Morgunblaðið - 02.01.2018, Side 20

Morgunblaðið - 02.01.2018, Side 20
Morgunblaðið/Eggert Hvað varð til þess að þú fórst í heilsuátak? „Fyrir tíu árum gifti ég mig og fékk í brúðkaupsgjöf mjög fallegar myndir af konunni minni sem ég geymi í mínu prívat- dóti. Í lok ársins í fyrra var ég að gramsa í dótinu mínu og fann þessar fallegu myndir, ég man að ég leit í spegilinn á þessum tíma og leist ekkert á það sem ég sá. Þá datt mér í hug að gaman væri að koma sér í gott form og láta taka svip- aðar myndir af mér fyrir næstu jól. Þetta vatt svo upp á sig og hef ég verið nú í tæpt ár að vinna að því að vera í mínu besta formi. Ég vil einnig vera góð fyrirmynd fyrir börnin mín, þar sem þau sjá að hægt er að vera 50 ára pabbi með „sixpack“. Ég vildi einnig vera fyrirmynd í þeim iðnaði sem ég er í, en ég sel náttúrulega hollustuvöru, er í heilsuiðnaði. Feitur fisksali er ekki sú fyrirmynd sem mig langaði að vera.“ Hvað gerir þú vikulega til að halda þér í formi? „Fyrst þurfti ég einfaldlega að koma mér í form. En viku- lega fer ég í einkaþjálfun í Hreyfingu, hjá Jóni Oddi, nánar tiltekið þrisvar í viku. Síðan æfi ég tvisvar í viku sjálfur þar sem ég er að leggja áherslu á brennslu. Markmiðið mitt er ekki að safna vöðvum, heldur að brenna fitu. Vera venjulegur grannur flottur Íslendingur.“ Hvernig er mataræðið þitt? „Ég þurfti að taka mataræðið mitt í gegn. Það var númer eitt, tvö og þrjú hjá mér. Ég þáði öll ráð frá Jóni Oddi, Við byrjuðum að taka út kolvetni, brauð, pizzu, allt vín, bjór og nammi. Ég drakk mikið mjólk, sykrað gos og fleira. En í dag er aðaldrykkurinn minn vatn. Ég er ekki alveg hættur í öllu, en það sem ég geri í dag er meira spari. Svo borða ég mikið af hollum og góðum fiski.“ Hver er ein helsta breytingin andlega? Helsta breytingin andlega, er sú að ég er kraftmeiri. Ég er með betri einbeitingu, meiri orku og úthald í vinnu. Meiri andleg vellíðan er það sem maður sækir í. En þar sem ég hef misst ein 15 kg á þessu ári, þá hefur kostað sitt að kaupa ný föt sem maður passar í.“ Hver er helsta breytingin líkamlega? „Ég er 15 kg léttari og allur að styrkjast. Ég er heil- brigður, venjulegur og hraustur. Ég valdi mér einkaþjálfara með útlit eins og ég vildi fá og það var nákvæmlega það sem ég fékk út úr þessari vinnu. “ Hvaða merkingu hefur það fyrir þig að vera í góðu formi? „Ég hef nú aldrei verið með lítið sjálfstraust, og ekki minnkaði það með þessu framtaki. En já, maður er bara ánægðari með sjálfan sig, lífið og tilveruna. Ég viðurkenni að það var erfitt að koma sér af stað, en nú er þetta hluti af lífs- stílnum mínum.“ Hvert stefnir þú heilsufarslega á nýju ári? „Ég ætla að halda áfram að halda mér í formi, þetta er minn lífsstíll og verður það áfram. Ekkert flóknara en það,“ segir Kristján að lokum. Kristján Berg Ásgeirsson er stofnandi Fiskikóngsins. Hann er giftur Sólveigu Lilju Guðmundsdóttur og saman eiga þau sex börn, þau Alexander Örn, Eyjólf, Ægi, Ara, Kjartan og Kára. Kristján hefur vakið athygli síðustu misserin fyrir að hafa tekið heilsuna í gegn. Hann segir hér frá því hvað hann er að gera. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Með meiri orku, einbeitni og úthald „Ég valdi mér einka- þjálfara með útlit eins og ég vildi fá og það var nákvæmlega það sem ég fékk út úr þessari vinnu.“ 20 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2018 REYKJAVÍK | SUÐURNES | SELFOSS | AKUREYRI | j akkafata joga . i s Heildarlausnir fyrir vellíðan á vinnustað Jakkafatajóga tímar Happy Hips tímar Nudd á vinnutíma Sjúkraþjálfari sem aðstoðar við að stilla borð og stóla

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.