Morgunblaðið - 18.01.2018, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 18.01.2018, Qupperneq 9
kom að því að fjölga fargjaldaflokkum og mæta með því ólíkum þörfum okkar viðskiptavina. Við tókum ákvörðun í þeim efnum snemma á síðasta ári og byrjuðum til dæmis að bjóða upp á flug þar sem fólk greiðir sérstaklega fyrir farangur sem það tekur með sér. Eftir á að hyggja hefði það mátt gerast fyrr, ekki síst til þess að gera okkur sýnilegri á stóru bókunarsíðunum. Þar sem við vorum alltaf með 20 kg tösku innifalda í okkar verði þá sást okkar verð kannski ekki fyrr en á þriðju eða fjórðu síðu í flettingu. Það er auð- vitað ótækt þegar við vorum í raun að bjóða sama verð og lággjaldafélögin þegar allt var tek- ið saman.“ Einhver kynni að spyrja, þegar öllu er á botn- inn hvolft hvort Icelandair sé jafnt og þétt að halla sér í átt að lággjaldakerfinu með því að bjóða upp á hinn nýja fargjaldaflokk. Björgólfur þvertekur fyrir það. „Við erum enn að bjóða upp á mikla þjónustu eins og áður en þarna er ný vara í boði. Við höf- um sagt að við séum einskonar „hybrid“-félag sem staðsetur sig á milli þeirra félaga sem skil- greind eru sem fullþjónustufélög og þeirra sem eru hrein lággjaldaflugfélög. En það má heldur ekki gleyma því þegar horft er yfir markaðinn að félögin eru að færast nær hvert öðru úr báð- um áttum. Á meðan gamalgróin félög bjóða upp á ódýrari fargjaldaflokka eru margir af sam- keppnisaðilum okkar einnig að bjóða upp á dýr- ari flokka með meiri þjónustu en áður. Það er ekki í anda lággjaldamódelsins þar sem aðeins er boðið upp á eina tegund fargjalds.“ Öllum möguleikum haldið opnum Þegar talinu er aftur beint að hinu nýja skipu- riti má velta fyrir sér hvort ekki hefði einfald- lega verið rétt að setja allan reksturinn undir einn og sama hattinn. Björgólfur segir að það hafi hins vegar ekki verið talið heppilegt á þess- um tímapunkti. „Það er markmiðið með skipulagsbreytingun- um að skerpa fókusinn á flugreksturinn sjálfan og þó að ákveðnar einingar í flugrekstri heyri nú undir fjárfestinga þá séu það einingar sem teng- ist ekki hinni alþjóðlegu flugstarfsemi beint. Loftleiðir Iceland eru að sinna verkefnum fjarri okkar almennu mörkuðum og það má ekki gleyma því að Air Iceland Connect starfar á grundvelli annars flugskírteinis en Icelandair. Við höfum séð ákveðnar samfellur við rekst- urinn milli Icelandair og Air Iceland Connect, ekki síst eftir að við tókum að beina stærstu Bombardier-vélunum á markaði erlendis en enn sem komið er teljum við að þarna sé rétt að gera skil á milli.“ Hann segir að hið sama eigi við um hótel- og ferðaskrifstofureksturinn en að þar sé fyrir- tækið einnig opið fyrir nýjum leiðum. „Það er alveg ljóst að við erum búin að standa í mikilli uppbyggingu, ekki síst þegar litið er á hótelmarkaðinn. Þar erum við komin á góðan stað og búin að koma upp hótelum sem tryggja ákveðna breidd á markaðnum og ákveðna þjón- ustu sem ekki var til staðar í landinu áður. Við höfum trú á því að ákveðin samþjöppun eða auk- ið samstarf eigi eftir að skila ferðaþjónustunni hér á landi lengra og Icelandair Hotels og Vita eru mjög góð dæmi um einingar sem við sjáum fyrir okkur að hægt sé að byggja samstarf við aðra aðila um og styrkja þannig grunninn sem starfsemin hvílir á.“ Hann þvertekur ekki fyrir að til greina komi að selja þessar einingar út úr Icelandair Group. „Við höfum einfaldlega sagt að við höldum öll- um möguleikum opnum í þessu sambandi. Einn möguleikinn er sannarlega sá að selja þessar einingar en það er síst af öllu sjálfgefið að það sé farsælasta niðurstaðan fyrir félagið.“ Möguleikar kunna að liggja í Asíuflugi Þrátt fyrir þá miklu áherslu sem lögð hefur verið á það á síðustu mánuðum að undirbúa og innleiða nýtt skipurit fyrir félagið hefur starfs- fólk Icelandair ekki slegið slöku við. Þannig hafa nokkrir nýir áfangastaðir bæst í hóp þeirra sem fyrir voru. Þannig kynnti félagið þrjá nýja áfangastaði í Bandaríkjunum á þriggja daga tímabili í nýliðinni viku. Þannig hyggst félagið hefja flug til San Francisco, Baltimore og Kansas. Síðastnefndi staðurinn kom kannski helst á óvart enda ekki á hverjum degi sem Ís- lendingar hugsa til miðvesturríkja Bandaríkj- anna. „Við ákváðum að hefja flug til Kansas vegna þess að þar er spennandi markaður eða um 5 milljónir manna ef Kansas City og nágranna- borgirnar eru taldar með. Þetta er líka svæði sem ekki er verið að sinna í beinu flugi til Evr- ópu og við trúum því að þarna sé uppsöfnuð þörf fyrir þjónustu og flug til Evrópu. Viðtökurnar hafa enda verið alveg ótrúlegar og sjaldan sem opnun nýs áfangastaðar hjá okkur hefur vakið eins mikla athygli á viðkomandi stað. Það er greinilega ánægja með þetta í Kansas og við er- um viss um að Íslendingar og aðrir þeir sem nýta sér leiðakerfið okkar frá Evrópu muni gera það einnig. Sem dæmi hefur Marel verið með starfsemi þarna og það kæmi manni ekki á óvart þó fólk sem tengist þeirri starfsemi sjái kosti í því að hafa beint flug á milli Íslands og Kansas.“ Björgólfur segir að nýju áfangastaðirnir séu spennandi og feli í sér tækifæri. Félagið sé hins vegar óhrætt við að taka ákvarðanir um að hætta flugi á leiðum sem ekki skili tilætluðum árangri. Það hafi til dæmis reynst niðurstaðan með Birmingham. „Það gekk ekki og þá leitum við annarra leiða. Ein viðbótin í þeim efnum er Berlín. En nýjustu tilkynningarnar eru einnig til marks um breytta tíma. Hingað til höfum við yfirleitt kynnt nýja áfangastaði á haustin og horft fram á að selja inn á slíka áfangastaði ár fram í tímann. Núna tök- um við ákvarðanir hraðar og bregðumst við tækifærum sem við sjáum án þess að hika. Það sýnir að boðleiðir séu að styttast.“ En tækifærin liggja víða að sögn Björgólfs og fyrirtækið horfir vítt og breytt yfir sviðið. „Leiðakerfið vestur um haf er í raun orðið ótrúlega öflugt. Það er aðeins British Airways sem býður upp á fleiri áfangastaði en við í Norð- ur-Ameríku. Nú þegar 23. áfangastaðurinn bættist við hjá okkur þá jöfnuðum við fjöldann hjá Lufthansa. En tækifærin liggja ekki aðeins í Norður-Ameríku þó það hafi lengi verið afar mikilvægur markaður hjá okkur og verði það enn. Við erum einnig að skoða ákveðna mögu- leika í Asíu og einnig að fara dýpra inn í Evrópu. Asía er spennandi, líkt og Afríka að því marki að þar er vöxturinn gríðarlegur. Það er að skapast eftirspurn eftir flugi til og frá þessum heims- álfum og við viljum skoða möguleika á því að sækja sneið af þeirri köku, annaðhvort sjálf eða í samstarfi við aðra aðila.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg mkeppni á leiðinni yfir hafið MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2018 9VIÐTAL Á undanförnum árum hefur flugvélafloti Icelandair vaxið stöðugt og burðarásinn í honum eru hinar svokölluðu Boeing 757-200-vélar. Auk þess er félagið með á sínum snærum eina 757-300-vél sem er lengri en 200-vél- arnar. Þá hefur félagið á síð- ustu árum bætt í hópinn breiðþotum af gerðinni 767- 300. En nú hillir undir vatna- skil í flugstarfseminni. „Það er orðið nokkuð síð- an við skrifuðum undir samning við Boeing á kaup- um á 16 737 MAX-vélum sem fyrirtækið hefur nýlega hafið framleiðslu á. Fyrsta vélin sem við fáum í hend- urnar innan fárra vikna er í smíðum í verksmiðju Renton-verksmiðjunni sem Boeing rekur rétt fyrir utan Seattle. Það verða mikil tímamót að fá þessar nýju vélar í flotann hjá okkur. Þær eru sparneytnar og hag- kvæmar í rekstri og eins og ég hef áður lýst munu þær opna fyrir okkur nýja mark- aði og spila vel saman með 757- og 767-vélunum.“ Sú gagnrýni hefur komið fram á Icelandair að fyrir- tækið keyri um of á eldri vél- um á borð við 757-línuna og þegar komi að flugvéla- kaupum og að lendingin hafi á sínum tíma verið að kaupa 737 MAX-vélarnar. Hins veg- ar bíði félagið enn eftir því að geta keypt vélar sem búi yfir sömu kostum og 757- vélarnar. „Það hefur enginn fram- leiðandi komið með svarið við 757-vélinni en fram- leiðslu hennar hefur nú verið hætt. Það má kannski segja að Airbus 321 LR sé sú vél sem kemst næst henni í dag. Boeing hefur hins vegar boðað að það muni gerast og við munum skoða alvar- lega, þegar að því kemur hvort við kaupum slíkar vél- ar. 757-vélin hefur reynst okkar leiðakerfi einstaklega vel og því bíðum við spennt eftir því útspili. Það er vitað að 757-vélin er ekki spar- neytin í samanburði við nýj- ustu vélarnar á markaðnum en á móti kemur að eignar- haldskostnaður á þessum vélum er lágur. Á meðan eldsneytisverð hefur haldist lágt hefur það reynst mikið gæfuspor að hafa haldið í 757-vélarnar en við munum endurskoða eignarhaldið á þeim ef eldsneytisverðið hækkar til muna.“ að flest flugfélög sem séu í samkeppni við félagið séu með nýrri flota. Björgólfur segist þekkja til þessarar gagnrýni en hann tekur ekki undir hana. „Í fyrsta lagi er því til að svara að við erum að taka við nýjustu vélinni á mark- aðnum og þær verða eftir tæp fjögur ár orðnar 16 tals- ins hjá okkur að minnsta kosti. En vélarnar sem við erum með núna og höfum verið að kaupa á síðustu ár- um hafa reynst gríðarlega vel og eru enn í fullu gildi. Það er stundum villandi þeg- ar rætt er um aldur flugvéla að vísa í byggingarár flug- vélarskrokksins sem slíks. Á notkunartíma vélarinnar er skipt um hreyfla og nánast alla aðra hluta vélarinnar en skrokkinn sjálfan. Auk þess hefur það mikil áhrif á notk- unartíma vélanna hvort þeim er flogið á lengri eða skemmri leggjum og hversu oft þær taka á loft og þeim er lent. Leiðakerfið okkar er mjög hagstætt hvað það varðar og því erum við með mjög öflugan flota sem hef- ur reynst mjög vel.“ Björgólfur segir að huga þurfi að mörgum þáttum Fyrsta MAX-vélin fyrir Icelandair er í smíðum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.