Morgunblaðið - 02.01.2018, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2018
B
ootcamp fyrir peningabudduna
er fyrir þá sem vilja tileinka sér
nýjar leiðir til að nálgast fjár-
málin. Þessi lausn er fyrir þig,
hvort sem þú vinnur fyrir aðra
eða átt þitt eigið fyrirtæki og
ert með ágætis tekjur en samt sem áður
upplifir þú að peningar stýra lífi þínu fremur
en þú sért við stjórnvölinn. Með öðrum orð-
um: Þú greiðir reikningana og stendur skil á
þínu en þú nærð ekki að leggja fyrir.
Þú lifir jafnvel á kreditkortinu og það má
lítið út af bregða til að allt fari úr skorðum í
peningamálunum,“ segir Edda og bætir við:
„Jól, sumarfrí og annar tími ársins þar
sem útgjöldin eru hærri en ella gætu verið
áskorun. Þú átt líklega ekki varasjóð ef eitt-
hvað kemur upp á.“
Edda segir að fólk eigi það til að álasa sér
fyrir ástandið.
„Þú segir jafnvel við þig að þú ættir að
geta betur en útkoman er gjarnan sú að þú
missir móðinn og upplifir jafnvel ráðaleysi
gagnvart peningamálunum,“ segir hún.
Edda þekkir þetta ástand
af eigin raun.
„Ég lifði á kreditkorti í
mörg ár og átti aldrei
varasjóð. Þegar eitt-
hvað kom upp á, sem
gerist gjarnan í lífinu,
fór ég í að redda hlut-
unum. Einn daginn
áttaði ég mig á því að
ég var orðin nokkuð
slungin í að redda fjármál-
unum en mig skorti al-
gjörlega hæfni til að skipu-
leggja og halda utan um fjármálin
að öðru leyti. Ég hafði takmarkaða
yfirsýn yfir helstu kostnaðarliði og
inn á milli átti ég það til að eyða of
miklu.
Þrátt fyrir að vera nokkuð markmiðadrifin
og hafa náð ágætis árangri á mörgum svið-
um hafði ég aldrei sett mér peningamark-
mið. Það hafði raunar aldrei hvarflað að mér.
En þáttaskilin urðu þegar ég tók ákvörðun
um að verða fjárhagslegur
leiðtogi í eigin lífi. Þá fór
ég að átta mig á sam-
hengi sem hafði áður
verið mér algjörlega
hulið. Nefnilega það
að hugmyndir mínar
um peninga höfðu
áhrif á væntingar
mínar til lífsins. Einn-
ig það að peninga-
hegðun mín hafði stjórn-
ast af þessum sömu
peningahugmyndum og vænt-
ingum.
Mér varð það ljóst að ef ég vildi
breyta útkomunni varð ég að ráð-
ast að rótum vandans og breyta
hugmyndum mínum um peninga.“
Bootcamp fyrir peningabudduna er fyrir
þá sem þrá að breyta til og upplifa að þeir
geti öðlast stjórn á fjármálunum.
„Námskeiðið er þannig byggt upp að þú
færð tæki og tól í hendurnar til að skilgreina
núverandi samband þitt við peninga og átta
þig á því hvernig það hefur haft áhrif á líf
þitt. Þú lærir að gera upp peningasöguna
þína og segja skilið við peningahugmynd-
irnar þínar áður en þú ættleiðir nýjar hug-
myndir sem koma til með að styrka samband
þitt við peninga og hjálpa þér að breyta pen-
ingahegðun þinni til framtíðar.
Þú lærir að tileinka þér aðferðir til að taka
fjárhagslegar ákvarðanir sem eru í samræmi
við það sem skiptir þig mestu máli. Þú lærir
einnig að setja þér raunhæf peningamark-
mið,“ segir hún.
Edda segir að Bootcamp fyrir pen-
ingabudduna sé stutt og hnitmiðað námskeið
sem hentar þeim sem er alvara með að
marka ný spor í fjármálunum á nýju ári.
„Þetta er fyrir þá sem vilja varanlegar
breytingar og þrá að öðlast fjárhagslegt
heilbrigði,“ segir hún.
Námskeiðið hefst miðvikudaginn 10. jan-
úar.
Nánari upplýsingar og skráning á vefsíðu
Edda Coaching, www.eddacoaching.com.
Bootcamp fyrir
peningabudduna
Fjármál geta valdið mikilli streitu og það er margsannað að
streita hefur heilsuspillandi áhrif, bæði andlega og líkamlega.
Edda Jónsdóttir, leiðtogamarkþjálfi hjá Edda Coaching, er með
námskeið fyrir fólk sem vill ná tökum á fjármálum sínum.
Marta María | mm@mbl.is
Thinkstock/Getty images
Edda Jónsdóttir
leiðtogamarkþjálfi
hjá Edda Coacing.
Apple-snjallúrið series 3
Eitt áhugaverðasta snjallúrið á markaðnum í
dag kemur frá Apple. Þeir sem nota þetta úr
segja að þú hafir varla gert æfingar ef þú átt
ekki gögn um það. Þetta nýja úr fylgir þeim
hvert fótmál, enda safnar það upplýsingum um
hjartslátt á mínútu, hvort sem er í hvíld eða við
æfingar. Úrið þykir mikilvægt til að mæla
hversu góðu formi þú ert í.
Bose, þráðlaust heyrnartæki
Fyrir þá sem eru mikið fyrir að upplifa hljómgæði
þegar þeir æfa. Bose, þráðlausu heyrnartækin,
eru þau bestu á markaðnum. Heyrnartólin
tengjast við símann eða apple-úrið í gegnum
bluetooth.
Fitbit Flex 2
Fitbit Flex 2, gefur upplýsingar um hvað þú hefur gengið
mikið í dag, ferðast langt og sýnir þér vefmynstrið þitt á
síðustu vikum.
ProSource, vöðvarúlla
Mikilvægt er að huga vel að vöðvunum á
milli æfinga og á þessum áratug er góð
rúlla gulls ígildi. Þessi tegund
þykir sú allra besta á markaðnum í
dag. Mundu: að rúlla vöðvana
kemur í veg fyrir meiðsli og er eins
og nudd. Við erum ekki að segja
að það komi í staðinn fyrir nudd en
þetta er sagt hafa góða virkni.
Tæknin í ræktina 2018
Frá
morgnifyrir allafjölskylduna í
þínu
hverfi t i l kvölds
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Laugarnar í Reykjavík
NÆRING FYRIR LÍKAMA OG SÁL