Morgunblaðið - 18.01.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.01.2018, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2018SJÁVARÚTVEGUR Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Kraftmiklir leiðtogar komavel fyrir sig orði Viltu vera leiðtogi sem nærð til fólks, endurspeglar öryggi og færð aðra í lið með þér á jákvæðan og faglegan hátt? Hvernig þú tjáir þig getur verið lykillinn að velgengni þinni í starfi. Námskeiðið Áhrifaríkar kynningar (High Impact Presentations) styrkir fagfólk til að miðla af öryggi og trúverðugleika til ólíkra áheyrendahópa. Hefst 13. febrúar • Nánar ádale.is Copyright© 2018DaleCarnegie &Associates, Inc. All rights reserved. ad_121317_iceland Það sem við förum yfir: • Skapa jákvæð áhrif við fyrstu kynni • Auka trúverðugleika • Framsetning á flóknum upplýsingum • Tjáning á áhrifaríkan hátt • Hvetja aðra til framkvæmda • Bregðast rétt við krefjandi aðstæðum • Fá aðra til að fagna breytingum • Koma fram í fjölmiðlum Nýsköpunarfyrirtækið Kerecis er á hraðri siglingu. Starfsmenn eru núna um 30 talsins, þar af fimmtán sem vinna að sölu- og markaðsmálum Kerecis í Bandaríkjunum, auk 30 umboðssölumanna sem starfa vítt og breitt um Bandaríkin. Eru þó ekki nema tæp átta ár síðan Kerecis hóf göngu sína sem rannsóknarverkefni, árið 2010, og varð það ekki að eigin- legu fyrirtæki fyrr en 2014. Á dögunum seldi Kerecis breytan- legt skuldabréf fyrir þrjár milljónir dala en áður höfðu hluthafar lagt fyrirtækinu til um það bil milljarð króna. „Félagið er núna í hröðum vexti og fjórföld- uðust sölutekjur okkar í fyrra rétt eins og árið á und- an. Verðmæta- aukningin er mik- il og forsendurnar í rekstrinum orðnar skýrari og því skuldabréf með breytirétti ákjós- anlegt tæki til að afla frekara fjár- magns,“ segir Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri fyrirtækisins, og bætir við að umframeftirspurn hafi verið eftir skuldabréfunum. Kerecis notar þorskroð sem ígræðsluefni til að hjálpa húð- og lík- amsvef að gróa eftir slys, skurð- aðgerðir og sjúkdóma. Meðal þeirra sem njóta góðs af vörunni er fólk með vefjamissi eftir brjóstatöku eða krabbameinsmeðferð, sykursýkis- júklingar sem glíma við fótasár vegna sjúkdómsins, fólk með kviðslit og fólk sem misst hefur húð vegna slyss eða bruna. Guðmundur segir læknavísindin bjóða upp á ýmsar leiðir til að hjálpa húðinni að gróa en vandaðar og ítarlegar rannsóknir sýna að þorskroðið frá Kerecis er ein besta lausnin sem völ er á: Smithætta ekki til staðar „Þegar alvarleg sár eru meðhöndl- uð er algengt að fara þá leið að taka húð af öðrum stað á líkamanum og leggja ofan á sárið (sk. samgræð- lingar), og er þá húðin yfirleitt fengin af læri sjúklingsins. Þegar um er að ræða sykursýkisár tollir húðin þó ekki á ágræðslustaðnum í meira en helmingi tilfella og situr sjúkling- urinn þá uppi með tvö sár í staðinn fyrir eitt,“ útskýrir Guðmundur. „Ýmiskonar tækni hefur verið þróuð til að koma í staðinn fyrir sam- græðlinga, t.d. meðhöndlaður vefur úr svínum, húð af kálfafóstrum, fóst- urbelgir og líkhúð. Þessar staðgeng- ilsvörur hafa náð talsverðri út- breiðslu í Bandaríkjunum þar sem þær seljast fyrir yfir milljarð dollara á ári með yfir 20% árlegan vöxt. Gall- inn við þessar vörur er hinsvegar að vegna sjúkdómasmithættu þarf að meðhöndla gjafavefinn mikið með sterkum kemískum efnum og við það afmyndast efnin og virkni þeirra minnkar. Það er engin smithætta til manna frá kaldvatnsfiski eins og þorski og þess vegna þarf sáraroðið okkar afskaplega litla meðhöndlun sem eykur virkni þess stórkostlega.“ Verksmiðja Kerecis er á Ísafirði en læknisfræðilegar rannsóknir fara fram í Reykjavík. Sölu- og markaðs- skrifstofa fyrirtækisins er svo á Washington DC-svæðinu, ekki langt frá Pentagon, en fyrir tveimur árum var ákveðið að flytja sölu og mark- aðsdeild fyrirtækisins vestur um haf m.a. í kjölfar undirritunar samstarfs- samninga við bandaríska sjóherinn. Fleiri vörur á leiðinni Að sögn Guðmundar stendur kjarnastarfsemi Kerecis undir sér í dag en megináhersla er lögð á sölu- og markaðsstarf í Bandaríkjunum. Fyrirtækið er með samþykkta vöru fyrir sárameðhöndlun en umfangs- mikil verkefni eru í gangi við að afla markaðsleyfa fyrir nýjar ábendingar með tilheyrandi fjármagnsþörf og gerir félagið því ekki ráð fyrir já- kvæðum rekstrarniðurstöðum næstu 2-3 árin. Vörurnar sem von er á á markað eru sérhannaðar til að hjálpa sjúklingum með sár í munnholi, fólki sem glímir við kviðslit og til notkunar við enduruppbyggingu á brjóstum eftir brjósttöku í kjölfar krabba- meins. „Við viljum halda áfram að stækka hratt og stefnum að því að vera búin að fjölga sölumönnum okk- ar úr 10 í 50 um mitt næsta ár auk þess að styrkja umboðssölu- mannanetið,“ segir Guðmundur. „Þessi verkefni eru fjármögnuð af hluthöfum og styrkjum og hafa styrkir frá Tækniþróunarsjóði m.a. verið afskaplega mikilvægir félaginu sem og greiðslur vegna þróunarsam- starfs við bandaríska herinn.“ Meirihluti hlutafjár Kerecis er í eigu íslenskra aðila, og eiga m.a. Hraðfrystihúsið Gunnvör í Hnífsdal og fiskþurrkunin Klofningur á Suð- ureyri hlut í félaginu. Meðal annarra hluthafa má nefna fyrirtækið Omega, sem tengist Novator, 1924 sem er m.a. í eigu Haraldar Jónssonar og Marinós Marinóssonar hjá Innnesi hf., franska lækningavörufyrirtækið Tonifarm og kanadísk-íslenska sjáv- arútvegsfyrirtækið Nataaqnaq Fish- eries sem er m.a. í eigu Finns Harð- arsonar og Þorsteins Sævarssonar. Mikilvægar mælingar En rekur fyrirtækið sig ekki á hindranir þegar það býr til lækn- ingavöru úr náttúrulegri afurð? Guð- mundur segir það grunnforsendu fyrir þeim leyfum sem bandaríska Matvæla- og lyfjaeftirlitið hefur veitt Kerecis að íslensk stjórnvöld fram- kvæma vandaðar og ítarlegar rann- sóknir á ástandi hafsins: „Roðið þarf að vera rekjanlegt, svo að ljóst sé n.v. hvaðan fiskurinn kem- ur, og það verður að vera ferskt þeg- ar við byrjum að vinna úr því. Þegar við öflum hráefnis fer starfsmaður á okkar vegum til Hraðfrystihússins Gunnvarar í Hnífsdal eða Íslands- sögu á Suðureyri, stendur þar við roðflettingarvélina og velur það roð sem við munum nota.“ Í byrjun notaðist Kerecis við roðið af eldisþorski sem Guðmundur segir að hafi haft þann kost að vakta mátti ástand og vaxtarskilyrði fisksins allt frá klakningu seiða og hægt var að tryggja að allir fiskarnir væru eins og af sömu stærð. „En svo fór að þorskeldið gekk ekki vel og skiptum við því eldisþorskinum út fyrir villtan þorsk og reiðum okkur á mælingar Hafrannsóknastofnunar á ástandi sjávar umhverfis landið. Þessar mæl- ingar fara stöðugt fram og mæla m.a. magn og samsetningu baktería, geislavirkni og magn þungmálma og er markaðsleyfi okkar í Bandaríkj- unum háð því að við framvísum skýrslum Hafró og Matís um leið og þær eru tilbúnar.“ Reiða sig á mælingar á ástandi hafsins Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Nýlega seldi Kerecis breyt- anlegt skuldabréf fyrir þrjár milljónir dala og hefur því samtals fengið um 1,3 milljarða króna frá fjár- festum. Markaðsleyfið í Bandaríkjunum er háð reglulegum mælingum Hafró og Matís umhverfis landið. Húðlíkið er framleitt úr fersku roði í fullkominni verksmiðju á Ísafirði. Von er á nýjum vörum á markað fljótlega. Ýmsar ástæður eru fyrir því að Kerecis hefur lagt mesta áherslu á Bandaríkjamarkað. Mest munar um að þar er meiri hefð fyrir því að nota líkhúð og aðra stuðningsvefi við lækningar á sárum og vefjaskaða. „Á Bandaríkjamarkaði erum við að koma inn á hávaxtarmarkað þar sem allir vita hvað húðlíki er, eru vanir að nota það. Opinberir sjúkratrygg- ingasjóðir í öllum 50 ríkjum Bandaríkjanna veita endurgreiðslu vegna notkunar húðlíkis, en í Evrópu er slíkur stuðningur ekki til staðar.“ Eins og gefur að skilja er bandaríski lækningavörumarkaðurinn bæði stór og flókinn og tekur það tíma fyrir fyrirtæki eins og Kerecis að koma vöru sinni á framfæri og í notkun á spítölunum. „Til þess að geta notað vöruna þarf innkaupanefnd hvers spítala fyrst að gefa til þess leyfi. Í þessari nefnd er innkaupadeildin í meirihluta og þar sem spítalarnir eru reknir til að skila hagnaði þá þurfa nýjar lækningavörur í senn að hafa klíníska virkni og vera arðbærar fyrir spítalann. Húðlíki Kerecis uppfyllir bæði skilyrðin og því oftast auðsótt að taka það í notkun en samþykkt- arferli spítalanna tekur þó langan tíma, frá sex mánuðum upp í heilt ár.“ Greið en löng leið inn í bandaríska spítala Guðmundur Fertram Sigurjónsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.