Morgunblaðið - 02.01.2018, Blaðsíða 29
ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2018 MORGUNBLAÐIÐ 29
(
HEIMA
Heilsa Vellíðan Daglegt líf
NÁNARI UPPLÝSINGAR
OG SKRÁNING:
Sími 563 1400
soltunheima@soltunheima.is
www.soltunheima.is
PO
RT
hö
nn
un
Eldri Sterkari Hraðari
Veldu hreyfingu sem hentar
þér og komdu þér af stað
í heilsusamlegan lífsstíl.
HÓPATÍMAR FARA FRAM Í 105
REYKJAVÍK Á EFTIRFARANDI STÖÐUM:
• ÍFR, Hátúni 14
• Sundlaug Sjálfsbjargar, Hátúni 12
VATNSLEIKFIMI
Mán. og mið. kl: 11:30
35.000 kr.
KRAFTAJÖTNAR
Styrktarþjálfun
fyrir karlmenn
Þri. og fim. kl: 10:00
49.000 kr.
STYRKJUM BEININ
Styrktarþjálfun
fyrir konur
Þri. og fim. kl: 11:00
49.000 kr.
Tólf vikna tímabil, tvisvar í viku. Tímarnir hefjast 8. janúar.
Gott aðgengi og næg bílastæði.
KEMSTU EKKI Í HÓPATÍMA?
Fáðu sérsniðna styrktarþjálfun með aðstoð leiðbeinanda heim tvisvar í viku
með Sóltúni Heimahreyfingu. Aðeins 34.900 kr. á mánuði.
Hafðu samband og við aðstoðum við að finna rétta leið fyrir þitt heilsufar.
S
purð um hugmyndina
á bak við Köru segir
Þorbjörg. „Eftir
reynslu mína sem
borgarfulltrúi sá ég að
mikið af þjónustunni
sem allir voru velviljaðir að greiða
fyrir barst ekki börnum. Eftir að
ég hætti í stjórnmálum fékk ég
með mér bæjarfélagið Vest-
urbyggð og frábæran talmeina-
fræðing og við byrjuðum að veita
börnum á Patreksfirði og Bíldudal
þjónustu í gegnum netið. Þetta
gekk vonum framar og við bætt-
um í, fengum styrk frá þáverandi
velferðarráðherra Eygló Harð-
ardóttur og prófuðum fleiri sér-
fræðinga. Nokkrum mánuðum síð-
an fékk ég svo frábært
tækniteymi til samstarfs og allir
þessir aðilar stofnuðu svo saman
Köru.“
Leysir áskorun
landsbyggðarinnar
Hvernig virkar Kara?
„Kara er öruggur og einfaldur
hugbúnaður á netinu fyrir alla
sérfræðinga sem sinna þjónustu í
heilbrigðisgeiranum eða mennta-
geiranum til að halda utan um
verkefnin sín og rekstur með
öruggum dagnótubúnaði og
myndfundakerfi. Við sáum
í tilraunafasanum að sér-
fræðingastörf eru erfið
störf og erfitt rekstrarfyr-
irkomulag. Að sama skapi
er erfitt fyrir skjólstæðinga
að finna réttu hjálpina,
margir á landsbyggðinni hafa
hreinlega ekki neinn aðgang að
hjálp og tíminn sem fer í að keyra
og bíða getur verið ótrúlega lang-
ur. Netfundur í öruggu umhverfi
er því frábær lausn sem er fram-
kvæmanleg í dag þegar net-
aðgengi er orðið svona gott. Það
eru einstaklingar sjálfir sem munu
biðja um þessa þjónustu fyrst og
fremst – kerfin sem eru núna
munu ekki breytast fyrr en þeir
biðja um þetta. Kara hins vegar er
ekki síður gerð fyrir sérfræð-
ingana sem fá mörg tól og tæki,
sum ókeypis, til að sinna rekstri
og þjálfun eða meðferð.“
Margir hafa nýtt sér tæknina
Þorbjörg segir að nú þegar séu
yfir 120 sérfræðingar að nota
Köru og mörg þúsund myndfundir
farnir í gegnum kerfið. „Margir
sérfræðingar nota Köru einungis
fyrir reksturinn hjá sér án þess að
nota myndfund enda er Kara
ókeypis fyrir þau tól. En aðrir
bjóða nú þegar upp á fjarþjálfun,
á sinni heimasíðu eða á markaðs-
torgi Köru
(www.karaconnect.com) og enn
aðrir sinna eingöngu skjólstæð-
ingum í gegnum netið.“
Þorbjörg segir meðferðirnar
mjög líkar, hvort sem er á stofu
eða á netinu og rannsóknir stað-
festi það. „Það er mjög auðvelt
fyrir skjólstæðing að byrja, þeir
skrá sig hjá sérfræðingnum á
heimasíðunni okkar og skrá sig
inn á einfaldan hátt. Sérfræðingur
getur deilt efni með skjólstæðingi
á skjánum og við ætlum okkur að
ganga enn lengra til að auka upp-
lýsingaflæði milli skjólstæðings og
sérfræðings á milli funda. Öryggi
er mikilvægt í þjónustu sérfræð-
inga og skjólstæðinga og við höf-
um lagt mikla áherslu á það og
ætlum að gera enn betur.“
Mikill samfélagslegur ávinningur
Hvert stefnir Þorbjörg með fyr-
irtækið á næstu árum?
„Við ætlum ekki bara að vera á
Íslandi þó að okkur finnist frá-
bært hversu vel okkur er tekið.
Við erum nú þegar búin að opna
dótturfyrirtæki í Danmörku og
þýða Köru yfir á nokkur tungu-
mál. Hugmyndin er stór og hug-
myndafræðin skýr, við ætlum að
umbylta aðgengi að hjálp og um
leið draga úr afleiddum kostnaði
hjá skjólstæðingum og aðstand-
endum. Strax á þessu ári hefst
mikil vinna við að kynna Köru hér
heima og erlendis og fá sérfræð-
inga til að prófa og takast á við
þessar tækniáskoranir sem bíða
þeirra. Þetta er alveg ótrúlega
skemmtilegt og gefandi af því að
allir græða, Kara er verkefni sem
gefur af sér mikinn samfélags-
legan ávinning,“segir Þorbjörg að
lokum.
Kara býður upp á nýja heilsutækni
Að öðlast heilbrigða sál í hraustum líkama er ekki á færi allra í dag, þar sem vinnudagurinn er langur og ekki auðvelt að
stökkva frá fyrir sjálfrækt. Kara er ný veflausn sem tengir skjólstæðinga við sérfræðinga í mennta-, velferðar- og heilbrigð-
isgeiranum. Þorbjörg Helg Vigfúsdóttir er stofnandi fyrirtækisins og segir hér frá þessari nýju lausn á markaðnum.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Þorbjörg Helga: „Við
ætlum að umbylta
aðgengi að hjálp
og um leið draga úr
afleiddum kostnaði.“
Nú þegar eru yfir 120
sérfræðingar að nota
Köru og mörg þúsund
myndfundir farnir í
gegnum kerfið.
Það getur verið
flókið að finna
tíma fyrir ráðgjöf
á skrifstofutíma.