Morgunblaðið - 02.01.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 02.01.2018, Blaðsíða 6
R agnheiður notar nýja nálgun í sinni vinnu, sem felur í sér að greina uppsprettur áskorana og þjálfa leiðir til að takast á við þær, í stað þess að bregðast við birtingarmyndum þeirra. Okkur lék forvitni á að vita hvernig hún hjálpar fólki í þessu ferðalagi við að finna til- ganginn, ná árangri og verða hamingjusam- ara. Ekki nægileg næring út úr deginum „Margir kannast við að standa á ein- hverjum tímapunkti í lífinu í ákveðnu öng- stræti. Þeir ná kannski illa utan um þau fjöl- mörgu verkefni sem tilheyra daglegu lífi og/eða fá ekki nægjanlega næringu og gleði út úr deginum. Heilsufélagið hjálpar fólki meðal annars með því að styðjast við skil- greiningu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar- innar (WHO) á lífsgæðum. Þar er talað um fjóra þætti sem verða að vera í jafnvægi til að fólk lifi gæðalífi. Þessir þættir eru: Hreyf- ing, samskipti, svefn og næring,“ segir Ragn- heiður og bætir við: „Við höfum nýverið gefið út dagbók, sem hjálpar þér að taka reglulega stöðuna á þessum þáttum ásamt því að temja þér að skipuleggja daginn þannig að þú gerir meira af því sem þig langar að gera og því sem skiptir þig raunverulega máli í lífinu.Á nýju ári verður boðið upp á námskeið þar sem hugmyndafræðin að baki bókinni er skoðuð og notkun hennar þjálfuð.“ Á hlaupum allan daginn Hverjar eru helstu áskoranir fólks í lífinu í dag? „Oft er það ójafnvægi á einhverjum af þeim þáttum sem ég nefndi. Um leið og þú ert farinn að borða eitthvað sem hefur vond áhrif á þig, sofa lítið og minnka samskipti við fjölskyldu og vini og samskiptin snúast til dæmis einvörðungu um vinnutengd málefni þá myndast ójafnvægi sem þarf að vinda ofan af,“ segir Ragnheiður. Hvernig er birtingarmynd þessa ójafn- vægis? „Algengast er að fólk upplifi sig á hlaupum allan daginn. Það nær lítið að staldra við og njóta augnabliksins, sem er án efa ástæða þess að áhugi á hamingjufræðunum hefur vaxið á undanförnum árum.“ Ragnheiður segir að þetta skjóti skökku við: „Á sama tíma og við höfum aldrei staðið betur efna- Að hafa hugrekki til að njóta lífsins Ragnheiður Dögg Agnarsdóttirer stofnandi Heilsu- félagsins, sem sérhæfir sig í ráðgjöf til einstaklinga og fyrirtækja með það að markmiði að efla innihaldsríka velgengni. Ragnheiður, sem áður var framkvæmdastjóri í einu af stóru tryggingafélögunum á Íslandi, er menntuð í sálfræði og með meistaragráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands. Hún segir að með því að hafa skýra sýn á tilgang lífsins og vinna að stöðugum umbótum aukum við líkurnar á að njóta velgengni í daglegu lífi. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Ragnheiður Dögg Agnarsdóttir stofnandi Heilsufélagsins. 6 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2018 

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.