Morgunblaðið - 02.01.2018, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 02.01.2018, Qupperneq 15
hún tengist geðheilsunni okkar. Meltingarfærin eru oft kölluð okk- ar annar heili, enda er framleiðsla og upptaka seretóníns að stórum hluta í meltingarveginum. En seró- tónin er þekkt fyrir að minnka þunglyndi og auka virkni.“ Sjálfskærleikur sjálfsagður Jóhanna bætir við. „Í dag er al- menningur kominn með leyfi til sjálfskærleika,“ Jóhanna útskýrir. „Sjálfskærleikur er ekki það sama og sjálfselska. Þú mátt hugsa vel um sjálfan þig í dag, nærast vel og búa til þín eigin „hyggehorn“ eins og Danirnir kalla það. Þar sem þú átt stund með þér í hljóði. Ilm- kjarnaolíur eru einnig orðnar vin- sælar.“ Hvað gera ilmkjarnaolíur fyrir okkur? ,,Þær hafa áhrif á hvernig okkur líður. Sem dæmi er þekkt að úða lavender á koddan til að hjálpa til með svefn og sefja. Piparmynta er góð í lófann á skrifstofunni til að vakna og örva skynfærin. Svo eru margir farnir að blanda sín eigin ilmvötn sem er áhugavert.“ Kristilegur ilmkjarni Segðu mér meira um ilmvötn úr ilmkjarna? „Þú getur blandað þinn eigin ilm með ólíkum ilmkjörnum og fengið það sem virkar best fyrir þig hverju sinni. En svo erum við einn- ig með ilmvötn með blómadropum sem hefur áhrif á fínni orku. Það sem er mikilvægt að muna í þessu samhengi er að náttúran er með þetta allt fyrir framan okkur. En við erum búin að slíta okkur svo langt frá henni og jafnvel sögunni. Sem dæmi þá er frankincense olían mjög vinsæl hjá okkur um þessar mundir. Hún er með þessum hlýja sæta keimi. En olían er betur þekkt sem myrra úr kristnisögu. Myrra var það sem talað er um í 2. kafla Mattheusarguðspjalls, þegar vitringarnir færðu jesúbarninu ilm- kjarna. Þessi kjarnaolía er góð fyr- Vöruúrval í Systrasamlaginu er margskonar. Hér getur að líta náttúrusteina sem breyta vatni. ir heilann. Hún fer í gegnum blóðheilahindrunina og hefur hvetjandi áhrif á okkur.“ Þetta er falleg saga. Og gef- ur aukna þýðingu að tengja við það sem maður þekkir og þykir vænt um. Áttu góða hugmynd í lokin fyrir okkur til að tengja í gegnum náttúruna? „Hver og einn þarf að hafa sjálfstraust til að nota innsæið og finna það sem þarf til að tengjast inn á við betur og finna fyrir inn- sæinu. Það sem virkar alltaf best fyrir mig er að fara út að ganga. Þar losa ég út allar óþarfa hugs- anir. Og eftir því sem vindurinn slær fastar því meiri hreinsun verður. Ef ég fer eitthvað út af sporinu, þá tek ég eina góða gönguferð og helst nálægt sjó. Þar sest ég niður og gef mér nokkrar mínútur að hlusta á vísdóm hafsins í hljómunum sem verða þegar sjór- inn slæst við steinana,“ segir Jó- hanna í lokin. Það róar að hlusta á vís- dóm hafsins í hljómunum sem verða til þegar sjór- inn slæst við steinana. ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2018 MORGUNBLAÐIÐ 15 Með því að velja hráefnið af kostgæfni, nota engin aukaefni og hafa verkhefðir fyrri tíma í hávegum, framleiðum við heilnæmar og bragðgóðar sjávarafurðir. Söluaðilar: 10-11, Hagkaup, Iceland verslanir, Kvosin, Melabúðin, Nettó, Samkaup kjörbúðirnar, Samkaup krambúðirnar, Sunnubúðin, Pure Food Hall flugstöðinni Keflavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.