Morgunblaðið - 09.01.2018, Page 33

Morgunblaðið - 09.01.2018, Page 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2018 Golden Globes-verðlaunin voru af- hent í fyrrakvöld í Beverly Hills í Kaliforníu og hlaut kvikmyndin Three Billboards Outside Ebbing Missouri flest eða fern alls: fyrir besta handrit, besta leikara í auka- hlutverki, bestu leikkonu í aðal- hlutverki og bestu dramatísku kvik- mynd. Í flokki sjónvarpsþátta var það serían Big Little Lies sem hlaut flest verðlaun eða fern í heildina og The Handmaid’s Tale hlaut tvenn. Það voru þó ekki verðlaunin sjálf sem vöktu mesta athygli á Golden Globes-hátíðinni að þessu sinni held- ur barátta kvenna gegn kynferð- islegri áreitni og ofbeldi undir for- merkjum #metoo, hreyfingarinnar sem hófst í fyrrahaust með afhjúp- unum á fjölmörgum brotum og kyn- ferðislegri áreitni kvikmyndafram- leiðandans Harvey Weinstein. Þær konur sem mættu á Golden Globes- hátíðina voru langflestar klæddar svörtum fötum til að minna á baráttu kvenna gegn kúgun og ofbeldi karla og í ræðum minntu konur jafnt sem karlar á mikilvægi þess að uppræta ofbeldið og áreitnina. Ein ræða vakti meiri athygli og umræður en aðrar en það var ræða spjallþáttastjórnandans, leikkon- unnar og framleiðandans Opruh Winfrey sem hlaut Cecil B. DeMille- verðlaunin, heiðursverðlaun hátíð- arinnar, sem veitt eru einstaklingi fyrir framúrskarandi framlag til af- þreyingar og menningar. Winfrey er fyrsta þeldökka konan sem hlýtur þessi verðlaun og nefndi hún þau tímamót og minntist þess að hafa, sem ung stúlka, horft á leikarann Sidney Poitier hljóta Óskarsverð- launin árið 1964, fyrstan þeldökkra karla og síðar Cecil B. DeMille- verðlaunin. Winfrey sneri sér í framhaldi að #metoo og sagði m.a. að alltof lengi hefði ekki verið hlustað á konur og þeim ekki trúað þegar þær hefðu sagt frá kynferðislegri áreitni og of- beldisbrotum valdamikilla karla. Nú væri tími þessara karla á enda runn- inn og nýr dagur að rísa. AFP Glaðar Leikkonur Big Little Lies, frá vinstri Laura Dern, Nicole Kidman, Zoe Kravitz, Reese Witherspoon og Shai- lene Woodley. Kidman og Dern hlutu verðlaun fyrir leik og þáttaröðin verðlaun sem sú besta í flokki stuttra. Margverðlaunuð Leikstjóri Three Billboards Outside Ebbing, Missouri, Martin McDonagh, með aðalleikurum myndarinnar, Sam Rockwell og Fran- ces McDormand og framleiðendunum Graham Broadbent og Peter Czernin. Kát Elisabeth Moss og Bruce Miller, framleiðendur The Handmaid’s Tale. Moss fór með eitt af aðalhlutverkum þáttanna og hlaut verðlaun fyrir og þættirnir hlutu einnig verðlaun sem þeir bestu í flokki dramatískra. Winfrey boðar nýja tíma Þrumuræða Oprah Winfrey hélt magnaða ræðu þegar hún tók við heiðursverðlaunum Golden Globe. Brasilískur kvintett söngkonunnar og trompetleikarans Ameliu Thomas heldur tónleika á djass- kvöldi Kex hostels í kvöld kl. 20.30. Thomas er frá Vancouver Island í Kanada en hefur búið á Íslandi undanfarið ár. Kvintettinn skipa auk hennar Sigrún Krist- björg Jónsdóttir sem leikur á bás- únu, Daníel Helgason á gítar, Alexandra Kjeld á bassa og Einar Scheving á trommur. Kvintettinn mun sópa burt vetrardrunganum með fallegri og hressilegri tónlist frá hinni sólríku Brasilíu, segir í tilkynningu. Kvintett Ameliu Thomas á djasskvöldi Brasilíutónar Kvintett Ameliu Thomas leikur sólríka tónlist. ICQC 2018-20 BÍÓ áþriðjudögum í Laugarásbíó 750 á allarmyndir nema íslenskar kr. FRÍ ÁFYLL ING Á GOS I Í HLÉI SÝND KL. 5.30, 8, 10 SÝND KL. 5.30 SÝND KL. 7.50, 10.30 SÝND KL. 5.30, 8, 10.30 –– Meira fyrir lesendur Þorrinn Þann 19. janúar gefur Morgunblaðið út sérblað tileinkað þorranum PÖNTUN AUGLÝSINGA ER TIL 15. JANÚAR Nánari upplýsingar gefur: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is SÉRBLAÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.