Morgunblaðið - 02.01.2018, Blaðsíða 12
A
ldurinn er svo ótrúlega
afstæður, mér finnst ég
alltaf bara 25 ára en lífið
verða skemmtilegra og
skemmtilegra eftir því
sem ég eldist. Er það
ekki bara alveg eins og það á að vera?
Þetta voru klárlega tímamót í mínu
lífi að verða fertug og í rauninni svo
mikil að ég upplifði smá svona núna
eða aldrei augnablik og þess vegna
ákvað ég að opna heimasíðu. Það er
svo fyndið hvað þessi aldur, sem
skiptir engu máli ýtir aðeins við
manni, ég viðurkenni það alveg. Ég
fagna því mjög að vera orðin fertug
og er bara mjög spennt fyrir nýju og
spennandi verkefni,“ segir Anna sem
er búin að vera lengi viðloðandi lík-
amsræktarbransann. Hún
byrjaði að æfa frjálsar íþróttir þeg-
ar hún var sex ára gömul og hefur
ekki stoppað síðan þá.
„Mamma lagði alltaf mikið upp úr
heilbrigðum lífsstíl. Sjálf er hún göm-
ul landsliðskona í sundi og alveg frá-
bær fyrirmynd. Ég hef trú á því að
þetta hafi haft mikil áhrif á mig,“ seg-
ir hún.
Anna segist ekki þekkja neitt ann-
að en að hugsa vel um heilsuna því
þannig hafi hún verið alin upp. Hún
æfði frjálsar íþróttir af kappi til 16
ára aldurs eða þangað til hún fór að
æfa þolfimi hjá Magnúsi Scheving í
Aerobix Sport. Anna segist hafa
fundið sjálfa sig á þessum tíma og
hóptímar hafi heillað hana upp úr
skónum.
„Þetta var fyrsta upplifun mín af
hóptímum og það varð ekki aftur snú-
ið. Mér fannst æðislegt að vera í tím-
um hjá Magga, þvílíkur kraftur, út-
geislun og gleði í hverjum einasta
tíma. Það er honum að þakka að ég
fetaði þessa braut því hann kom til
mín dag einn þegar ég var búin að
mæta til hans í hvern einasta tíma í
svona 2 ár, þá um 18 ára, og spurði
hvort ég væri ekki til í að fara að
kenna, ég yrði pottþétt góð í því.
Hann þurfti ekkert að sannfæra mig
meira og ég stökk til og upp frá því
jókst áhugi minn ennþá meira á heil-
brigðum lífsstíl og hreyfingu,“ segir
Anna.
Þaðan lá leiðin í Kennaraháskól-
ann þar sem Anna tók íþróttir sem
sérsvið. Í framhaldinu kláraði hún
einkaþjálfaranám og hellti sér út í
þjálfun og kennslu. Anna segir að það
gefi sér mikið að hjálpa fólki að temja
sér hollari lífshætti því hún veit að
það getur algerlega breytt lífi fólks.
Anna hefur upplifað mörg tímabil í
ræktinni. Það hefur nefnilega margt
breyst í líkamsræktarheiminum síð-
an Anna var 18 ára.
„Þegar ég byrjaði var þolfimin og
mjög flóknir pallatímar það allra
heitasta. Síðan tók tæbó við og fór ég
að kenna það og allt varð vitlaust.
Tímarnir stútfylltust og það var alltaf
svaka stuð og mikil orka í hverjum
tíma. Svo kom spinning og pallarnir
duttu út, Body Pump kom inn svo
HIIT tímar og tæbóið datt út. Barre-
tímar koma inn og svo framvegis.
Þetta fer í endalausa hringi því fólk
vill fá nýjungar og sækir í þær,“ segir
Anna og bætir því við að fólk verði
leitt á að gera alltaf það sama og þess
vegna skipti fjölbreytnin máli.
Anna opnaði vefinn annaeiriks.is á
fertugsafmælisdaginn sinn.
„Ég er búin að ganga með þennan
draum í maganum lengi að opna mína
eigin heimasíðu og hugsaði að ef ég
myndi ekki gera það núna þegar ég
yrði fertug þá myndi ég líklega aldrei
gera það. Ég ákvað að kýla bara á
það.
Á vefnum mínum býð ég upp á
þjálfun sem er ólík flestri fjarþjálfun
á Íslandi. Öll þjálfunin er í mynd-
bandaformi sem þýðir að ég leiði fólk
í gegnum hverja einustu æfingu frá
upphafi til enda sem minnkar til
dæmis
líkurnar á því að það hætti í
miðjum klíðum,“ segir Anna.
Æfingarnar eru hnitmiðaðar og
taka í kringum 20 mínútur.
„Þegar fólk kaupir 6 vikna þjálfun
þá getur það hlaðið æfingunum niður
og eignast þær. Mér finnst mjög það
mikilvægt því markmiðið mitt er að
hjálpa konum að koma hreyfingu og
hollari venjum inn í sinn lífstíl en síð-
an mín einblínir á þjálfun fyrir konur.
Hægt er að finna stakar æfingar sem
einblína á kvið- og bakvöðva, efri
hlutann eða rass- og lærvöðva en
einnig er ég með frábært æfingaplan
fyrir ungar stelpur á aldrinum 12-16
ára. Aðal-æfingaplanið mitt, „Í form
með Önnu Eiríks“ er 6 vikna fjar-
þjálfun sem inniheldur 3 æfinga-
myndbönd, ásamt aukaæfingu, til-
lögur að matseðli og svo framvegis.
Einnig er ég með uppskriftir, almenn
heilsuráð, innsýn í mína eigin rútínu
og líf, æfingafatnað, sniðug áhöld og
mínar æfingar,“ segir hún.
Anna er búin að ganga með þá
hugmynd í maganum í fjögur ár að
opna vefinn. Það gerðist þegar hún
var í fæðingarorlofi með dóttur sína,
sem nú er fjögurra ára. Hún fann
hvað það var mikil þörf því hún
komst ekki mikið í ræktina á þessum
tíma.
„Ég á fjögur börn og þegar ég var í
fæðingarorlofi með yngsta barnið
langaði mig að hreyfa mig en komst
„Mér
finnst
ég alltaf
bara 25“
Anna Eiríksdóttir deildarstjóri í Hreyfingu
varð fertug í lok árs. Hún stendur á tímamót-
um en á afmælisdaginn opnaði hún vefinn
annaeiriks.is þar sem hún er með uppskriftir,
æfingaplön og góð ráð. Vefurinn er ekki síst
fyrir þá sem búa á landsbyggðinni og hafa
ekki tök á að mæta í tíma hjá Önnu.
Marta María | mm@mbl.is
Ljósmyndir/Saga Sig.
12 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2018
Mangójógúrt
Ástæða þess að þú átt að velja lífræna jógúrt:
Lífrænar
mjólkurvörur
• Engin aukaefni
• Meira af Omega-3
fitusýrum
• Meira er af CLA
fitusýrum sem byggja
upp vöðva og bein
• Ekkert undanrennuduft
• Án manngerðra
transfitusýra
www.biobu.is