Morgunblaðið - 18.01.2018, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2018 11FRÉTTIR
Af síðum
Sem tap þá minnir það meira á síli en
stórhveli. JPMorgan fór fram fyrstur
bandarískra banka og birti traustar af-
komutölur á föstudaginn. En fljótlega
komu glöggir greinendur auga á for-
vitnilega klausu um 143 milljóna dala
tap vegna „verðbréfaveðláns (e. margin
loan) til eins viðskiptavinar“. Fljótlega
var giskað á (og það staðfest) að þessi
viðskiptavinur væri Steinhoff
International, suðurafríska smásölu-
fyrirtækið sem hefur riðað til falls á
undanförnum mánuðum vegna bók-
haldshneykslis.
JPMorgan er þekkt fyrir að hreykja
sér af „brynvörðum“ efnahagsreikningi. Og með 27 milljarða dala
hagnað á árinu 2017 og 184 milljarða dala eigin fé þá er tapið vegna
Steinhoff, að viðbættum smá varúðarfærslum, nánast smáræði. En
þetta minnir á að þó svo að Wall Street hafi fært sig yfir í minna
áhættusöm viðskipti, þá er bankarekstur eftir sem áður bankarekst-
ur. Því fylgir fjárhagsleg áhætta og tapið getur orðið óvænt og
snöggt.
Árið 2016 tók forstjóri Steinhoff 1,6 milljarða dala að láni frá hópi
banka. Fyrirtækið var þá í fjárfestingaflokki og mikilvæg stoð í at-
vinnulífi Suður-Afríku. Lánið var tryggt með hlutabréfum, sem hefði
átt að skapa lánveitendunum nokkra sálarró.
Eftir að efasemdir vöknuðu um bókhald Steinhoff, sem farið hafði
mikinn í yfirtökum, hafa hlutabréf fyrirtækisins lækkað um nærri
90%, svo að tryggingin fyrir láninu var svo til horfin. Yfirmenn
JPMorgan bentu á að þrátt fyrir þetta tap væru lánveitingar af
þessu tagi áhugaverð viðskipti. Þeir bættu við að tap geti alltaf átt
sér stað.
JPMorgan var ekki stærsti lánveitandi Steinhoff svo það má
vænta svipaðra tilkynninga frá Bank of America, Citigroup, Gold-
man Sachs og fleirum. Með markaðinn á fleygiferð og tiltölulega
einfalda vöru í höndunum sem höfðað getur til efnaðra viðskiptavina,
urðu lán með veði í verðbréfum mjög vinsæll fjárfestingarkostur.
Árið 2010 námu verðbréfaveðlán hjá eignastýringarsviði Morgan
Stanley einungis 4 milljörðum dala, en árið 2016 var fjárhæðin kom-
in yfir 30 milljarða dala.
Tapið vegna Steinhoff sýnir að jafnvel einfaldar veðtryggðar fjár-
málaafurðir geta súrnað með hraði. Enginn vafi leikur á því að
bankarnir standa mun traustar nú en fyrir áratug. En þótt
yfirboðið sé kyrrt getur alltaf eitthvað leynst í djúpinu.
LEX
AFP
JPMorgan: Hvað
leynist í djúpinu?
Tveir stærstu bílaframleiðendur
Bandaríkjanna eru varkárir í spám
sínum fyrir árið 2018. Ford á von á
umfangsmiklum niðurskurðar-
aðgerðum og General Motors gerir
ráð fyrir að hagnaður muni standa í
stað.
Þessar viðvaranir koma í kjölfar
nokkurra ára tímabils mikillar
aukningar í sölu á heimsvísu og
góðs hagnaðar bílaframleiðandanna.
Ford segist ætla að draga úr
kostnaði á „öllum sviðum“ fyrirtæk-
isins til að geta betur haldið í við
keppinauta sína, en GM segir að
hagnaðartölur muni ekki breytast á
árinu 2018 vegna versnandi að-
stæðna á bandaríska markaðinum
og mikils verðþrýstings á bílamark-
aði.
Samdráttur eftir mikinn vöxt
Búist er við að sala nýrra bíla í
Bandaríkjunum, sem er helsta
tekjulind framleiðendanna, muni
taka að dragast saman á þessu ári
eftir að hafa farið upp í 17,2 millj-
ónir seldra bíla árið 2017. Á sama
tíma þurfa framleiðendur að ráðast
í æ meiri fjárfestingar til að þróa
tækni fyrir rafmagns- og sjálf-
akandi bíla.
Á bílasýningunni í Detroit sagði
GM að fyrirtækið hygðist verja ein-
um milljarði dala í áframhaldandi
þróun kerfa fyrir sjálfakandi bíla,
og er það aukning um 600 milljónir
frá árinu á undan. Ford hefur gefið
fyrirheit um að verja 11 milljörðum
í þróun rafbíla fram til ársins 2022.
Jim Farley, sem stýrir alþjóða-
markaðsmálum Ford, segir fyrir-
tækið líka stefna að því að draga úr
kostnaði á „öllum sviðum“ rekstr-
arins.
„Ég er ekki sáttur með hvar bíla-
framleiðsla okkar er stödd í dag, og
þurfum við að bæta ásigkomulag
okkar, sjóðstreymi, og arðsemi,“
sagði hann.
Í október lofaði bílaframleiðand-
inn sparnaðaraðgerðum upp á 14
milljarða dala, „en síðan þá hefur
okkur orðið enn meira ágengt í að
finna þau svið þar sem við getum
orðið skilvirkari,“ sagði hann á bíla-
sýningunni.
Hagnaðarvöxtur tekur enda
Á þriðjudag upplýsti GM að
hagnaður á hvern hlut árið 2017
verði í hærra lagi miðað við vænt-
ingar markaðarins, eða á bilinu 6 til
6,50 dalir – sem er nýtt met hjá
fyrirtækinu.
En um leið var greint frá að
hagnaðurinn á árinu 2018 muni
verða „með svipuðu móti“ og á síð-
asta ári, og myndi það binda enda á
þá samfelldu aukningu hagnaðar
sem verið hefur hjá GM síðan 2013.
Fyrirtækið væntir þess að hagn-
aðurinn muni taka að aukast á ný
árið 2019.
Verðþrýstingur bæði í Bandaríkj-
unum og Kína, tveimur stærstu
markaðssvæðum GM, mun dempa
hagnaðinn á þessu ári að sögn sam-
steypunnar.
Minnkandi lokavirði og kostn-
aður við að hleypa af stokkunum
nýrri línu pallbíla mun líka verða
mótdrægt og vega upp á móti auk-
inni sölu á minni sportjeppum og
lækkun kostnaðar, að sögn félags-
ins.
„Starfsemi okkar í Bandaríkj-
unum mun verða sterk, en við telj-
um að hún muni dragast saman á
árinu 2018 borið saman við 2017,“
sagði Chuck Stevens, fjármálastjóri
GM.
Hækkaði um 40% í fyrra
Hlutabréfaverð GM hefur hækk-
að um meira en 40% síðastliðið ár
en á sama tíma hefur félagið hætt
sölu á mörkuðum sem ekki hafa
staðið undir sér, svo sem í Evrópu,
Indlandi og Indónesíu.
Fyrirtækið upplýsti að það
myndi afskrifa 7 milljarða dala
eignir í rekstraruppgjöri sínu fyrir
árið 2017 vegna breyttra skatta-
reglna í Bandaríkjunum sem lækk-
ar skatta á tekjur fyrirtækja úr
35% niður í 21%.
Þessar breytingar valda því að
það skattalega tap sem GM flytur á
milli uppgjörsára frá þeim árum
þegar reksturinn gekk verr, verður
minna virði í takti við lækkandi
skattprósentu.
Mörg bandarísk fyrirtæki munu
þurfa að ráðast í sams konar
afskriftir á ársreikningum sínum á
því afkomutilkynningatímabili sem
nú er að hefjast.
Stevens segir að skattabreyting-
arnar muni fela í sér „ávinning heilt
á litið“ fyrir rekstur GM, „sem ætti
síðan að styðja við heildarsölu
ökutækja þegar fram í sækir.“
Bílaframleiðendur vest-
anhafs varkárir í spám
Eftir Peter Campbell og
Patti Waldmeir í Detroit
Eftir mikinn uppgang um
nokkurra ára skeið eiga
bandarískir bílaframleið-
endur von á að hægjast
fari á sölunni í Bandaríkj-
unum á þessu ári eftir að
hafa farið upp í 17,2 millj-
ónir bíla í fyrra.
AFP
Bill Ford, starfandi stjórnarformaður Ford, ræðir við blaðamenn eftir
kynningu á nýjum árgerðum af Ford-bifreiðum í Detroit fyrr í vikunni.
Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | sala@postdreifing.is | postdreifing.is
FJÖLPÓSTUR
SEM VIRKAR
*könnun Zenter apríl 2016.
61% landsmanna lesa fjölpóst
70% kvenna lesa fjölpóst
58% neytenda taka eftir tilboðum á
vöru og þjónustu í gegnum fjölpóst*
Dreifum sex daga vikunnar inn á 80.000 heimili
MARKHÓPURINN ÞINN BÍÐUR
EFTIR TILBOÐI FRÁ ÞÉR
Hafðu samband og við gerum þér tilboð í þá þjónustu sem þér hentar