Morgunblaðið - 02.01.2018, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2018 MORGUNBLAÐIÐ 11
Að líða vel í eigin skinni og vera sáttur
við sjálfan sig er eftirsóknarvert en
við eigum kannski misauðvelt eða
erfitt með að komast á þann stað.
Þegar við viljum bæta heilsufar og
vellíðan almennt er gott að huga vel að
nokkrum grundvallaratriðum sem geta
skipt sköpum varðandi árangursríkt
framhald.
Jafnvægi á líkama og sál
Það skiptir öllu máli að andleg líðan
sé góð en þegar við erum ekki í góðu
jafnvægi getur verið erfitt að koma
mataræðinu í gott horf og svo öfugt.
Við verðum að fara yfir nokkra þætti
sem skipta okkur öll miklu máli og
finna hvar þarf að laga hlutina til að
vera í jafnvægi en þetta eru atriði
eins og:
• Sambönd (hjónaband, fjölskylda og vinir)
• Atvinna – erum við sátt?
• Fjármál / fjármálaáhyggjur
• Hreyfing
• Andleg líðan
Samhliða skoðum við svo mataræðið
og fyrstu skrefin þar snúast alltaf um
það að taka út óæskilega næringu
eins og sykur, unna matvöru og þau
matvæli sem valda vanlíðan ásamt því
að koma reglu á máltíðir.
Meltinging er grunnurinn
Nýjustu rannsóknir staðfesta alltaf
betur og betur hversu mikilvægt
það er að hafa meltingarfærin í lagi
og hvaða áhrif þarmaflóran hefur
bæði á líkamlega og andlega líðan.
Að auki spilar hún stórt hlutverk í
að viðhalda öflugu ónæmiskerfi. Við
þurfum að geta brotið fæðuna vel
niður til að næringarefnin frásogist
en til þess að það gerist þarf
þarmaflóran að vera í jafnvægi.
Meltingarfærin eru því það fyrsta
sem við þurfum að huga að til að geta
nærst vel því um leið og upptakan
er góð og við skilum frá okkur
eðlilegum hægðum kemst betra
jafnvægi á og höfum við stigið stórt
skref í átt að heilbrigðara lífi. Það má
líkja þessu við að við séum að byggja
hús og við byrjum á grunninum.
Því traustari og vel gerðari sem
grunnurinn er, þeim mun auðveldara
verður að byggja ofan á þannig að
allt haldi vel.
Góður og grænn á
morgnana
Til að koma sér af stað á morgnana
getur hentað vel að gera sér
góðan grænan drykk fullann af
næringarefnum og trefjum sem er
gott fyrir meltinguna. Vel samsettir
drykkir hafa líka jákvæð áhrif á
blóðsykurinn og hjálpa í baráttunni við
sykurpúkann. Það þarf ekki að vera
flókið að skella í góðan drykk og tekur
varla meira en 2-3 mínútur.
Grænn og vænn:
1 lúka blönduð græn blöð, spínat eða
grænkál
½-1 banani (má vera frosinn)
1 bolli frosið mangó eða t.d. ananas
1-2 cm engifer
Smá sítrónusafi
1,5 bolli vatn eða t.d. möndlu- eða
haframjólk
Ýmislegt má svo nota til að „poppa
drykkinn aðeins upp“ en það getur
verið smá kanill, turmerik, 1 msk
hörfræ eða chiafræ, smá epladjús
eða 2 döðlur til að sæta aðeins.
Berjadrykkir eru líka góðir og um að
gera að finna hvað hentar.
Þreyta eftir máltíðir
Ensím eru nauðsynleg í öllum
efnaskiptum í líkamanum en í hráu
fæði eru ensím sem verða óvirk við
eldun. Þegar við borðum eldaðan
og unninn mat notar líkaminn
orkuna að finna og flytja ensím til
meltingarvegarins en hver hefur
ekki fundið fyrir þreytu eftir stórar
máltíðir. Með hækkandi aldri gerist
það líka að framleiðsla ensíma í
líkamanum minnkar en ensímaskortur
getur lýst sér í eftir farandi:
à Brjóstsviði
à Vindverkir
à Uppþemba
à Kviðverkir & ógleði
à Bólur
à Nefrennsli
à Krampar í þörmum
à Ófullnægt hungur
à Exem
à Höfuðverkur
à Skapsveiflur
à Liðverkir
à Húðkláði
à Húðroði
à Svefnleysi
Það er alltaf mikilvægt að borða
„lifandi fæðu“ eins og
grænmeti og ávexti
með elduðum mat og
fjölmargir hafa einnig
fundið lausn í að taka
inn meltingarensím til
að auðvelda líkamanum
verkið og nýta fæðuna
betur. Þetta er einnig
grundvallaratriði í átt
að heilbrigðari lífsstíl.
Meltingarensímin frá
Enzymedica eru tekin inn
með mat og hafa losað fólk
við ótrúlegustu óþægindi
og aukið orku til muna. Aðferð við
vinnslu á ensímunum kallast Thera-
Blend og er það einkaleyfisvarin
aðferð sem gerir þeim kleyft að vinna
á mismunandi pH- gildum í líkamanum
og gerir þau 5-20 sinnum öflugri en
önnur meltingarensím.
Öflugasta viðbótin
Fyrir utan bæði D-vítamín og
Omega-3 fitusýrur sem er okkur
lífsnauðsynlegt, eigum við að taka
inn öfluga mjólkursýrugerla. Það
er stöðugt álag á meltingunni okkar
og atriði eins og streita, lyf, áfengi,
sykur og koffein sem valda því að
þarmaflórann er ekki í nógu góðu
jafnvægi.
Bio Kult mjólkursýrugerlarnir eru
mjög öflugir og til að efla ónæmiskerfið
enn frekar núna þegar kvef og pestir
herja á okkur getur Bio Kult Candéa
hjálpað mikið til. Auk
7 gerlastofna innheldur
Candéa hvítlauk sem
er bakteríudrepandi
og öflugur fyrir
ónæmiskerfið og
GSE (Grapefruit
Seed Extract) sem
inniheldur öflug
efnasambönd sem
vinna gegn fjölmörgum
bakteríutegundum,
veirum og sveppum.
Ávísun að betri líðan
Byrjum árið vel og gerum smá
aðgerðarplan. Tökum út sykurinn
með hjálp græna drykksins til að byrja
með og hugum svo að mataræðinu
ásamt því að fara almennt yfir líðan
okkar í leik og starfi. Vel valin bætiefni
geta styrkt og auðveldað ferlið.
Hér eru svo nokkrar þumalputta-
reglur sem hægt er að hafa til hlið-
sjónar en það er allt hægt ef viljinn er
fyrir hendi.
àBorðum hreina fæðu
àBorðum árstíðabundið
àBorðum mat sem við þolum
àBorðum reglulega, ekki eftir
kvöldmat
àEldum frá grunni
àÁfengi í hófi
àSykur í hófi
àSleppum unnum matvælum og
forðumst viðbættan sykur
àDrekkum vatn
àSofum nóg
àForðumst streitu
àHreyfum okkur – ferskt loft
àRæktum sálina
àSkoðum okkur ekki bara í
speglinum, líka innávið:
àHjónaband
àVinna
àFjármál
àFélagslíf o.fl.
– Meltingarensím
Öflug ensím sem auðvelda meltingu, auka orku
og draga úr einkennum fæðuóþols
Digest Basic
• Bætir meltingu og frásog
næringarefna.
• Gegn ónotum, lofti og
uppþembu.
• Henta einnig fyrir börn.
Digest
• Tvöfalt meiri styrkur en í
Digest Basic.
• Eykur orku.
• Lítil hylki sem auðvelda
inntöku.
Digest Spectrum
Hentar vel þeim sem glíma við
ýmis fæðuóþol.
Hentar allri fjölskyldunni.
Styður meltingu á glúteini,
laktósa, kaseini, próteini og fenól,
sem og grænmetis og bauna.
Viðurkennt af Autism Hope
Aliance.
•
•
•
•
Digest Gold
• Söluhæsta meltingarvaran í
Bandaríkjunum.
• Gegn fjölþættum
meltingarvandamálum
• Handhafi Vity* verðlaunanna
10 ár í röð.
• Inniheldur ATPro (ATP,
Magnesíum Citrate, Coensime
Q10, Phytase).
*Sú vara sem smásalar kjósa oftast sem bestu vöru ársins í hverjum flokk
Núna er tíminn til að njóta
Hrönn Hjálmarsdóttir,
heilsumarkþjálfi hjá Artasan.
Að breyta lífsstílnum er langtímavinna sem
best er að skipta niður í mörg lítil verkefni.
Með þrautseigju og hjálp meltingarensíma og
mjólkursýrugerla verður það árangursríkara.
AU
GL
ÝS
IN
G
„Í einföldu máli þá getum við gert meltingunni okkar og líkamanum stóran greiða með því að taka inn bæði ensím
og mjólkursýrugerla reglulega.“