldri. Nánari í síma 411 2790.
Korpúlfar Sundleikfimi kl. 7.30 og 14.10 í Grafarvogssundlaug. Helgi-
stund kl. 10.30 í Borgum. Botsía kl. 10 og 16 í Borgum. Heimanáms-
kennsla kl. 16.30 í Borgum.
Neskirkja Krossgötur kl. 13, Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglu-
stjóri á Höfuðborgarsvæðinu kemur í heimsókn. Kaffi og kruðerí.
Selið, Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr kl. 10 er
boðið upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin.
Hádegisverður er kl. 11.30-12.30 og kaffi og meðlæti er selt á vægu
verði kl. 14.30-15.30. Allir eru hjartanlega velkomnir í Selið. Nánari
upplýsingar hjá Maríu Helenu í síma 568 2586.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.15. Kaffispjall í krókn-
um kl. 10.30. Pútt í Risinu Eiðistorgi kl. 10.30. Helgistund á Skólabraut
kl. 13.30. Kvennaleikfimi í Hreyfilandi kl. 12. Kaflakaffi í safaðarheimili
kirkjunnar kl. 14.
Félagslíf
EDDA 6018010919 III
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Rúmteppastandur
Mjög flottur rúmteppastandur á
svaka góðu verði, aðeins kr. 3.500-,
Upplýsingar í síma 698-2598.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Bátar
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
Dreifingardeild Morgunblaðsins leitar að
dugmiklu fólki 13 ára og eldra, til að bera
út blöð.
Blaðburður fer fram mánudaga til laugardaga og
þarf að vera lokið fyrir kl. 7 á morgnana.
Allar nánari upplýsingar í síma 569 1440 eða
dreifing@mbl.is
Hafðu samband í dag
og byrjaðu launaða líkamsrækt strax á morgun.
www.mbl.is/laushverfi
Vantar þig aukapening?
mbl.is
alltaf - allstaðar
✝ GuðmundurGuðmundsson
fæddist í Reykjavík
30. júlí 1967. Hann
lést á líknardeild
Landspítalans í
Kópavogi 28. des-
ember 2017.
Foreldrar hans
voru Guðmundur
Jörgensson, f. 1919,
d. 2009, og Thea
Davidsen (Dórót-
hea Marteinsdóttir), f. 1926, d.
2001. Systkini hans eru: 1) Jó-
hanna, f. 1961. Dóttir hennar er
Snæfríður, f. 1992, unnusti er
Þorsteinn Ingi Arnarson, f.
1989. 2) Anna Jórunn, f. 1963,
maki Stefán Unnarsson. Dætur
þeirra eru: Thea Björk, f. 1992,
unnusti Gísli Rúnar Bergsson, f.
1993, þeirra sonur er Högni
Rúnar Gíslason, f. 2016. María
Karítas, f. 1996. 3) Vigdís, f.
1970, maki Júlíus Ólafsson. Dæt-
ur þeirra eru Jóhanna, f. 2005,
og Matthea, f. 2006. Fyrir átti
Júlíus soninn Ólaf, f. 1993.
Guðmundur var í sambúð með
Sigríði Bergmann
Gunnarsdóttur, f.
1970, en þau slitu
samvistum. Synir
þeirra eru tvíbur-
arnir Gunnar og
Brynjar Bergmann,
f. 1988, Vilhjálmur
Bergmann, f. 1990,
og Friðrik Berg-
mann, f. 1992.
Síðustu árin var
Guðmundur í sam-
bandi með Söru Haraldsdóttur,
f. 1971. Hennar börn eru Marg-
rjet Davíðsdóttir, f. 1996, Álfrún
Freyja Geirdal, f. 2000, og Óðinn
Örn Geirdal, f. 2006.
Guðmundur ólst upp á Vita-
stíg 17 í Reykjavík og lauk
grunnskólaprófi frá Austurbæj-
arskóla. Að loknum grunnskóla
hóf hann störf sem bifreið-
arstjóri, sem varð ævistarf hans,
fyrst hjá Ölgerð Egils Skalla-
grímssonar og síðar hjá Vífilfelli
þar til yfir lauk.
Útför Guðmundar fer fram
frá Hallgrímskirkju í dag, 9. jan-
úar 2018, klukkan 13.
Faðir okkar var fábrotinn mað-
ur, hann elskaði Kiss, Leicester,
Argentínu og hvítar Hondur með
topplúgu og leðri og á hverjum
degi fékk maður að vita að þessir
hlutir væru bestir. Hann bar
þennan boðskap víða út, þó hann
hafi verið óhaggandi í þrjóskunni
fannst okkur hann einstaklega
skemmtilegur enda eyddum við
miklum tíma saman í og utan
vinnu. Við deildum mörgum af
áhugamálum hans, svo sem að
hylla Kiss, það fóru ófáar stund-
irnar í það.
Takk fyrir allt, elsku pabbi
okkar, við munum halda áfram að
bera út hinn heilaga boðskap.
Gunnar og Brynjar.
Mágur minn Gummi fékk
vondar fréttir í júní 2016, verkur
sem var að angra þennan sterka
mann reyndist illvígt krabba-
mein. Með bjartsýni og von tókst
hann á við sjúkdóminn og í þeirri
baráttu var stuðningur sona hans,
kærustu, systra og fjölskyldu
honum ómetanlegur. Margar orr-
ustur voru háðar en því miður
töpuðust þær allar og í lok síðasta
árs kvaddi Gummi þessa jarðvist.
Fyrstu kynnin af Gumma voru
árið 1989 er ég og Anna Jórunn,
systir hans, byrjuðum að hittast
en þá var hann tvítugur og þegar
orðinn tveggja barna faðir. Við
áttum frá fyrstu kynnum skap
saman en sameiginleg áhugamál
voru knattspyrna, kvikmyndir og
tónlist.
„Ég vona að félagarnir fjórir,
en nöfn þeirra skipta engu máli,
spari hverja krónu því hljómsveit-
in Kiss verður ekki langlíf.“
Gummi hafði gaman af að benda á
þessa blaðagagnrýni, en hann féll
fyrir Kiss 10 ára og var alla ævi
harður aðdáandi.
Í fótboltanum var Gummi Vals-
maður og í æsku byrjaði hann að
halda með Leicester og naut þess
ríkulega er „litla liðið“ varð ensk-
ur meistari vorið 2016. Margir
knattspyrnuáhugamenn fljúga til
Englands á leiki en Gummi hafði
aldrei farið á leik. Sl. haust fórum
við Gummi ásamt Brynjari syni
hans og Önnur Jórunni á leik þar
sem heimamenn, meistarar 2016,
kepptu við núverandi meistara
Chelsea. Þar fengum við höfðing-
legar móttökur af eldri stjörnum
liðsins og ekki þótti Gumma síður
skemmtilegt að hitta og fá mynd
af sér með einni af stjörnum liðs-
ins í dag, enska landsliðsmannin-
um Harry McGuire. Er heim var
komið hafði Gummi margsinnis
orð á því hversu mikið þessi ferð
hafði gefið honum, en það átti
ekki síður við um samferðamenn
hans.
Þegar Ísland dróst á móti Arg-
entínu í fyrsta leik á HM þá voru
tilfinningar blendnar, gleði yfir
leik á móti stórstjörnum Argent-
ínu en sorg að vita að Gummi
myndi ekki fá að upplifa leik gegn
sínu liði, Argentínu. Ekki veit ég
hvers vegna Argentína varð fyrir
valinu en margar af stjörnum liðs-
ins voru eins og rokkstjörnur,
t.a.m. Mario Kempes, Claudio Ca-
niggia og Gabriel Batistuta.
Lengstan sinn starfsaldur
starfaði Gummi hjá Vífilfelli. Í
stúdentsveislu á heimili mínu
voru meðal gesta forráðamenn
Laugarásbíós og höfðu ekki hug-
mynd um að Gummi tengdist
minni fjölskyldu. Er Gummi hafði
yfirgefið veisluna var ekkert verið
að spara lýsingarorðin á því
hversu vel Gummi hefði þjónustað
fyrirtækið, áreiðanlegri og traust-
ari mann var ekki hægt að finna.
Gummi hafði húmorinn í lagi,
en skömmu eftir að hann greind-
ist og upplýsti um sjúkdóminn
skrifaði hann þetta á Facebook:
„Er einstaklega lánsamur með
góða vini og vinnufélaga og ekki
má gleyma að nefna frábæran
verkstjóra sem segir mér að hafa
engar áhyggjur af vinnunni og
hugsa bara um bata. Sem sagt
Palli Ólafs er búinn að lofa því að
bíll 305, bíllinn sem fyrirtækið
byggir afkomu sína á, sé í 24/7
keyrslu.“
Hugur minn er hjá strákunum
hans Gumma, tvíburunum Gunna
og Binna, Villa og Frikka. Hjá
unnustu Gumma, Söru, sem var
hans stoð og stytta og systrum
hans, Jóhönnu, Önnu Jórunni og
Viggu.
Stefán Unnarsson.
Það er með trega sem við syst-
urnar minnumst Gumma bróður
okkar nú þegar hann hefur kvatt
þessa jarðvist langt fyrir aldur
fram.
Við vorum fjögur systkinin,
Gummi var næstyngstur og eini
strákurinn. Hann var alla tíð
orkumikill og mjög krefjandi og
hefði örugglega talist ofvirkur í
dag.
Ef hann fékk áhuga á ein-
hverju varð ekki aftur snúið. Í
boltanum var það Valur, Leicest-
er í enska og að lokum Argentína í
heimsboltanum. Hann var 10 ára
þegar hann uppgötvaði hljóm-
sveitina Kiss, sem varð strax hans
uppáhalds og var svo þar til yfir
lauk.
Tónlist þeirra hljómaði daginn
út og inn á æskuheimilinu og
komust við systurnar ekki hjá því
að hlýða á, hvort sem okkur líkaði
betur eða verr.
Gummi var í eðli sínu einfari og
bar ekki tilfinningar sínar á torg
en var í samskiptum jafnan glað-
legur og sló á létta strengi. Það er
ekki hægt að segja að Gummi hafi
verið duglegur að mæta í fjöl-
skylduboð en eftir að hann veikt-
ist snemmsumars 2016 varð mikil
breyting á.
Það má segja að við systurnar
höfum kynnst honum upp á nýtt
og samverustundir með honum
urðu fleiri en nokkru sinni fyrr á
lífsleiðinni og tengslin sterkari.
Hann tók veikindum sínum af
miklu æðruleysi og talaði opin-
skátt um þau, sem auðveldaði
okkur að takast á við sorgina.
Þó að hann hafi barist hetju-
lega í veikindunum og vonast eftir
kraftaverki vissi hann innst inni
að hann hefði takmarkaðan tíma.
Þann tíma ákvað hann að nýta
vel og var þakklátur fyrir hverja
stund.
Við systur þökkum samfylgd-
ina. Hvíl í friði, elsku bróðir.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Jóhanna, Anna Jórunn
og Vigdís.
Guðmundur
Guðmundsson
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og við-
eigandi liður, „Senda inn minn-
ingargrein,“ valinn úr
felliglugganum. Einnig er hægt
að slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar en
á hádegi tveimur virkum dögum
fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síð-
una.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar koma
fram upplýsingar um hvar og
hvenær sá sem fjallað er um
fæddist, hvar og hvenær hann
lést og loks hvaðan og klukkan
hvað útförin fer fram. Þar mega
einnig koma fram upplýsingar um
foreldra, systkini, maka og börn.
Ætlast er til að þetta komi aðeins
fram í formálanum, sem er feit-
letraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni
undir greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið
sé um annað. Ef nota á nýja mynd
skal senda hana með æviágripi í
innsendikerfinu. Hafi æviágrip
þegar verið sent er ráðlegt að
senda myndina á netfangið minn-
ing@mbl.is og láta umsjón-
armenn minningargreina vita.
Minningargreinar