Morgunblaðið - 02.01.2018, Side 30

Morgunblaðið - 02.01.2018, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2018 www.heimkaup.is | Smáratorgi 3 | 201 Kóp. | S: 550-2700 Mikið úrval vítamína og steinefna, heim að dyrum. U nnur er ný- komin frá Ísr- ael með kær- astanum sínum Þorgils Helga- syni þar sem þau fóru á fjórar danssýningar á International dance festival og það er greinilegt að dans á hug hennar allan. „Þetta var mjög skemmtilegt. Ég náði meira að segja að fá kærast- ann með mér í Gaga danstíma og var rosalega ánægð með hann. Enda er ég á þeirri skoðun að dans sé fyrir alla,“ segir Unnur og heldur áfram. „Ég hef dansað allt mitt líf. Ég var í Listdanskóla Íslands, fór síðan 15 ára gömul í nám til Stokkhólms, í Konunglega sænska ballettskólann. Kom síðan heim og hef dansað með Íslenska dansflokkinum eða unnið fyrir Leikfélag Reykjavíkur síðan þá með 3 ára hléi, þar sem ég átti dótt- ur mína, lagði stund á jóga og tók mér frí frá dansinum vegna hné- meiðsla,“ segir Unnur. Hugmyndaríkur listskapandi Unnur segir að Borgarleikhúsið hafi verið hennar annað heimili í mörg ár en núna er hún í sjálf- stæðum verkefnum. Það fer þó ekki á milli mála að Unnur kann hvað best við sig í stjórnunarhlutverkinu og er hug- myndaríkur frumkvöðull á sviði list- sköpunar. „Í vetur setti ég upp sýn- inguna: Ég býð mig fram, í Mengi sem er listamannarekið rými í Reykjavík. Ég hafði samband við alla þá listamenn sem hafa haft hvað mest áhrif á mig í gegnum lífið og fékk þá til að búa til örverk sem ég síðan flutti. Sýningin samanstóð af 13 örverkum, sem ég flutti á einu kvöldi,“ segir Unnur og bætir við að Mengi hafi verið pakkfullt öll fimm kvöldin sem hún sýndi verkið. „Mig langar að halda áfram með verkefnið á þessu ári, en fá þá listamenn til að hafa samband við mig.“ En hvernig er líf dansarans? „Það er spurning. Ósköp eðlilegt ef þú spyrð mig. Sem dæmi get ég ekki ímyndað mér mig við skrif- borðið allan daginn. Allt frá því ég var ung hef ég verið í mjög skapandi umhverfi svo ég kann ekkert annað. En auðvitað þegar maður er að vinna í sjálfstæðum verkefnum þá fylgir því mikil tölvuvinna. Þannig að ætli ég sé ekki að færast nær og nær skrifborðsstólnum.“ Borðar allt sem hana langar í Hvernig er með mataræði dans- arans, er það strangt? „Ja, eflaust fyrir suma. En ég er mjög heppin með að þurfa ekki að spá í línunum. Ég hef sjaldan áhyggjur af mataræðinu, og borða allt sem mig langar í, er meira að segja mjög mikil súkkulaðikona og nammigrís. En ég er með ofnæmi svo ég get ekki sett allt ofan í mig. En í fullkomnum heimi ætti maður náttúrulega bara að borða hollt. Ég leyfi mér flest, en hef hugfast að allt sé gott í hófi.“ Unnur segist skilja vel þá sem hafa lagt stund á dans og fara aftur að æfa á stöðum eins og Kramhús- inu. „Það er svo auðvelt að vera í ástarsambandi við dansinn, ef þú hefur æft dans áður. Eins getur ver- ið gaman að halda sig bara í dans- inum ef annað vekur ekki áhuga þinn.“ Árið verður spennandi fyrir Unni. Hún er dansstjórnandi Moulin Rouge sem verður sett upp í Hörp- unni þann 21. apríl á þessu ári. „Það verður öllu tjaldað til og stefnum við að því að þetta verði meiriháttar sýning,“ segir Unnur sem hefur greinilega nóg fyrir stafni. Hún er einnig í miðjum æfingum með nem- endum Verslunarskóla Íslands þar sem hún er danshöfundur nem- endamóts skólans, sem ber nafnið Framleiðendurnir. Lífsglaði káti dansarinn Spurð um framtíðina segir Unnur að hún muni án efa aldrei hætta að dansa. En hana langi að þróa sig yfir í leikstjórn og blanda þekkingu sinni á dansstjórn við það. „Ég er með op- in augun fyrir hinu fullkomna námi og vona að ég finni það bráðlega.“ Unnur dansar mikið heima í stof- unni með dóttur sinni Millu sem er níu ára að aldri. „Við færum til hús- gögnin á kvöldin og dönsum saman. Sem er ótrúlega skapandi og skemmtilegur tími fyrir okkur mæðgur. Ég lenti meira að segja í því um daginn að heyra af nágranna mínum vera tala um hvað það byggi lífsglaður og kátur dansari í íbúðinni á móti henni. En ég taldi fram að þeim tíma engan taka eftir þvi að ég dansa í stofunni á kvöldin, ýmist þegar ég er að semja dansverk eða að leika með dóttur minni.“ Er dansinn barnvæn vinna? ,,Dóttir mín er algjört leikhúsbarn, hún hefur verið löngum stundum upp í Borgarleikhúsi, er með mér á æfingum fyrir sýninguna í Versló. Hún er í fimleikum og langar að verða leikkona. Já ég held þetta sé bara mjög barnvænt umhverfi og hollt og gott að eiga mömmu sem dansar.“ En hvaða áhrif hefur dans á lík- ama og sál? „Ég staðfesti að allt sem hefur verið skrifað um jákvæð áhrif dans á fólk er satt, mér finnst það ótrúlega gott fyrir heilann að dansa og mér líður alltaf betur þegar ég er búin að hreyfa mig. Ég get líka trúað því að yfir myrkustu mánuðina á veturna sé fátt betra en að hrista á sér skrokkinn og að dansa.“ Unnur Elísabet segir að það sé gott fyrir heilann að dansa. Dans er fyrir alla! Unnur Elísabet Gunnarsdóttir er dansari og danshöfundur og lifandi dæmi um hvað dansinn getur gert fyrir líkama og sál. Hún er þekkt fyrir að vera í fallegu formi, borðar nánast allt, að eigin sögn, og nýtir oft kvöldin heima í stofu til að dansa með dóttur sinni, Emilíu Álfsól Gunnarsdóttur, eða Millu eins og hún er kölluð. Hún segir dansinn lífið. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Það geta allir dansað! Hér er Þorgils Helgason í sínni frumraun í dansi. Unnur og Þorgils á góðri stundu í fríi á strönd.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.