Morgunblaðið - 02.01.2018, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2018
www.heimkaup.is | Smáratorgi 3 | 201 Kóp. | S: 550-2700
Mikið úrval vítamína og
steinefna, heim að dyrum.
U
nnur er ný-
komin frá Ísr-
ael með kær-
astanum sínum
Þorgils Helga-
syni þar sem
þau fóru á fjórar danssýningar á
International dance festival og það
er greinilegt að dans á hug hennar
allan. „Þetta var mjög skemmtilegt.
Ég náði meira að segja að fá kærast-
ann með mér í Gaga danstíma og var
rosalega ánægð með hann. Enda er
ég á þeirri skoðun að dans sé fyrir
alla,“ segir Unnur og heldur áfram.
„Ég hef dansað allt mitt líf. Ég
var í Listdanskóla Íslands, fór síðan
15 ára gömul í nám til Stokkhólms, í
Konunglega sænska ballettskólann.
Kom síðan heim og hef dansað með
Íslenska dansflokkinum eða unnið
fyrir Leikfélag Reykjavíkur síðan þá
með 3 ára hléi, þar sem ég átti dótt-
ur mína, lagði stund á jóga og tók
mér frí frá dansinum vegna hné-
meiðsla,“ segir Unnur.
Hugmyndaríkur listskapandi
Unnur segir að Borgarleikhúsið
hafi verið hennar annað heimili í
mörg ár en núna er hún í sjálf-
stæðum verkefnum.
Það fer þó ekki á milli mála að
Unnur kann hvað best við sig í
stjórnunarhlutverkinu og er hug-
myndaríkur frumkvöðull á sviði list-
sköpunar. „Í vetur setti ég upp sýn-
inguna: Ég býð mig fram, í Mengi
sem er listamannarekið rými í
Reykjavík. Ég hafði samband við
alla þá listamenn sem hafa haft hvað
mest áhrif á mig í gegnum lífið og
fékk þá til að búa til örverk sem ég
síðan flutti. Sýningin samanstóð af
13 örverkum, sem ég flutti á einu
kvöldi,“ segir Unnur og bætir við að
Mengi hafi verið pakkfullt öll fimm
kvöldin sem hún sýndi verkið. „Mig
langar að halda áfram með verkefnið
á þessu ári, en fá þá listamenn til að
hafa samband við mig.“
En hvernig er líf dansarans?
„Það er spurning. Ósköp eðlilegt
ef þú spyrð mig. Sem dæmi get ég
ekki ímyndað mér mig við skrif-
borðið allan daginn. Allt frá því ég
var ung hef ég verið í mjög skapandi
umhverfi svo ég kann ekkert annað.
En auðvitað þegar maður er að
vinna í sjálfstæðum verkefnum þá
fylgir því mikil tölvuvinna. Þannig
að ætli ég sé ekki að færast nær og
nær skrifborðsstólnum.“
Borðar allt sem hana langar í
Hvernig er með mataræði dans-
arans, er það strangt?
„Ja, eflaust fyrir suma. En ég er
mjög heppin með að þurfa ekki að
spá í línunum. Ég hef sjaldan
áhyggjur af mataræðinu, og borða
allt sem mig langar í, er meira að
segja mjög mikil súkkulaðikona og
nammigrís. En ég er með ofnæmi
svo ég get ekki sett allt ofan í mig.
En í fullkomnum heimi ætti maður
náttúrulega bara að borða hollt. Ég
leyfi mér flest, en hef hugfast að allt
sé gott í hófi.“
Unnur segist skilja vel þá sem
hafa lagt stund á dans og fara aftur
að æfa á stöðum eins og Kramhús-
inu. „Það er svo auðvelt að vera í
ástarsambandi við dansinn, ef þú
hefur æft dans áður. Eins getur ver-
ið gaman að halda sig bara í dans-
inum ef annað vekur ekki áhuga
þinn.“
Árið verður spennandi fyrir Unni.
Hún er dansstjórnandi Moulin
Rouge sem verður sett upp í Hörp-
unni þann 21. apríl á þessu ári. „Það
verður öllu tjaldað til og stefnum við
að því að þetta verði meiriháttar
sýning,“ segir Unnur sem hefur
greinilega nóg fyrir stafni. Hún er
einnig í miðjum æfingum með nem-
endum Verslunarskóla Íslands þar
sem hún er danshöfundur nem-
endamóts skólans, sem ber nafnið
Framleiðendurnir.
Lífsglaði káti dansarinn
Spurð um framtíðina segir Unnur
að hún muni án efa aldrei hætta að
dansa. En hana langi að þróa sig yfir
í leikstjórn og blanda þekkingu sinni
á dansstjórn við það. „Ég er með op-
in augun fyrir hinu fullkomna námi
og vona að ég finni það bráðlega.“
Unnur dansar mikið heima í stof-
unni með dóttur sinni Millu sem er
níu ára að aldri. „Við færum til hús-
gögnin á kvöldin og dönsum saman.
Sem er ótrúlega skapandi og
skemmtilegur tími fyrir okkur
mæðgur. Ég lenti meira að segja í
því um daginn að heyra af nágranna
mínum vera tala um hvað það byggi
lífsglaður og kátur dansari í íbúðinni
á móti henni. En ég taldi fram að
þeim tíma engan taka eftir þvi að ég
dansa í stofunni á kvöldin, ýmist
þegar ég er að semja dansverk eða
að leika með dóttur minni.“
Er dansinn barnvæn vinna?
,,Dóttir mín er algjört leikhúsbarn,
hún hefur verið löngum stundum
upp í Borgarleikhúsi, er með mér á
æfingum fyrir sýninguna í Versló.
Hún er í fimleikum og langar að
verða leikkona. Já ég held þetta sé
bara mjög barnvænt umhverfi og
hollt og gott að eiga mömmu sem
dansar.“
En hvaða áhrif hefur dans á lík-
ama og sál?
„Ég staðfesti að allt sem hefur
verið skrifað um jákvæð áhrif dans á
fólk er satt, mér finnst það ótrúlega
gott fyrir heilann að dansa og mér
líður alltaf betur þegar ég er búin að
hreyfa mig. Ég get líka trúað því að
yfir myrkustu mánuðina á veturna
sé fátt betra en að hrista á sér
skrokkinn og að dansa.“
Unnur Elísabet
segir að það
sé gott fyrir
heilann að
dansa.
Dans er fyrir alla!
Unnur Elísabet Gunnarsdóttir er dansari og danshöfundur
og lifandi dæmi um hvað dansinn getur gert fyrir líkama og
sál. Hún er þekkt fyrir að vera í fallegu formi, borðar nánast
allt, að eigin sögn, og nýtir oft kvöldin heima í stofu til að
dansa með dóttur sinni, Emilíu Álfsól Gunnarsdóttur, eða
Millu eins og hún er kölluð. Hún segir dansinn lífið.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Það geta allir
dansað! Hér er
Þorgils Helgason
í sínni frumraun í
dansi.
Unnur og
Þorgils á
góðri stundu
í fríi á strönd.