Morgunblaðið - 02.01.2018, Síða 20
Morgunblaðið/Eggert
Hvað varð til þess að þú fórst í heilsuátak?
„Fyrir tíu árum gifti ég mig og fékk í brúðkaupsgjöf mjög
fallegar myndir af konunni minni sem ég geymi í mínu prívat-
dóti. Í lok ársins í fyrra var ég að gramsa í dótinu mínu og
fann þessar fallegu myndir, ég man að ég leit í spegilinn á
þessum tíma og leist ekkert á það sem ég sá. Þá datt mér í
hug að gaman væri að koma sér í gott form og láta taka svip-
aðar myndir af mér fyrir næstu jól. Þetta vatt svo upp á sig
og hef ég verið nú í tæpt ár að vinna að því að vera í mínu
besta formi. Ég vil einnig vera góð fyrirmynd fyrir börnin
mín, þar sem þau sjá að hægt er að vera 50 ára pabbi með
„sixpack“. Ég vildi einnig vera fyrirmynd í þeim iðnaði sem
ég er í, en ég sel náttúrulega hollustuvöru, er í heilsuiðnaði.
Feitur fisksali er ekki sú fyrirmynd sem mig langaði að
vera.“
Hvað gerir þú vikulega til að halda þér í formi?
„Fyrst þurfti ég einfaldlega að koma mér í form. En viku-
lega fer ég í einkaþjálfun í Hreyfingu, hjá Jóni Oddi, nánar
tiltekið þrisvar í viku. Síðan æfi ég tvisvar í viku sjálfur þar
sem ég er að leggja áherslu á brennslu. Markmiðið mitt er
ekki að safna vöðvum, heldur að brenna fitu. Vera venjulegur
grannur flottur Íslendingur.“
Hvernig er mataræðið þitt?
„Ég þurfti að taka mataræðið
mitt í gegn. Það var númer eitt, tvö
og þrjú hjá mér. Ég þáði öll ráð frá
Jóni Oddi, Við byrjuðum að taka út
kolvetni, brauð, pizzu, allt vín, bjór
og nammi. Ég drakk mikið mjólk,
sykrað gos og fleira. En í dag er
aðaldrykkurinn minn vatn. Ég er ekki alveg hættur í öllu, en
það sem ég geri í dag er meira spari. Svo borða ég mikið af
hollum og góðum fiski.“
Hver er ein helsta breytingin andlega?
Helsta breytingin andlega, er sú að ég er kraftmeiri. Ég er
með betri einbeitingu, meiri orku og úthald í vinnu. Meiri
andleg vellíðan er það sem maður sækir í. En þar sem ég hef
misst ein 15 kg á þessu ári, þá hefur kostað sitt að kaupa ný
föt sem maður passar í.“
Hver er helsta breytingin líkamlega?
„Ég er 15 kg léttari og allur að styrkjast. Ég er heil-
brigður, venjulegur og hraustur. Ég valdi mér einkaþjálfara
með útlit eins og ég vildi fá og það var nákvæmlega það sem
ég fékk út úr þessari vinnu. “
Hvaða merkingu hefur það fyrir þig að vera í góðu formi?
„Ég hef nú aldrei verið með lítið sjálfstraust, og ekki
minnkaði það með þessu framtaki. En já, maður er bara
ánægðari með sjálfan sig, lífið og tilveruna. Ég viðurkenni að
það var erfitt að koma sér af stað, en nú er þetta hluti af lífs-
stílnum mínum.“
Hvert stefnir þú heilsufarslega á nýju ári?
„Ég ætla að halda áfram að halda mér í formi, þetta er
minn lífsstíll og verður það áfram. Ekkert flóknara en það,“
segir Kristján að lokum.
Kristján Berg Ásgeirsson er stofnandi Fiskikóngsins. Hann er giftur Sólveigu
Lilju Guðmundsdóttur og saman eiga þau sex börn, þau Alexander Örn,
Eyjólf, Ægi, Ara, Kjartan og Kára. Kristján hefur vakið athygli síðustu misserin
fyrir að hafa tekið heilsuna í gegn. Hann segir hér frá því hvað hann er að gera.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Með meiri orku,
einbeitni og úthald
„Ég valdi mér einka-
þjálfara með útlit eins
og ég vildi fá og það
var nákvæmlega það
sem ég fékk út úr
þessari vinnu.“
20 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2018
REYKJAVÍK | SUÐURNES | SELFOSS | AKUREYRI | j akkafata joga . i s
Heildarlausnir fyrir
vellíðan á vinnustað
Jakkafatajóga tímar
Happy Hips tímar
Nudd á vinnutíma
Sjúkraþjálfari sem
aðstoðar við að stilla
borð og stóla