Morgunblaðið - 02.01.2018, Síða 11

Morgunblaðið - 02.01.2018, Síða 11
ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2018 MORGUNBLAÐIÐ 11 Að líða vel í eigin skinni og vera sáttur við sjálfan sig er eftirsóknarvert en við eigum kannski misauðvelt eða erfitt með að komast á þann stað. Þegar við viljum bæta heilsufar og vellíðan almennt er gott að huga vel að nokkrum grundvallaratriðum sem geta skipt sköpum varðandi árangursríkt framhald. Jafnvægi á líkama og sál Það skiptir öllu máli að andleg líðan sé góð en þegar við erum ekki í góðu jafnvægi getur verið erfitt að koma mataræðinu í gott horf og svo öfugt. Við verðum að fara yfir nokkra þætti sem skipta okkur öll miklu máli og finna hvar þarf að laga hlutina til að vera í jafnvægi en þetta eru atriði eins og: • Sambönd (hjónaband, fjölskylda og vinir) • Atvinna – erum við sátt? • Fjármál / fjármálaáhyggjur • Hreyfing • Andleg líðan Samhliða skoðum við svo mataræðið og fyrstu skrefin þar snúast alltaf um það að taka út óæskilega næringu eins og sykur, unna matvöru og þau matvæli sem valda vanlíðan ásamt því að koma reglu á máltíðir. Meltinging er grunnurinn Nýjustu rannsóknir staðfesta alltaf betur og betur hversu mikilvægt það er að hafa meltingarfærin í lagi og hvaða áhrif þarmaflóran hefur bæði á líkamlega og andlega líðan. Að auki spilar hún stórt hlutverk í að viðhalda öflugu ónæmiskerfi. Við þurfum að geta brotið fæðuna vel niður til að næringarefnin frásogist en til þess að það gerist þarf þarmaflóran að vera í jafnvægi. Meltingarfærin eru því það fyrsta sem við þurfum að huga að til að geta nærst vel því um leið og upptakan er góð og við skilum frá okkur eðlilegum hægðum kemst betra jafnvægi á og höfum við stigið stórt skref í átt að heilbrigðara lífi. Það má líkja þessu við að við séum að byggja hús og við byrjum á grunninum. Því traustari og vel gerðari sem grunnurinn er, þeim mun auðveldara verður að byggja ofan á þannig að allt haldi vel. Góður og grænn á morgnana Til að koma sér af stað á morgnana getur hentað vel að gera sér góðan grænan drykk fullann af næringarefnum og trefjum sem er gott fyrir meltinguna. Vel samsettir drykkir hafa líka jákvæð áhrif á blóðsykurinn og hjálpa í baráttunni við sykurpúkann. Það þarf ekki að vera flókið að skella í góðan drykk og tekur varla meira en 2-3 mínútur. Grænn og vænn: 1 lúka blönduð græn blöð, spínat eða grænkál ½-1 banani (má vera frosinn) 1 bolli frosið mangó eða t.d. ananas 1-2 cm engifer Smá sítrónusafi 1,5 bolli vatn eða t.d. möndlu- eða haframjólk Ýmislegt má svo nota til að „poppa drykkinn aðeins upp“ en það getur verið smá kanill, turmerik, 1 msk hörfræ eða chiafræ, smá epladjús eða 2 döðlur til að sæta aðeins. Berjadrykkir eru líka góðir og um að gera að finna hvað hentar. Þreyta eftir máltíðir Ensím eru nauðsynleg í öllum efnaskiptum í líkamanum en í hráu fæði eru ensím sem verða óvirk við eldun. Þegar við borðum eldaðan og unninn mat notar líkaminn orkuna að finna og flytja ensím til meltingarvegarins en hver hefur ekki fundið fyrir þreytu eftir stórar máltíðir. Með hækkandi aldri gerist það líka að framleiðsla ensíma í líkamanum minnkar en ensímaskortur getur lýst sér í eftir farandi: à Brjóstsviði à Vindverkir à Uppþemba à Kviðverkir & ógleði à Bólur à Nefrennsli à Krampar í þörmum à Ófullnægt hungur à Exem à Höfuðverkur à Skapsveiflur à Liðverkir à Húðkláði à Húðroði à Svefnleysi Það er alltaf mikilvægt að borða „lifandi fæðu“ eins og grænmeti og ávexti með elduðum mat og fjölmargir hafa einnig fundið lausn í að taka inn meltingarensím til að auðvelda líkamanum verkið og nýta fæðuna betur. Þetta er einnig grundvallaratriði í átt að heilbrigðari lífsstíl. Meltingarensímin frá Enzymedica eru tekin inn með mat og hafa losað fólk við ótrúlegustu óþægindi og aukið orku til muna. Aðferð við vinnslu á ensímunum kallast Thera- Blend og er það einkaleyfisvarin aðferð sem gerir þeim kleyft að vinna á mismunandi pH- gildum í líkamanum og gerir þau 5-20 sinnum öflugri en önnur meltingarensím. Öflugasta viðbótin Fyrir utan bæði D-vítamín og Omega-3 fitusýrur sem er okkur lífsnauðsynlegt, eigum við að taka inn öfluga mjólkursýrugerla. Það er stöðugt álag á meltingunni okkar og atriði eins og streita, lyf, áfengi, sykur og koffein sem valda því að þarmaflórann er ekki í nógu góðu jafnvægi. Bio Kult mjólkursýrugerlarnir eru mjög öflugir og til að efla ónæmiskerfið enn frekar núna þegar kvef og pestir herja á okkur getur Bio Kult Candéa hjálpað mikið til. Auk 7 gerlastofna innheldur Candéa hvítlauk sem er bakteríudrepandi og öflugur fyrir ónæmiskerfið og GSE (Grapefruit Seed Extract) sem inniheldur öflug efnasambönd sem vinna gegn fjölmörgum bakteríutegundum, veirum og sveppum. Ávísun að betri líðan Byrjum árið vel og gerum smá aðgerðarplan. Tökum út sykurinn með hjálp græna drykksins til að byrja með og hugum svo að mataræðinu ásamt því að fara almennt yfir líðan okkar í leik og starfi. Vel valin bætiefni geta styrkt og auðveldað ferlið. Hér eru svo nokkrar þumalputta- reglur sem hægt er að hafa til hlið- sjónar en það er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi. àBorðum hreina fæðu àBorðum árstíðabundið àBorðum mat sem við þolum àBorðum reglulega, ekki eftir kvöldmat àEldum frá grunni àÁfengi í hófi àSykur í hófi àSleppum unnum matvælum og forðumst viðbættan sykur àDrekkum vatn àSofum nóg àForðumst streitu àHreyfum okkur – ferskt loft àRæktum sálina àSkoðum okkur ekki bara í speglinum, líka innávið: àHjónaband àVinna àFjármál àFélagslíf o.fl. – Meltingarensím Öflug ensím sem auðvelda meltingu, auka orku og draga úr einkennum fæðuóþols Digest Basic • Bætir meltingu og frásog næringarefna. • Gegn ónotum, lofti og uppþembu. • Henta einnig fyrir börn. Digest • Tvöfalt meiri styrkur en í Digest Basic. • Eykur orku. • Lítil hylki sem auðvelda inntöku. Digest Spectrum Hentar vel þeim sem glíma við ýmis fæðuóþol. Hentar allri fjölskyldunni. Styður meltingu á glúteini, laktósa, kaseini, próteini og fenól, sem og grænmetis og bauna. Viðurkennt af Autism Hope Aliance. • • • • Digest Gold • Söluhæsta meltingarvaran í Bandaríkjunum. • Gegn fjölþættum meltingarvandamálum • Handhafi Vity* verðlaunanna 10 ár í röð. • Inniheldur ATPro (ATP, Magnesíum Citrate, Coensime Q10, Phytase). *Sú vara sem smásalar kjósa oftast sem bestu vöru ársins í hverjum flokk Núna er tíminn til að njóta Hrönn Hjálmarsdóttir, heilsumarkþjálfi hjá Artasan. Að breyta lífsstílnum er langtímavinna sem best er að skipta niður í mörg lítil verkefni. Með þrautseigju og hjálp meltingarensíma og mjólkursýrugerla verður það árangursríkara. AU GL ÝS IN G „Í einföldu máli þá getum við gert meltingunni okkar og líkamanum stóran greiða með því að taka inn bæði ensím og mjólkursýrugerla reglulega.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.