Morgunblaðið - 02.01.2018, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.01.2018, Blaðsíða 2
Áttu þér uppáhaldsflík? „Já, uppáhaldsflíkin mín er samfestingur úr Maje. Hann er svartur eins og svo margt í mínum fataskáp.“ Hver er besti veitingastaðurinn á Íslandi? „Ég er hrifin af Sumac sem er fágaður staður með sterkum innblæstri frá Beirút í Líbanon og einnig undir áhrifum frá Marokkó. Svo er Snaps langskemmtilegasti veitingastaðurinn hér á landi að mínu mati.“ Uppáhaldsmorgunmaturinn? „Ég borða uppáhaldsmorgunmatinn minn á hverjum degi: Tvö egg steikt á pönnu í kókosolíu og bolla af am- ericano-kaffi.“ Uppáhaldssmáforrit? „Ég elska allt sem er myndrænt og því verð ég að segja að Instagram sé uppáhaldssmáforritið mitt. Mér finnst langskemmtilegast að fylgjast með myndum af vinum mínum og það kemur mér sífellt á óvart hvað margir hafa náð tökum á að taka fallegar og einlægar myndir af því sem mestu máli skiptir fyrir þá.“ Hvað er á óskalistanum? Hvað gerirðu til að dekra við þig? „Til að dekra við mig finnst mér best að fara í hand- og fótsnyrtingu. Ég komst upp á lagið með það þegar ég bjó í Bretlandi. Einnig að fara í nudd. En það er eitthvað við fallega snyrtar hendur sem gerir það að verkum að mér finnst ég tilbúin fyrir daginn.“ Hvaða óþarfa keyptirðu þér síðast? „Ég fer vandlega með fjármuni og tek mér vanalega góðan tíma í að melta hlutina, þannig að það má segja að ég vandi mig mikið við innkaupin. Ég geri helst mistök ef boðið er upp á vörur sem ég held upp á með góðum af- slætti. Sem dæmi keypti ég mér 12 MAC-vörur á útsölu í Los Angeles. Þær voru á frábæru verði en ekkert af litunum hent- aði þegar ég kom heim með vörurnar. Maður lærir svo lengi sem lifir.“ Hver er uppáhaldsíþóttafatnaðurinn þinn? „Nike-vörurnar henta mér best því þær endast vel og eru vandaðar að mínu mati. Ég á bæði æfingaföt og -skó frá Nike og get þvegið vörurnar frá þeim og þurrkað í mörg ár án þess að sjáist nokkuð á þeim.“ Hvaða hlutur er ómissandi? „Að mínu mati er ómissandi að vera með fallega tösku. Fyrir utan góðan kinnalit og varalit. Taska bjargar engu en er ómiss- andi til að setja punktinn yfir i-ið. Að mínu mati eru því góð kaup að splæsa í vand- aða tösku.“ Hver er mest notaða snyrtivaran í snyrti- töskunni? „Í hreinskilni sagt er það Bobby Brown Ivory- baugafelarinn minn. Eftir að börnin fæddust gæti ég sleppt flestu því sem er í snyrtitöskunni öðru en honum. Og svo auðvitað rauði varaliturinn minn.“ Hver er uppáhaldsverslunin þín? „Maje er franskt tískuhús sem ég er mjög hrifin af. Þar fást fallegar og vandaðar vörur á góðu verði. Merkið er klassískt en samt aðeins öðruvísi. Ég kaupi vörur frá Maje bæði í Frakklandi og Bretlandi, en ef ég er hér heima finnst mér Zara góður kostur að versla í. Það er alltaf hægt að réttlæta kaupin þar.“ Hver er uppáhaldsborgin til að versla í? „London er mín uppáhaldsborg til að versla í, en hún er menningarlegur suðupottur þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi.“ Guðrún Björg Sigurðardóttir er falleg kona sem ber með sér að hún er mikill fagurkeri. Hún hefur ferðast víða og búið m.a. í Bretlandi. Um tíma heimsótti hún Rússland reglulega og varð fyrir miklum áhrifum þaðan. „Miroslava Duma er ein þeirra kvenna sem heilla mig mikið. Hún er frá Rússlandi og er flottur fjárfestir og frumkvöðull,“ segir Guðrún og ber með sér að hún tekur það besta frá hverjum stað sem hún ferðast á. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Fagurkerinn Guðrún Björg Rússneskur rauður Mac varalitur. Miroslava Duma er frumkvöðull og stjórnandi sem eftir er tekið. 2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2018 Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Marta María Jónasdóttir martamaria@mbl.is, Elínrós Líndal elinros@mbl.is Auglýsingar Katrín Theodórsdóttir kata@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Forsíðumyndina tók Saga Sig. Á þessum árstíma virðist maður einhvern veginn alltaf vera í sömu sporum. Búinn að borða yfir sig og leitar villuráfandi í myrkrinu að lausn lífsins. Það er í raun furðulegt að þokkalega hugsandi fólk skuli fara svona með sig. Að troða látlaust í líkamann gerir það að verkum að leiðin til betra lífs verður ennþá þyngri í upphafi árs og einfald- ara að draga bara sængina upp fyrir höfuð og éta vondu molana undir sænginni. Klassískasta áramótaheit allra tíma er að taka sig taki í ræktinni á nýju ári, hætta öllu ofáti og verða ógurlega lekker fyrir sumar- fríið. Því miður vaknar fólk yfirleitt upp við vondan draum í maí og áttar sig á því að lítið hefur gerst því planið sem gert var um ára- mótin var kannski ekki alveg nægilega vel skipulagt. Og kannski langaði okkur bara ekkert að breyta rútínunni okkar eða lífinu sjálfu. Ég held að heilsutrend 2018 verði heiðarleiki. Að fólk fari að segja sjálfu sér satt og hætti að lifa í blekkingu. Það ætti að þykja frekar glatað að nenna að vera til ef líf manns hangir saman á lyginni einni saman. Er það ekki? Ef við ætlum að ná markmiðum okkar þurfum við að skipu- leggja hvern dag og það þarf að ákveða helst daginn áður hvenær við ætlum að hreyfa okkur og hvað við ætlum að borða. Ef markmiðið er að taka hvítan janúar eða sykurlausan skiptir máli að stilla lífinu þannig upp að þetta reyni minna á. Ef við ætlum að vera sykurlaus þurfum við að borða meiri fitu og borða minna af kolvetnum til þess að blóðsykurinn haldist jafnari. Það gerir það að verkum að okkur langar minna í sætindi. Gott er líka að hafa hollt nesti í töskunni eins og hnetumix eða egg sem hægt er að grípa í þegar við verðum svöng. Ef við ætlum að breytast í íþrótta- álfinn í janúar skiptir máli að vera alltaf tilbúin og hafa æfingafötin með sér út í daginn. Um leið og við þurfum að fara heim að sækja þau þá eru meiri líkur á að við dettum út af sporinu. Ef við ætlum að ná markmiðum okkar þarf fókusinn að vera í lagi og um leið og við förum að svindla fer allt í sama farið aftur. Fyrir allmörgum árum fór vinkona mín í einkaþjálfun og allt gekk ógurlega vel. Hún léttist og léttist og einkaþjálfarinn sem hún keypti þjónustu af var að vonum himinlifandi með árangurinn. Einkaþjálfarinn var þó ekki betri að lesa aðstæður en svo að hann áttaði sig ekki á því að vinkona mín hvarf nánast vegna vanlíð- unar, ekki vegna framúrskarandi leikfimisæfinga. Hún hafði stuttu áður gengið í gegnum skilnað sem gerði það að verkum að henni leið svo illa, gat ekki borðað og varð að engu. Vinkona mín uppskar mikið hrós vegna góðs árangurs í „rækt- inni“ og allir vildu vita hvernig hún fór eiginlega að þessu. Einka- þjálfarinn fékk allt kreditið því á þessum tíma var heiðarleikinn ekki kominn í tísku og það þótti betra að láta allt líta vel út á yf- irborðinu. Ég er ekki viss hvernig áhugasama fólkið hefði brugðist við ef það hefði fengið að heyra sannleikann. Það segja nefnilega fáir alltaf alveg satt. „Ég hætti að borða og keðjureykti og léttist um 20 kíló,“ myndi náttúrlega aldrei neinn segja. Sem er synd. Lífið væri svo miklu áhugaverðara og betra ef all- ir létu bara vaða – sama hvað! Ljósmynd/Robert Herhold Keðjureykti og léttist um 20 kíló Marta María Jónasdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.