Morgunblaðið - 25.01.2018, Síða 7

Morgunblaðið - 25.01.2018, Síða 7
Beitir frá Neskaupstað að veiðum. SJÁVARÚTVEGUR Beitir NK, sem Síldarvinnslan ger- ir út, kom til Neskaupstaðar að kvöldi þriðjudags með 2.550 tonn af loðnu. Allur aflinn er kældur og fór aflinn til vinnslu í í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu út- gerðarinnar. Tómas Kárason skipstjóri segir að vertíðin líti vel út. „Sú breyting hefur orðið að nú fiskast jafnt að nóttu sem degi en fyrr á vertíðinni fékkst lítið yfir nóttina. Nú bíður maður spenntur eftir niðurstöðu mælinga en það hlýtur að verða bætt við kvótann. Það er samdóma álit manna á skipunum að það sé töluvert mikið af loðnu á ferðinni og hún sést víða,“ segir í hann. helgivifill@mbl.is Landaði 2.550 tonnum MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2018 7SJÁVARÚTVEGUR Skiptirofi fyrir rafstöðvar. Sjálfræsibúnaður í skáp gangsetur rafstöðina sjálfkrafa við rof veitu. Rofarnir eru frá 40A til 2000A Ekki bíða eftir næsta óveðri - hringdu núna. Frá 1940 www.velasalan.is Sími 520 0000, Dugguvogi 4 , 104 Reykjavík C44 D5 / 35 kW C90 D5 / 72 kW Vélasalan býður upp á mikið úrval af rafstöðvum frá Cummins. Rafstöðvarnar eru fáanlegar frá 17 kW til 440 kW 50-60Hz, opnar eða í hljóðeinangruðu húsi með innbyggðan olíutank. GTEC Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Nýtt íslenskt sjávarsnakk með bjór- bragði er væntanlegt á markaðinn á næstu dögum frá fyrirtækinu Hjalt- eyri SeaSnack, sem er á Hjalteyri við Eyjafjörð. Snakkið er framleitt í samstarfi við bjórgerðina Kalda á Árskógssandi, sem er ögn utar í firðinum. Mun varan bera vöru- merkið Kaldi Beersnack. Forsvarsmenn fyrirtækisins eru þeir Jóhannes Valgeirsson fram- kvæmdastjóri og Rúnar Friðriksson verksmiðjustjóri, en bjórsnakkið er endapunkturinn á langri þróunar- vinnu, að þeirra sögn. Rúnar segist í samtali við Við- skiptaMoggann hafa gengið lengi með hugmyndina í maganum. „Mér hefur fundist vera gat á markaðnum þegar kemur að vöru sem passar vel með bjórsötri,“ segir Rúnar. Fengu allar tegundir frá Kalda Hann segir að fyrir nokkru hafi hann gengið á fund eigenda Kalda, og fengið hjá þeim flestallar teg- undir bjórs sem þar eru fram- leiddar, til að prófa. „Ég marineraði með bjórnum, kryddaði síðan fisk- inn og þurrkaði. Til að gera langa sögu stutta þá steinlá þetta. Ég hef gert ótal tilraunir í þessum efnum síðustu fimm árin, en aldrei fengið jafn sterk og jákvæð viðbrögð við nokkurri vöru,“ bætir Rúnar við. Snakkið verður selt í 30 gramma pokum. Jóhannes segir að fyrirtækið, sem stofnað var vorið 2017, fram- leiði sjávarsnakk, bæði fyrir menn og gæludýr. Bjórsnakkið er þriðja vara félagsins fyrir utan gælu- dýrasnakkið, en fyrir á markaðnum eru tvær vörur sem seldar eru und- ir öðrum vörumerkjum. „Við setjum örlítinn bjór í fiskinn og þá gerist einhver galdur, sem við áttum okk- ur ekki á hver er. Þetta verður bæði flauelsmjúkt og stökkt á sama tíma.“ Jóhannes segir að ef áætlanir ganga eftir þá sé varan núna ein- ungis sú fyrsta af mörgum í sam- starfi við Kalda. „Það er heil fjöl- skylda af vörum á teikniborðinu með margvíslegu kryddi.“ 100 kg framleidd í fyrstu Vinnsla snakksins fer þannig fram að kryddinu og bjórnum er blandað saman við fiskfars. Það er síðan steikt í kökum, og að lokum þurrkað. „Það eru margir aðrir að framleiða svona sjávarsnakk, en enginn að fara þá leið sem við för- um með að krydda snakkið. Við höf- um verið með nokkrar gerðir af kryddi fram til þessa en nú erum við komnir með það sem okkur hef- ur alltaf dreymt um – gott vöru- merki og góðan fisk. Við sjáum mik- il tækifæri í þessari vöru.“ Verið er að tryggja dreifingu nýja snakksins í verslanir á höfuðborgar- svæðinu að sögn Jóhannesar, auk þess sem vörunni verður dreift á Norðurlandi meðal annars. Hann segir að fyrsta kastið verði framleidd um 100 kg af nýja snakk- inu til að prófa viðbrögðin á mark- aðnum. Saga Bites í hólkum Margir gætu kannast við vörur fyrirtækisins, þó svo að þær séu ekki seldar undir vörumerki Hjalt- eyri SeaSnack. Til dæmis selst mik- ið magn af sjávarsnakki fyrirtæk- isins í Krónunni undir merkjum Góðmetis. Þá er vöru þeirra að finna undir merkjum Saga Bites, en það eru litríkir hólkar sem seldir eru í ferðamannaverslunum og í Fríhöfninni. „Þar erum við annars- vegar með upprunalega fiskinn okk- ar og hinsvegar fisk kryddaðan með red mix-kryddi. Þá er þriðja bragð- ið, Indian Curry, á teikniborðinu.“ Galdur þegar bjór er blandað við fisk Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Eigendum snakkgerðar- innar Hjalteyri SeaSnack fannst vanta á markaðinn nasl sem færi vel með bjór. Svarið var bjórsnakk í sam- starfi við bjórgerðina Kalda. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Bjórsnakkið er væntanlegt í búðir á næstu dögum. Agnes Anna Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri bruggsmiðjunnar Kalda á Árskógssandi, og Jó- hannes Valgeirsson, framkvæmdastjóri Hjalteyri SeaSnack, með nýja snakkið í bjórböðum Kalda á Árskógssandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.