Morgunblaðið - 18.01.2018, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2018 15FÓLK
Vantar fyrirtækið þitt gæða
prentefni? Við bjóðum fjöl-
breyttar lausnir hvort sem er í
offset eða stafrænt. Komdu við
í kaffisopa og við finnum leið
sem hentar best hverju sinni.
PRENTVERK
Þegar Ásþór Tryggvi Steinþórsson
var í námi í Hollandi hugkvæmdist
honum að hanna nýja gerð af grip-
töng fyrir skurðlækna. Hann þróaði
uppfinningu sína í náminu, en þegar
hann snéri aftur til Íslands rak hann
sig á að erfitt gat verið að fá að kom-
ast í þau tæki sem þarf til að smíða
vandaðar frumgerðir af tækjum og
tólum.
„Þegar litið er yfir samsetningu
íslenskra sprotafyrirtækja kemur í
ljós að flest þeirra fást við þróun
hugbúnaðar, og sennilegasta skýr-
ingin sú að til að búa til forrit þarf
ekki meira en tölvu. Þeir sem fá hug-
mynd að nýrri uppfinningu þurfa
aftur á móti að byrja á að kaupa tæki
fyrir nokkrar milljónir ef þeir vilja
smíða nothæfa frumgerð af vörunni
sinni, og það er þröskuldur sem
venjulegt fólk ræður ekki við,“ segir
Ásþór. „Jarðvegurinn er mjög góður
fyrir hvers kyns hugbúnaðarhug-
myndir og hægt að feta í fótspor
margra sem á undan hafa komið, en
það er sáralítill jarðvegur fyrir verk-
legu hugmyndirnar.“
Ásþór sá sér leik á borði og stofn-
aði nýtt „frumgerðasetur“ fyrir
frumkvöðla. Um er að ræða opna
vinnustofu sem fengið hefur nafnið
Frumgerðin (www.frumgerdin.is) og
geta áhugasamir fengið þar aðgang
að fullkomnum smíðatækjum á
kostnaðarverði. Meðstofnandi Ás-
þórs er Elvar Örn Þormar, stjórn-
andi Reon, og er Frumgerðin rekin í
samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð
Íslands, í húsakynnum NMÍ í Ár-
leyni í Keldnaholti.
Tækifæri í tækjum rétt
eins og hugbúnaði
Að sögn Ásþórs skýtur það
skökku við að aðstaða af þessu tagi
hafi ekki verið í boði fyrr en nú.
„Smíði vélbúnaðar er ekki minna
ábatasöm en smíði hugbúnaðar, og
sést kannski hvað best á nýsköp-
unarfyrirtækjum eins og Marel og
Össuri sem í dag eru í hópi stærstu
fyrirtækja landsins,“ segir hann og
bætir við að víða í Hollandi og
Þýskalandi megi finna staði eins og
Frumgerðina þar sem hugvitssamt
fólk getur fengið að smíða full-
komnar frumgerðir.
Ásþór segir íslensku háskólana
bjóða upp á takmarkaða aðstöðu en
þar sé aðgengi líka takmarkað og
ekki að því hlaupið fyrir aðra en
nemendur og kennara að nota
tækjakost háskólanna. „Einkarekin
vélaverkstæði hérlendis fást flest við
grófari framleiðslu og því ekki með
tækin sem henta fyrir fínsmíði, eða
þá að framleiðslunni er þannig hátt-
að að það borgar sig ekki fyrir þau
að smíða eina frumgerð fyrir upp-
finningamann,“ útskýrir Ásþór.
„Nýsköpunarmiðstöð rekur Fab
Lab-verkstæði, sem eru ágæt til síns
brúks, en gefa ekki völ á þeirri fín-
smíði sem frumkvöðlar þurfa oft á að
halda. Hjá Fab Lab má komast í þrí-
víddarprentara og leysiskera, sem
kemur sér vel á fyrstu stigum, en
líta má á Frumgerðina sem n.k.
framlengingu af þeirri þjónustu, og
stað þar sem notendur geta smíðað
úr nánast hvaða efni sem er með að-
gangi að fullkomnu rafmagnsverk-
stæði, vélaverkstæði og fínsmíða-
verkstæði auk búnaðar til að mæla
brotþol og kraft.
Áhugasamir geta sótt um að kom-
ast að hjá Frumgerðinni og segir
Ásþór hægt að fá handleiðslu við
notkun tækjanna. „Það er ekki í boði
að fólk komi einfaldlega og prófi sig
áfram með tækin enda er öryggið í
fyrirrúmi og ekki sama hvernig
smíðaverkstæðið er notað. Aðstaðan
er leigð í hálfan eða heilan dag í senn
og verkefnið sem unnið er að þarf að
hafa nýsköpunarlegt gildi – er verk-
stæðið ekki hugsað til að framleiða
t.d. húsamerkingar eða götuskilti.“
Morgunblaðið/Hari
Frumgerðin er vel búin tækjum fyrir hvers kyns fínsmíði. Ásþór á frum-
gerðaverkstæðinu með samstarfskonu sinni Huldu Jónasdóttur.
Ryðja burtu hindrun fyrir hugvitsfólk
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Íslenska frumkvöðla hefur
vantað aðstöðu til að
smíða vandaðar frumgerðir
af fullkomnum uppfinn-
ingum. Nýtt „frumgerða-
setur“ á að bæta úr þessu
en þar geta uppfinninga-
menn með góða hugmynd
komist í öll nauðsynleg
tæki.
SPROTAR
GG Verk Ferdinand Hansen hefur verið ráðinn í starf
gæða- og öryggisstjóra GG Verks. Ferdinand lauk prófi í
framleiðslufræði frá Skive Tekniske Skole og hefur réttindi
sem húsasmíðameistari og byggingastjóri. Hann hefur
starfað sem verkefnisstjóri gæðastjórnunar hjá Samtökum
iðnaðarins frá 1999. Þá sá hann um ráðgjöf við stjórnun,
rekstur og CE-merkingar og hélt utan um áfangavottanir SI. Þá hefur hann
á undanförnum árum verið leiðbeinandi við Háskólann í Reykjavík og
Tækniskólann í gæðastjórnun iðnmeistara og byggingastjóra.
Ferdinand er nýr gæða- og öryggisstjóri
Arctica Finance Jón Þór Sigurvinsson hefur verið ráðinn
forstöðumaður Fyrirtækjaráðgjafar Arctica Finance. Hann
tekur við starfinu af Stefáni Þór Bjarnasyni sem hefur frá
stofnun félagsins sinnt stöðu framkvæmdastjóra félagsins
samhliða því að veita Fyrirtækjaráðgjöfinni forstöðu.
Jón Þór er einn af stofnendum Arctica Finance og hefur
14 ára reynslu af störfum á fjármálamarkaði. Jón Þór hefur leitt eða komið
að mörgum stærri fyrirtækjaráðgjafarverkefnum seinni ára.
Hann er með BSc-gráðu í vélaverkfræði og tölvunarfræði fá HÍ, MSc-
gráðu í orkuverkfræði frá Universite Joseph Fourier.
Jón Þór tekur við fyrirtækjaráðgjöfinni
VISTASKIPTI
Samtök atvinnulífsins Unnur Elfa Hallsteinsdóttir hefur
verið ráðin verkefnastjóri á samkeppnishæfnisviði Sam-
taka atvinnulífsins. Unnur Elfa er lögfræðingur frá Háskóla
Íslands en hún starfaði áður hjá sendiráði Íslands í Brussel,
EFTA og Fjármálaeftirlitinu.
Meistararitgerð Unnar í lögfræði fjallaði um samanburð
á reglum ESB- og EES-réttar og reglum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar
(WTO) um viðskipti með vörur. BA-ritgerð hennar fjallaði um framsal ríkis-
valds alþjóðastofnana með tilliti til Schengen-samstarfsins.
Nýr verkefnastjóri á samkeppnishæfnisviði
Arion banki Ingi Steinar Ellertsson hefur tekið við starfi
svæðisstjóra Arion banka á Norður- og Austurlandi. Hann
mun samhliða því gegna starfi útibússtjóra bankans á Akur-
eyri. Ingi Steinar hefur verið forstöðumaður fyrirtækja-
viðskipta hjá Arion banka á Norður- og Austurlandi frá árinu
2015. Frá árinu 2011 hafði hann leitt uppbyggingu sjóða- og
lífeyrissjóðasviðs hjá T Plús hf. á Akureyri.
Ingi Steinar er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands með meistaragráðu í
fjármálum og stefnumótun frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn. Hann
hefur jafnframt lokið prófum í verðbréfaviðskiptum og vátryggingafræðum.
Ráðinn svæðisstjóri á Norður- og Austurlandi