Morgunblaðið - 02.01.2018, Síða 13

Morgunblaðið - 02.01.2018, Síða 13
ekki frá litla barninu mínu og vantaði sárlega gott æfingaplan sem ég gæti hreinilega bara gert heima. Ég fór að kanna málið og sá hversu lítið væri í boði fyrir íslenskar konur. Mér finnst mjög margar konur tala um það að þær hafi ekki alltaf tíma til þess að fara í ræktina, þær eru kannski í fullri vinnu með heimili og börn eða til dæmis í fæðingarorlofi en langar samt til þess að hreyfa sig markvisst. Einnig langaði mig að gefa konum út á landi, sem hafa hreinlega ekki aðgang að líkams- ræktarstöð, tækifæri til þess að geta æft markvisst heima hjá sér,“ segir Anna. Anna telur að hún geti hjálpað konum mjög mikið, ekki bara þeim sem komast ekki í ræktina heldur líka þeim sem hafa ekki fundið rétta hillu í ræktinni. „Þegar maður finnur hreyfingu við sitt hæfi og finnst gaman að því sem maður gerir, ég tala nú ekki um finn- ur fyrir árangrinum sem fylgir því að æfa, þá er svo miklu auðveldara að hafa hreyfingu sem hluta af sínum lífsstíl. Einnig aukast líkurnar á því að halda góðri æfingarútínu þegar fyrirstaðan að komast á æfingu er engin. Mataræðið er gríðarlega stór þáttur í því að hugsa vel um heilsuna sína en með 6 vikna æfingaplaninu mínu fylgir matseðill sem hjálpar konunum að koma bættum mat- arvenjum inn í sinn lífsstíl. Ég er einnig með uppskriftarsíðu inn á vefnum sem ég vona að gefi konum góðar hugmyndir og hvetji þær enn frekar til þess að huga vel að mat- aræðinu sínu.“ Þegar Anna er spurð hver sé heit- asta þjálfunin í dag segir hún að hjólaþjálfun njóti mikilla vinsælda. „HIIT tímar halda áfram sínum vinsældum því fólk sem stundar slíka þjálfun nær svo góðum árangri. Þetta er lotuþjálfun þar sem unnið er af mikilli ákefð í skamma stund. Barre- tímar eru áfram gríðarlega vinsælir og mjög heitir í Bandaríkjunum og auðvitað á Íslandi. Í þessum tímum er unnið mikið við balletstöng en æf- ingarnar sem gerðar eru í þessum tímum eru með þeim betri sem ég hef komist í og ég elska að kenna þessa tíma. Lyftingar eru mjög heitar í dag og jóga hefur sjaldan verið jafn heitt og núna, sérstaklega Hot Yoga. Fólk er svolítið að blanda saman þjálfun sem er ótrúlega jákvætt, þá fer því síður að leiðast og nær oft ennþá betri árangri,“ segir Anna. Anna segir að fólk þurfi að finna sér hreyfingu við hæfi ef það á að ná árangri. „Fólk þarf að setja sér markmið og hugsa vel um mataræðið, borða hollt og fjölbreytt. Mjög gott er að finna sér æfingafélaga, fara til þjálfara, fara á lokað námskeið, kaupa sér þjálfun á netinu því það hjálpar mikið við að halda sér við efnið og það skiptir líka málið að vita hvað maður er að gera og að þjálfunin sé mark- viss.“ Anna hefur sjaldan verið í betri formi en akkúrat núna. Hún segir að vinnan haldi henni í formi. „Ég nýt þeirra forréttinda að starfa við það að hreyfa mig en það heldur mér klárlega í góðu formi auk þess sem ég passa vel upp á mat- aræðið, en án allra öfga samt. Ég reyni að borða fjölbreytt og passa upp á skammtastærðirnar en það er mjög oft ástæðan fyrir því að fólki gengur illa að komast í form, það borðar hreinlega of mikið. Það er svo gott að reyna að borða bara aðeins minna og oftar. Ég reyni að borða vel af grænmeti og ávöxtum, fæ mér hollan morgunverð eins og hafra- graut, fæ mér svo salat, boozt eða eitthvað létt í hádeginu og svo venju- legan heimilismat á kvöldin. Ég á fjögur börn og elda því alltaf á kvöld- in en við elskum mexíkóskan mat, eldum fisk, lasagna og þar fram eftir götunum. Ég reyni að forðast unnar vörur og nota fersk og góð hráefni sem mér finnst skipta máli. Ég er ekki alveg heilög því ég fæ mér alveg ís og súkkulaði af og til en það er nauðsynlegt að lifa líka. Þetta snýst bara um að finna hinn gullna með- alveg sem mér hefur tekist ágætlega að finna og hjálpar það mér að halda mér í fínu formi,“ segir hún. Finnur þú fyrir mikilli pressu að vera alltaf í toppformi? „Nei ég finn alls ekki fyrir neinni pressu að vera í toppformi. Hreyfing er frábær vinnustaður, það er ekki nein útlitsdýrkun í gangi þar heldur leggjum við meira upp úr fag- mennsku og að vera heilbrigð og þannig góð fyrirmynd fyrir okkar viðskiptavini.“ En ætli Anna hafi einhvern tímann ekki verið í formi? „Já, ég hef gengið í gegnum fjórar meðgöngur og því verið á þeim stað að þurfa að koma mér í aftur í form en ég viðurkenni að mér hefur alltaf fundist það ótrúlega skemmtilegt verkefni því ég starfa við það að hjálpa öðrum að komast í form og þess vegna hefur mér fundist mjög lærdómsríkt að vera á þeim stað sjálf.“ Þótt Anna leggi mikið upp úr því sjálf að vera í góðu formi segir hún að það skipti alltaf mestu máli að fólki líði vel. „Mér finnst alls ekki að allir þurfi að vera í einhverju svaðalegu formi, aðalmálið er að líða vel í eigin skinni og vera heilbrigður og hraustur.“ Þegar Anna er spurð út í líf sitt segir hún að það snúist fyrst og fremst um fjölskylduna. „Börnin mín fjögur eru öll í íþróttum og leggjum við hjónin mikið upp úr því að sinna áhugamálum þeirra, horfa á þau keppa og vera til staðar. Sam- verustundir með fjölskyldunni er það sem ég elska mest af öllu, mér finnst yndislegt að liggja öll upp í sófa og horfa saman á góða mynd eða fara saman í heita pottinn okkar þar sem við spjöllum saman og förum yfir daginn. Það eru litlu hlutirnir sem skila stundum svo miklu og muna að njóta hverrar stundar. Ég elska úti- veru, fara á skíði, ferðast, borða góð- an mat með góðum vinum, rölta í bænum, fara í brunch með fjölskyld- unni og njóta þess að vera til.“ Hvert er áramótaheitið þitt fyrir nýja árið? „Lifa í núinu og njóta þess að vera til! Sinna mér og mínum, ferðast og gera margt skemmtilegt með fjöl- skyldunni minni. Sinna nýja gæluverkefninu mínu, heimasíðunni minni, og reyna að ná til sem flestra kvenna og miðla reynslu minni og aðstoða þær eins og ég get.“ Hvað ætlar þú að gera í ár sem þú gerðir ekki í fyrra? „Úff, nei, það veit ég ekki, kannski skella mér í eitt hálfmaraþon með vinkonu minni,“ segir hún. ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2018 MORGUNBLAÐIÐ 13 Velkomin í okkar hóp! Innritun og nánari upplýsingar í síma 581 3730 og á jsb.is Markviss, fjölbreytileg og öflug líkamsrækt fyrir konur og stelpur sem tekur mið af þörfum ólíkra hópa og skilar auknum krafti, hreysti og vellíðan. Rétta þjálfunin sem veitir vellíðan! Vetrarkortið er komið í sölu - Innritun hafin á öll námskeið! Markmiðið með þjálfuninni okkar hjá Líkamsrækt JSB er skýrt. Hún miðast við að efla og styrkja líkamann þannig að hann þjóni okkur sem best og kalli fram þessa góðu tilfinningu og vellíðan sem er svo eftirsóknarverð. E F L IR / H N O T S K Ó G U R

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.