Morgunblaðið - 25.01.2018, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2018 11FRÉTTIR
Af síðum
Það reyndist Carl Icahn vel að
fjárfesta í Xerox. Hann til-
kynnti um 780 milljóna dala
hlut í félaginu í nóvember 2015
og aðeins tveimur mánuðum
síðar hafði Xerox farið að ráð-
um hans og skipt vélbúnaðar-
og þjónustusviðum sínum í tvö
aðskilin fyrirtæki. Félagið lét
hann líka hafa nokkur sæti í
stjórninni möglunarlaust. Í dag
er Icahn stærsti hluthafi bæði
Xerox og Conduent, og er eign
hans samtals 1,2 milljarða dala
virði.
Eftir þessa góðu byrjun tók
Icahn að þreytast á dauflegum
rekstrartölunum. Hann hefði getað hagnast álíka vel á því að fjár-
festa í S&P 500 vísitölunni. Upp á síðkastið hefur farið að hrikta í
gengi hlutabréfa í Xerox, en í stað þess að innleysa hagnað og láta
hér við sitja krefst Icahn frekari breytinga. Hann vill losna við for-
stjórann, Jeff Cobson. Icahn hefur meira að segja látið hafa eftir sér
að ef Cobson verði ekki látinn fara „gæti það endað með tapi á fjár-
festingu okkar“. Fyrirtækið þurfi að taka af meiri festu á Fujifilm,
sem er samstarfsaðili í Japan. Icahn hefur lýst því yfir við Xerox að
nú þurfi að leiða hugann að mögulegri sölu.
Eins og hann getur verið ergjandi, þá er líklegt að í ljósi fyrri ár-
angurs og kaldrar rökhyggju muni Xerox gera eins og fyrir er lagt
af fjárfestinum stórlynda. Auk þess nýtur hann stuðnings Darwin
Deason, annars stórs hluthafa. Samruni gæti verið skynsamlegur,
enda starfar Xerox á þroskuðum markaði þar sem tækifærin eru
mörg. Wells Fargo-bankinn benti á það á síðasta ári að 18 minni
fyrirtæki deila með sér 40% af ljósritunarmarkaðinum.
Fátt bendir til að Xerox muni takast að snúa rekstrinum við upp á
eigin spýtur. Tekjur hafa lækkað um 5% á ári og á sama tíma fer
framlegðin minnkandi. Fregnir herma að fyrirtækið eigi í viðræðum
við Fujifilm um mögulegan nýjan samning eða sölu. En í ljósi mikils
bókhaldshneykslis sem kom upp þar á bæ ætti Xerox að leita fanga
víðar.
Hver annar gæti yfirtekið félagið? Hewlett-Packard, sem steig
sjálft það skref árið 2015 að skilja sig frá þjónustuarminum, er þegar
búið að kaupa prentaraframleiðslu Samsung á 1,1 milljarð dala. HP
ætti líka að geta kokgleypt Xerox fyrir 8 milljarða dala. Hreinar
skuldir HP eru hóflegar og rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði er 4,5 milljarðar dala. Canon er í svipaðri stöðu. Eini vand-
inn, rétt eins og með stíflaðan prentara, er að ákveða hver er
næstur í röðinni.
LEX
Xerox: Tekið afrit
Elon Musk, forstjóri Tesla, mun fá
meira en 50 milljarða bandaríkjadala
greiðslu ef rafbílaframleiðandanum
tekst að ná mjög metnaðarfullum
markmiðum um að hlutabréfaverðið
hækki tólffalt og að fyrirtækið skili
verulegum hagnaði.
Nýr samningur, sem gildir til 10
ára, kveður á um að Musk muni
hvorki fá laun né bónusgreiðslur
heldur eingöngu hlutabréf í Tesla.
Hann mun leysa þau til sín í tólf
greiðslum sem fara í gegn í hvert
skipti sem markaðsverð fyrirtækisins
nær ákveðnum mörkum og þegar
skilyrðum um tekjur og hagnað er
fullnægt.
Litið til markaðvirðis, tekna og
hagnaðar
Til að fá hæstu mögulegu greiðslu
þarf Musk að hækka markaðsvirði fé-
lagsins, sem núna er metið á 59 millj-
arða dala, upp í 650 milljarða og gera
það þar með að einu af verðmætustu
fyrirtækjum heims. Jafnframt þarf
hann að ná sölutekjum Tesla upp í
175 milljarða dala eða hagnaðinum
upp í 14 milljarða dala.
Markið er sett mjög hátt enda
áætlað að tekjur Tesla á árinu 2017
nemi 11,7 milljörðum dala og hagn-
aðurinn 399 milljónum dala.
Með samningnum er raðfrumkvöð-
ullinn Musk bundinn Tesla í einn ára-
tug til viðbótar. Fyrirtækið þarf að
hafa sig allt við um þessar mundir til
að brjóta sér leið inn á hinn almenna
rafbílamarkað með Model 3, og er á
sama tíma með fjölda nýrra ökutækja
í pípunum, þar á meðal vöruflutn-
ingabíl.
Með mörg járn í eldinum
Musk, sem til þessa hefur aldrei
þegið laun frá Tesla, er viðriðinn fjöl-
mörg önnur fyrirtæki, svo sem eld-
flaugafyrirtækið Space X þar sem
hann er forstjóri.
Hann þarf að gegna áfram stöðu
forstjóra, eða að öðrum kosti stöðu
stjórnarformanns og vöruþróunar-
stjóra samhliða, til að fá greitt sam-
kvæmt nýja samningnum.
Fyrirkomulagið er svipað og kveðið
var á um í samningi sem gerður var til
fimm ára árið 2012. Á samningstím-
anum hefur Tesla vaxið úr því að vera
metið á þrjá milljarða dala og selja um
300 bíla á ársfjórðungi, upp í að vera
59 milljarða dala fyrirtæki sem selur
100.000 bíla á ári.
Hins vegar miðaði fyrri samning-
urinn við hversu vel gengi að auka
framleiðslu og ná ákveðnum mark-
miðum í vöruþróun, á meðan nýja
samkomulagið byggist á að Tesla nái
hverju tekju- og hagnaðarmarkmið-
inu á fætur öðru.
50 milljarða dala bil
Hver hlutabréfagreiðsla hljóðar
upp á sem nemur 1% af heildarvirði
fyrirtækisins, eða um það bil 1,69
milljónum hlutabréfa, að sögn Tesla.
Musk getur fengið fyrstu greiðsl-
una, væntanlega eins milljarðs dala
virði, þegar markaðsvirði Tesla er
komið upp í 100 milljarða dala, og um
leið og tekst að ná öðru af tveimur
fjárhagslegum markmiðum fyrir-
tækisins: að tekjur fari upp í 20 millj-
arða dala eða að hagnaður nái 1,5
milljörðum dala.
Nýr hlutabréfapakki verður
greiddur út í hvert skipti sem mark-
aðsverð Tesla hækkar um 50 milljarða
dala til viðbótar og ákveðnum fjár-
hagslegum markmiðum verður náð.
Strangari tekjumarkmið
Tesla hefur tiltekið átta tekjumark-
mið og átta afkomumarkmið í samn-
ingnum.
Af þessum sextán markmiðum þarf
aðeins að ná tólf samfara því að verð-
bréfin hækki, til að Musk fái hámarks-
greiðslu í sinn hlut.
Það þýðir að hann gæti, fræðilega
séð, fengið hámarksþóknun með því
að ná sölutekjum Tesla upp í 175 millj-
arða dala, sem er meira en salan hjá
General Motors í dag, en með aðeins 6
milljarða dala hagnað, sem þýðir að
framlegðin væri ekki nema um 3%.
Þar sem samningurinn er þannig
gerður að Musk fær útborgun í hvert
skipti sem nýjum fjárhagslegum
markmiðum er náð, þá gæti Musk
fengið fyrstu átta greiðslurnar, sem
væru samtals 22 milljarða dala virði,
með því að ná sölutekjum upp í 175
milljarða, án þess að hagnaður fyrir-
tækisins þurfi að aukast á sama
tíma.
Musk fær risabónus
ef markmið nást
Eftir Peter Campbell
í London
Elon Musk mun hvorki fá
laun né bónusgreiðslur
fyrir störf sín í 10 ár, sam-
kvæmt nýjum ráðningar-
samningi við Tesla, en ef
markmið nást gæti hann
fengið allt að 50 milljarða
dala í hlutabréfum.
AFP
Eigi Elon Musk að fá 50 milljarða bandaríkjadala hámarksgreiðslu út úr nýjum tíu ára ráðningarsamningi við Tesla
þarf hann meðal annars að tólffalda markaðsvirði fyrirtækisins og gera það að einu því verðmætasta í heiminum.
)553 1620
Laugarásvegi 1, 104 Reykjavík
laugaas@laugaas.is • laugaas.is
Veisluþjónusta
Lauga-ás
Afmæli
Árshátíð
Gifting
Ferming
Hvataferðir
Kvikmyndir
Íþróttafélög
Við tökum að okkur að skipuleggja
smáar sem stórar veislur.
Lauga-ás rekur farandeldhús í hæsta
gæðaflokki og getur komið hvert sem
er á landinu og sett upp gæða veislu.
Er veisla framundan hjá þér?
Hafðu samband við okkur og við
gerum þér tilboð.