Morgunblaðið - 02.01.2018, Síða 8
ólíkum persónueinkennum að aukast,“
segir Ragnheiður og leggur áherslu á
að sjálfstraust stjórnanda sé lykillinn að
því að hann þori að rækta fjölbreytni á
sínum vinnustað. „Fjölbreytni er lykill-
inn að framtíðarsamkeppnishæfni fyr-
irtækja. Þú þarft sumsé að hafa hug-
rekki til að ráða fólk sem er ólíkt þér,
enda sýna rannsóknir að einsleitur hóp-
ur gerir þig veikari í samkeppni.“
En eru stjórnendur að velta fyrir sér
hamingju starfsfólks í dag?
„Kappsamir stjórnendur gera það.
Hamingjusamt starfsfólk leggur á sig
þetta aukaskref sem oft þarf til að
skara fram úr. Ánægt starfsfólk leggur
sig meira fram,
stendur sig betur
og er líklegra til
þess að vera áfram
við störf en þeir
sem eru óánægðir.“
Frá sæmilegu í
hamingjuríkt líf
Mér leikur for-
vitni á að vita
hvernig maður
breytir sæmilegu
lífi í hamingjuríkt
líf. Ragnheiður seg-
ir dagbókina geta hjálpað til við það. „Sérhver dagur
er gjöf sem manni ber að njóta. Dagbókin færir
manni ekki aukin lífsgæði eða hamingju, en hjálpar
manni að taka þessi litlu skref á degi hverjum í átt að
því lífi sem mann langar til að lifa.“
Hvað með Ragnheiði sjálfa? Hugar hún að eigin
hamingju, velferð og heilsu?
„Ég lifi samkvæmt hugmyndafræðinni sem ég
boða. Ég forgangsraða og nota aðferðafræðina sem
ég kenni. Flesta daga sest ég niður með dagbókina og
tek stöðuna. Ég passa mataræðið, hreyfi mig helst á
hverjum degi, sef sjö til átta tíma á sólarhring og hef
viðveruna mína á skrifstofunni yfirleitt sex tíma á
dag. Ég nota skorpuaðferðina í vinnu, vinn 25 mín-
útna lotur og stend upp í fimm mínútur á milli lota.
Það er mikilvægt að lifa vörumerkið og vera stöðugt
að þróa það,“ segir Ragnheiður og brosir.
2018 árið til að njóta
Hvernig sérðu árið 2018 fyrir þér?
„Ég er spennt fyrir árinu og hef góða tilfinningu
fyrir því. Ég tel einnig að fólk muni í auknum mæli
velta því fyrir sér hvað það vill fá út úr lífinu og stíga
út úr hamstrahjólinu ef það er mögulega á þeim stað,
enda ekki eftir neinu að bíða að njóta alls þess sem
lífið hefur upp á að bjóða.“
hagslega er sú ham-
ingja sem okkur er lof-
að með aukinni velmeg-
un ekki endilega alltaf
til staðar,“ segir hún og
bætir við: „Tæknileg sí-
tenging og snjalltækin
gera það að verkum að
vinnan rennur inn í
einkalíf fólks og það á
erfiðara með að vera í
augnablikinu og nær
því stundum ekki að
rækta samveruna við til
dæmis vini og fjöl-
skyldu eins vel og það
vildi.“
Hvað ætlar þú að gera
skemmtilegt í dag?
En á Ragnheiður góð
ráð fyrir okkur á nýju
ári?
„Já, að spyrja sig á
hverjum degi: Hvað
ætla ég að gera
skemmtilegt í dag?!
Heilsufélagið býður
reglulega upp á nám-
skeið þar sem til dæmis
spurningunum Í hverju felast mín lífsgæði?
og Hvað nærir mig? er velt upp. Einnig er farið yfir
leiðir til að setja þessi atriði í forgang hjá fólki,“ segir
Ragnheiður og bætir við: „Bara að hugsa þessa hugs-
un og velta því upp daglega, helst með því að skrifa
niður í dagbók, er ein áhrifaríkasta leiðin til að hreyf-
ast í átt að hamingju.“
En hvernig spilar meðvirkni inn í þennan mála-
flokk?
„Ég tel að það hvernig við upplifum væntingar sem
gerðar eru til okkar geri það verkum að við höfum til-
hneigingu til að detta í ákveðin hlutverk. Ég get verið
starfsmaður, foreldri, dóttir, maki og vinur. Við hvert
þessara hlutverka er handrit, og ef við höfum ekki
myndað okkur sjálfstæðar skoðanir á stöðu okkar í
þessum hlutverkum getum við lent í ógöngum. Við
eigum að móta okkar eigin hlutverk,“ segir Ragnheið-
ur.
Fjölbreytni er lykillinn að
framtíðarsamkeppnishæfni
Er pláss fyrir mismunandi persónuleika t.d. í hörð-
um fyrirtækjaheimi í dag?
„Já, hiklaust, að mínu mati. Þau fyrirtæki sem gera
ekki ráð fyrir því að fólk komi með persónuleika sinn
til vinnu ættu að sjálfvirknivæðast sem fyrst. Rann-
sóknir sýna að nú þegar er eftirspurn stjórnenda eftir
Lífsgæðadagbók
Heilsufélagsins er
fáanleg á heimasíðu
Heilsufélagsins sem og
á Facebook-síðu
félagsins.
Ragnheiður á góðri
stundu með Auði
Ólöfu dóttur sinni
og Óliver Degi þeg-
ar hann varð Ís-
landsmeistari með
KR í 2. flokki á
síðasta ári.
Ragnheiður ásamt dóttur sinni
Auði Ólöfu á brimbretti við
Huntington-stönd í Kaliforníu.
8 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2018
Verð frá 59.179
Vitamix blandararnir eiga
sér engan jafningja.
Mylja nánast hvað sem er.
Búa til heita súpu og ís.
Hraðastillir, prógrömm
og pulse rofi sjá til þess
að blandan verður ávallt
fullkomin og fersk!
Uppáhalds
græjurnar í
eldhúsinu
Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is