Morgunblaðið - 25.01.2018, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 25.01.2018, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 2018 13SJÓNARHÓLL Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | sala@postdreifing.is | postdreifing.is FJÖLPÓSTUR SEM VIRKAR *könnun Zenter apríl 2016. 61% landsmanna lesa fjölpóst 70% kvenna lesa fjölpóst 58% neytenda taka eftir tilboðum á vöru og þjónustu í gegnum fjölpóst* Dreifum sex daga vikunnar inn á 80.000 heimili MARKHÓPURINN ÞINN BÍÐUR EFTIR TILBOÐI FRÁ ÞÉR Hafðu samband og við gerum þér tilboð í þá þjónustu sem þér hentar BÓKIN Bruno Maçães, fyrrverandi ráð- herra Evrópumála í Portúgal, bendir réttilega á að merkileg þró- un er að eiga sér stað í samgöngum og vöruflutningum á milli Evrópu og Asíu. Fram að lok- um kalda stríðsins voru þessir tveir heimshlutar í reynd aðskildir, en í dag má ferðast landleiðina alla leið frá vesturströnd Portúgals að aust- urströnd Kína. Kínversk stjórn- völd hafa hleypt af stokkunum metn- aðarfullu verkefni, „Belt and Road“, sem á að stórbæta samgönguleiðir á landi á milli aust- urs og vesturs, og í reynd gera Evrasíu að einum risastórum markaði þar sem vörur streyma hratt og vel á milli landa. Hagur margra þjóða mun vænkast við þetta og valdajafnvægi heimsins breytast. Bók Maçães um þetta mál heitir The Dawn of Eurasia: On the Trail of the New World Order. Höfundurinn er ekki sá fyrsti til að koma auga á þá krafta sem myndu losna úr læðingi ef austrið færist nær vestr- inu, en hann er í hópi fárra hugsuða í samtímanum sem hafa rýnt í þá merkilegu þróun sem er nú þegar að eiga sér stað – þró- un sem virðist að stóru leyti vera að fara framhjá ráða- mönnum í Evrópu. Samt er strax farið að glitta í ákveðin vandamál sem má beinlínis tengja við að múrarnir milli austurs og vesturs eru teknir að falla, s.s. þann núning sem er á milli ESB og Rússlands vegna Úkraínu, og streymi flótta- manna frá Mið-Austurlöndum inn í Evrópu. Það er ljóst að þó þróunin lofi góðu, þá verður hún ekki áfallalaus. ai@mbl.is Samband Evrópu og Asíu mótar framtíðina Í Spegli Ríkisútvarpsins í liðinni viku var fjallað umathygliverðan fylgifisk #metoo frásagna, einkum erlendis, sem eru samningar meintra gerenda við þolendur um að ekki verði bornar fram kærur vegna m.a. nauðgana og kynferðislegrar áreitni og að þol- endur undirgangist, gegn greiðslu, að tjá sig ekki um ætluð brot við nokkurn mann. Fram kom í inngangi Spegilsins að lögmenn virtust oft eiga milligöngu um gerð slíkra samninga. Var formaður Lögmannafélags Íslands spurður að því hvort slík milliganga af hendi ís- lenskra lögmanna í málum hér á landi myndi fela í sér brot á siðareglum þeirra. Formaðurinn var nokkuð var- kár í svörum sínum en sagði þó að ef lögmaður vissi að umbjóðandi hans hefði gerst sekur um alvar- legt brot og óskað væri eftir milli- göngu lögmannsins um sam- komulag af framangreindu tagi, gegn lágri greiðslu til þolanda, sem jafnvel nyti ekki lögmanns- aðstoðar sjálf eða sjálfur, þá bæri lögmanni að hugleiða vel hvað hann væri að gera. Ég hygg að óhætt sé að kveða nokkuð fastar að orði um þetta. Ef lögmaður veit að umbjóðandi hans hefur gert sig sekan um refsiverða háttsemi, t.d. vegna þess að umbjóðandinn trúir honum fyrir því, og þess er óskað að lögmaðurinn hafi milligöngu um samningagerð sem hefur að mark- miði að þagga brotið niður og komast hjá því að taka af- leiðingum brotsins þá væri lögmanni rétt að neita slíkri bón. Með því að takast slíkt verk á hendur væri lög- maður annars að gerast þátttakandi í eftirmálum refsi- verðrar háttsemi og leggja beinlínis sjálfur af mörkum til þess að hylma yfir með brotamanni. Slíkt framferði getur ekki samrýmst góðum lögmannsháttum. Í þessu samhengi skipti engu máli hvort hin refsi- verða háttsemi telst meira eða minna alvarleg. Þá skiptir heldur ekki máli hvort greiðslan sem til stendur að bjóða er há eða lág, hvernig sem slíkt verður annars metið. Loks skiptir ekki máli hvort þolandinn, gagnaðil- inn við framangreinda samningsgerð, nýtur lögmanns- aðstoðar eða ekki. Lögmanni væri einfaldlega rangt að ljá atbeina sinn að samningagerð af framangreindu tagi enda vandséð hvernig hann væri með því að efla rétt og hrinda órétti, eins og það er orðað í 1. gr. siðareglna lögmanna. Einnig má nefna að hér á landi gildir sú meginregla að samningar milli manna mega ekki stríða gegn alls- herjarreglu og almennu velsæmi. Kröfur á grundvelli slíkra samninga njóta ekki réttarverndar og samningar sem samrýmast ekki meginreglunni eru ógildir eða ógildanlegir. Einnig í því ljósi væri atbeini lögmanns að svona samningagerð óeðlilegur en sömu skoðun lýsti formaðurinn í framangreindu viðtali, að því er varðaði alvarleg ofbeldisbrot. Í viðtalinu bar einnig á góma hvað þolanda bæri að gera ef fram kæmi tilboð um greiðslu gegn þögn. Viðkomandi væri þá rétt að leita a.m.k. lögmanns- aðstoðar áður en neitt væri ákveðið um viðbrögð en hún væri oft dýr og af þeim sökum lítt aðgengileg. Formaður LMFÍ lýsti þeirri skoðun sinni að auðvelda ætti aðgengi aðila að lögmannsþjónustu, á kostnað ríkisins eða með milligöngu réttaraðstoð- artrygginga. Undir þetta má taka en einnig bæta við að lögmenn mættu sjálfir að ósekju gefa sig að því í aukn- um mæli að liðsinna þeim sem höllum fæti standa, af einhverjum sökum, án endurgjalds. Til dæmis þol- endum brota af hendi vel stæðra eða valdamikilla ger- enda. Slík aðstoð, nefnd pro bono uppá latínu, á sér ríka hefð víða erlendis en síður hér á landi, þótt margir lög- menn veiti slíkt liðsinni meðfram öðrum störfum án þess að það fari ef til vill hátt. Hún ber, hvað sem öðru líður, umhyggju lögmanna fyrir framgangi réttlætis í samfélaginu fagurt vitni og hjálpar til við að efla rétt og hrinda órétti. Þögn gegn greiðslu og siðareglur lögmanna LÖGFRÆÐI Heimir Örn Herbertsson hrl. og sérfræðingur við lagadeild HR ” Með því að takast slíkt verk á hendur væri lög- maður annars að gerast þátttakandi í eftirmálum refsiverðrar háttsemi og leggja beinlínis sjálf- ur af mörkum til þess að hylma yfir með brotamanni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.