Morgunblaðið - 02.01.2018, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 02.01.2018, Qupperneq 24
Nike-íþróttalínan er einstaklega falleg um þessar mundir og end- ist vel við mikla notkun og þvott. Hér eru teknir saman nokkrir hlutir sem taldir eru standa upp úr frá þessu vandaða íþróttavörumerki. Elinros Lindal | elinros@mbl.is Nike flex-herrabuxur í golfið Þessar flottu golfbuxur eru fáanlegar í þremur litum. Efnið teygist á fjóra vegu. Buxurnar eru þægilegar og með mittisteygju. Nike therma essential- herrabuxur í hlaup Þessar hlaupabuxur eru gerðar úr hitajafnandi efni, mjúkar og góðar. Góðar í kuldann. Þær eru laus- ar, sem þykir þægilegt í hlaupum. Nike earoLoft-kvenmannsjakki í hlaup Hlaupajakki í anda bomber-jakkalínunnar. Heldur hita á þér og hentar vel í æfingar og hlaup en einn- ig flottur yfir létta hettupeysu o.fl. Til í gráu og svörtu. Nike pro sparkle kvenbuxur á æfingar Þessar æfingabuxur, eru gerðar úr efni sem er gott fyrir miklar æfingar þar sem efnið er svita- jafnandi. Þær teygjast á fjóra vegu. Enginn er að fara að missa af þér í ræktinni í þessum. Fallegur og vandaður íþróttafatnaður 24 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2018 É g var vatnshræddur í byrjun en hef læknast af því. Svo hefur sjó- sundið bara undið upp á sig. Ég hef bætt mig í sundi töluvert, farið í þríþraut og eflst að öllu leyti við þetta,“ segir Viðar. Heilsufarsmælingar koma vel út Hann er hógvær þegar kemur að eigin afrekum í sundi og segist ekki vera sá harðasti í sjónum. Enda sé hann grannur að eðlisfari. „Allar heilsufarsmælingar koma vel út hjá mér og hópnum sem ég syndi með vikulega. Ég hef tekið einn kannski tvo veikindadaga í vinnunni frá því ég byrjaði að synda í köldum sjónum og það sama á við um sundhópinn minn, það er lítið um veikindi í honum. Það er kannski erfitt að segja hvað er orsök og hvað afleiðingar í þessu en eitt er víst að sund í köldu bæt- ir.“ Viðar segir að sund í sjó örvi blóðrásina og hann fái mest út úr því að fara ofan í ef sjórinn er kaldur. „Þetta núllstillir mann út vikuna. Eins minnkar kaldur sjór bólgur í vöðvum og liðum og flýtir endurheimt. Ég hef margoft upp- lifað að æfa 10-20 tíma á viku og fundið muninn sem verður eftir sjó- inn.“ Sjósund breytir hvítu fitunni í brúna fitu „Eins hefur verið talað um hvernig kalt vatn breytir hvítu fit- unni í brúna fitu,“ segir Viðar. En glöggir lesendur vita að brúni fitu- vefurinn er gerður til að halda á okkur hita. „Ýmsar rannsóknir styðja þetta. Og útlitið verður betra með brúnu fitunni. Börn fæð- ast með brúna fitu til að halda á þeim hita,“ segir hann til útskýr- ingar. Viðar syndir í hóp sem telur á milli 5-10 manns, þeir eru sex úr Íslenskri erfðagreiningu sem synda reglulega í Nauthólsvík. Viðar segir forstjóra fyrirtækisins ekki vera einn þeirra. „Kári Stefánsson er ekki hrifinn af þessu uppátæki okk- ar. En við höfum ennþá ekki hlotið neinn skaða af nema síður sé,“ seg- ir þessi hrausti sundmaður í lokin. Morgunblaðið/Árni Sæberg Sjóböð og áhrif þeirra á heilsuna Viðar Bragi Þorsteinsson starfar hjá Íslenskri erfðagreiningu og hefur stundað sjóböð vikulega í 13 ár, eða frá árinu 2004. Hann telur lækningamátt kalda vatnsins mikinn og hefur ein- ungis tekið sárafáa veikindadaga þau ár sem hann hefur stundað sjóböð. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Viðar Bragi stundar sjósundið iðulega með vinnufélögum sínum. //////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////// 

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.