Morgunblaðið - 02.01.2018, Side 10

Morgunblaðið - 02.01.2018, Side 10
Kolbrún Björns- dóttir segir að fólk geti náð mikl- um árangri með því að fara eftir hennar ráðum. Þ að sem ég sé oft á þessum árstíma, eftir jólahátíðina, er að fólk er ennþá fast í sykr- inum og getur það tímabil enst allt fram í marsmánuð ef því er að skipta,“ segir Kol- brún og útskýrir: „Ég ráðlegg fólki að taka sykurinn fljótt út af matseðlinum. Ég mæli með að fara strax af stað með þetta og huga að því að borða kjarngóðar máltíðir yfir daginn til að finna ekki fyrir skorti eða hungri á þessu tímabili eftir jólin.“ Hvað mælir þú með að borða í janúar? „Ég mæli með hafragraut í morgunmat, en í staðinn fyrir að setja ávexti eða sætuefni á hann mæli ég með prótíni svo sem eggjarauðu, fræjum, hnetum eða jafnvel prótíndufti. Gott er að nota eina matskeið af fitu út á grautinn, til að mynda ólífuolíu. Mikilvægt er að borða jafnt yfir daginn svo blóðsykurinn falli ekki og sleppa rúsínum eða öðru sætu á grautinn. Hádegis- og kvöld- matur ætti að vera hollur og góður og seinnipartinn er gott að fylla magann með hrökkbrauði,“ segir Kolbrún. Hreinsun fyrir líkamann eftir jólin En mælir þú með hreinsun eftir jólin? „Ég er með fínar jurtablöndur sem hreinsa blóðið og ristilinn. Suttungamjöður er til dæmis mjög öflug jurta- blanda sem hreinsar blóðið og eykur lifrarstarfsemina þannig að hreinsunin í líkamanum örvast. Hún er einnig vökvalosandi og kemur sogæðakerfinu í betra lag. Á meðal efna í þessari blöndu eru mjólkurþistill, cayenne- pipar og spirulina, svo eitthvað sé nefnt,“ segir Kolbrún og bætir við að ef fólk hafi áhuga á að hreinsa ristilinn líka sé jurtablandan Vaðgelmir best til þess. „Vaðgelmir bókstaflega ryksugar ristilinn svo bakteríuflóran í hon- um verður heilbrigðari.“ Að leysa góðan vind En hvernig lætur líkaminn okkur vita að hann þurfi hreinsun? „Það er ekki víst að þú finnir einkenni en vindgangur gefur vísbendingu um að flóran sé í ólagi. Ef þú leysir vind og það kemur vond lykt má ætla að bakteríuflóran sé í ólagi. Flóran í meltingarveginum á að geta verið í lagi, en hjá fæstum er hún eins og hún á að vera, því mið- ur.“ Hver er ástæðan fyrir því? „Við erum hætt að borða lifandi mat. Það er í raun allt sótthreinsað. Við neytum ekki lengur ógerilsneyddrar mysu; góðar bakteríur eru á undanhaldi í mataræði okk- ar. Ef við lítum á menningarsögu mataræðis í löndunum í kringum okkur þá hefur alltaf verið eitthvað í mataræð- inu sem nærir góðar bakteríur en það er á undanhaldi í dag. Við lifum í eitruðum heimi. Því miður.“ Mælirðu þá með lífrænu fæði? „Það eitt og sér er því miður ekki nóg því þótt mat- aræðið sé lífrænt er eitur í loftinu, í fötum okkar, máln- ingu og húsgögnum. Og ekki hefur maður alltaf tækifæri til að borða allt lífrænt.“ Lifandi dæmi um kraftaverk mataræðis og jurta Kolbrún þekkir mýmörg dæmi þess að fólk hafi náð undraverðum árangri með hennar aðstoð. Hún nefnir dæmi um 60 ára konu sem leitaði til hennar með verki, þreytu og útstæðan maga. „Tilvera þessarar konu var þannig að hún taldi sig eiga að líða og líta út eins og hún gerði. Við ákváðum í sameiningu að hún myndi fara á strangt mataræði og það leið varla mánuður þar til verkirnir fóru, uppþemban einnig. Á einum mánuði fékk hún því orkuna sína aftur; hún var komin með sléttan maga og verkjalaus.“ Náttúran gefur okkur það sem við þurfum Hvað mælir þú með því að gera til að líða betur eftir jólin? „Við þurfum að hægja á okkur, fara fyrr að sofa og lifa rólegra lífi. Við lifum alltof hratt í dag og ætlum okkur um of í lífinu. Við þurfum bara að hætta að vera svona dugleg. Langflestir sem leita til mín eru með streitutengd vanda- mál. Við þurfum að vanda það sem við setjum ofan í okkur, nota mat með góðum bakt- eríum, taka olíur inn í mataræðið, hreyfa okkur og róa hugann.“ Kolbrún segir það áskorun fyrir almenning að hægja á sér, fara fyrr að sofa og lifa rólegra lífi. „Við lifum flest of hratt og það er of mikið að gera hjá okkur,“ segir Kol- brún og leggur áherslu á þá staðreynd að náttúran sé ein magnaðasta orku- lind sem við höfum aðgang að. „Samkvæmt ayurveda- fræðunum ætti þriðjungur af allri næringu (allt frá fé- lagslega þættinum yfir í fæðuna) að koma úr náttúrunni. Við eigum að fara meira út, finna fyrir vindinum, leika okkur í snjónum, finna fyrir rigningunni og koma við grasið. Snerta trén í garðinum okkar og muna að náttúr- an er gjöful, hvort heldur sem er fyrir skynfærin, melt- ingarfærin eða hugann,“ segir hún að lokum. Við ættum að leika okkur meira í snjónum Kolbrún Björnsdóttir er þjóðþekkt fyrir þekkingu sína á jurtum, en hún hefur starfað við grasa- lækningar frá 1993. Hún stofnaði Jurtaapótekið árið 2004 og hefur allar götur síðan lagt kapp á að fræða fólk um lækningamátt jurta. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Mynd/Thinkstock/Getty Images Suttungamjöður er jurtablanda sem hreinsar blóðið og eykur lifrarstarfsemina þannig að hreinsunin í líkamanum örv- ast. Vaðgelmir er jurtablanda sem hreinsar ristilinn. 10 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2018 Vilt þú létta á líkamanum eftir jólahátíðina? Weleda Birkisafinn hjálpar! Weleda birkisafinn er bragðgóður drykkur sem örvar vatnslosun og styður við náttúrulega út- hreinsun líkamans, birkisafinn léttir á líkamanum, losar bjúg og byggir hann upp. Það er mikilvægt fyrir líkamalega vellíðan. Í samhljómi við mann og náttúru. Lesið meira um lífrænar vörur á weleda.is Útsölustaðir Weleda eru apótek og heilsuverslanir um allt land. Vertu vinur okkar á facebook www.facebook.com/WeledaIceland

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.