Morgunblaðið - 25.01.2018, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2018SJÁVARÚTVEGUR
SVEIGJANLEGOGLIPUR
INNHEIMTUÞJÓNUSTA
Hafðu samband, við leysum málin með þér!
Laugavegur 182, 105 Rvk. | Sími: 510 7700 | momentum@momentum.is
Í Hnakkaþons-keppninni í ár var há-
skólanemendum sett fyrir að finna
leiðir til að efla sölu á sjófrystum ufsa
inn á Bandaríkjamarkað. Útgerð-
arfélagið Brim var einn af samstarfs-
aðilum keppninnar í ár en fyrirtækið
er einn stærsti framleiðandi sjófrysts
ufsa hér á landi.
Kárl Már Einarsson, útgerð-
arstjóri Brims, segir íslenskan ufsa
einkum seldan til Evrópu en þar á
tegundin sér nokkuð langa sögu og er
bæði veidd og borðuð af mörgum
þjóðum í álfunni. Erfiðlega virðist
hins vegar ganga að selja ufsa í
Bandaríkjunum og spilar þar m.a. inn
í að bandarískir neytendur virðast
vilja hafa hvítfiskinn sinn skjanna-
hvítan. „Ufsi er mjög góður matfiskur
en er þannig frá náttúrunnar hendi að
hann hefur á sér dökka himnu roð-
hliðarmegin og við frystingu verður
holdið dökkleitara svo að varan er
ekki jafn hvít og þorskur eða ýsa.“
Helstu kaupendur ufsa í Evrópu
eru í Póllandi, Tyrklandi, og Þýska-
landi. „Einnig fer töluvert af ufsa til
hótela og veitingastaða víða um álf-
una og næsta víst að margir Íslend-
ingar sem ferðast til Tenerife eða
Kanaríeyja eru að fá fiskrétti úr ís-
lenskum ufsa á hótelunum þar,“ segir
Karl.
Fullvinna og fela litinn
Vinningstillaga Hnakkaþonsins
felst í því að leggja ríka áherslu á
gæði, sjálfbærni og jafnt framboð allt
árið um kring samhliða því að þróa
nýtt vörumerki og byggja upp að-
stöðu í Portland þar sem fiskurinn
væri fullunninn.
Tinna Brá Sigurðardóttir er meist-
aranemi í mannauðsstjórnun og
vinnusálfræði og einn af meðlimum
vinningshópsins. Hún segir að með
því að marínera ufsann, reykja hann
eða húða með brauðraspi megi fela
litinn. „Samhliða mætti búa til nýtt
vörumerki, sem við kölluðum „Say
Iceland“ í tillögu okkar. Ætti vel
heppnað vörumerki að hjálpa til við
markaðssetningu vörunnar og hjálpa
til að undirstrika að um íslenska
gæðavöru er að ræða,“ útskýrir
Tinna. „Ufsann mætti síðan selja full-
unninn og tilbúinn til eldunar til kaup-
enda á borð við hótel, veitingastaði og
stór háskóla- og spítalamötuneyti. Í
framhaldinu mætti svo leggja áherslu
á markaðssetningu og sölu beint til al-
mennra neytenda.“
Í verðlaun fær vinningshópurinn
fimm daga ferð til Boston í vor, þar
sem þau heimsækja eina stærstu
sjávarútvegssýningu heims. Að vanda
voru það Háskólinn í Reykjavík og
SFS sem skipulögðu Hnakkaþonið en
verðlaunin eru í boði Icelandair Gro-
up og sendiráðs Bandaríkjanna á Ís-
landi.
Vert að skoða möguleikana
Karl segir margt áhugavert við
vinningstillöguna, sem og við aðrar
tillögur sem bárust í keppnina en
nemendurnir höfðu aðeins frá
fimmtudegi til laugardags til að vinna
og skila inn hugmyndum sínum. „Til-
lögurnar spönnuðu allt frá því að inn-
leiða nýtt vottunarferli yfir í að búa til
núðlu-smárétti úr ufsanum. Margar
þessara hugmynda er vert að skoða
nánar og mögulega tvinna saman svo
að jafnvel verði úr því alvöru verkefni
sem væri hægt að skoða ofan í grunn-
inn. Vinningstillagan er sæmilega
mótuð og vel unnin, þrátt fyrir að
hafa orðið til á aðeins tveimur sólar-
hringum, en eðlilega þarf að þroska
hana betur og þróa hugmyndina
lengra.“
Það er til mikils að vinna ef finna
má fleiri kaupendur fyrir ufsa og fá
betra verð fyrir vöruna. Karl bendir á
að bandaríski markaðurinn sé gríð-
arstór og tækifærin mörg, en þrátt
fyrir að ufsinn sé prýðilegur fiskur fá-
ist lágt verð fyrir hann miðað við teg-
undir eins og þorsk og ýsu.
Karl bendir líka á að það væri lík-
legara til árangurs að fara í samstarf
ef ráðast ætti í að byggja nýja verk-
smiðju í Bandaríkjunum. „Þó svo að
við framleiðum tæplega þriðjung af
öllum sjófrystum íslenskum ufsa þá
er okkar hlutur af ufsakvótanum ekki
nema 8-9%. Að koma á laggirnar
verksmiðju til að fullvinna ufsa fyrir
svona stóran markað myndi kalla á
meira hráefni til að tryggja stöðugt
framboð inn á markaðinn og væri
hyggilegast að ráðast í verkefni af
þessari stærðargráðu í samvinnu við
aðrar útgerðir.“
Maríneraður
ufsi gæti selst
betur í BNA
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Sigurvegarar Hnakkaþons leggja til að fullvinna íslenskan
ufsa í Portland og selja hann maríneraðan, reyktan eða í
raspi til að grái liturinn sjáist ekki. Evrópubúar eru hrifnir af
ufsa en Bandaríkjamenn virðast vilja hafa hvítfiskinn sinn
skjannahvítan og hafa hingað til fúlsað við tegundinni.
Morgunblaðið/RAX
Erlendis fæst töluvert lægra verð fyrir ufsa en fyrir þorsk og ýsu, þó hann sé bragðgóður og ekki erfitt að elda.
Karl Már
Einarsson
Tinna Brá
Sigurðardóttir
Það var fyrir tilviljun að Tinna Brá tók þátt í Hnakkaþoninu. Samnem-
andi hennar vildi endilega spreyta sig og hvatti Tinnu til að vera með.
„Ég var ekki mjög spennt fyrir þessu og reyndi að finna afsökun til að
taka ekki þátt, en rak mig á það að ég gat ekki fundið neina góða
ástæðu til að gera þetta ekki.“
Tinna segist hafa þekkt mjög lítið til íslensks sjávarútvegs þegar
keppnin hófst og ekki hafa gert sér grein fyrir hvað störfin í greininni
geta verið fjölbreytt og viðfangsefnin spennandi. „Það fyrsta sem ég
þurfti að gera var hreinlega að fara inn á Google og fletta upp orðinu
„ufsi“ því ég vissi svo lítið um tegundina.“
Sýn Tinnu á sjávarútveginn virðist hafa gjörbreyst eftir keppnina. „Þá
daga sem að keppnin stóð yfir uppgötvaði ég að sjávarútvegurinn getur
verið ótrúlega spennandi og í nokkra daga voru fiskveiðar, -vinnsla, og
-sala það eina sem ég talaði um við fólkið í kringum mig,“ segir Tinna
og bætir við að í framtíðinni muni hún vafalítið fylgjast vandlega með
hvort áhugaverð atvinnutækifæri verði í boði í greininni fyrir manneskju
með hennar menntun.
Sér sjávarútveginn í nýju ljósi