Morgunblaðið - 05.01.2018, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2018
Útgefandi
Árvakur
Umsjón
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
Blaðamenn
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Elínrós Líndal
elinros@mbl.is
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
Auglýsingar
Anna María Benediktsdóttir
maja@mbl.is
Katrín Theódórsdóttir
kata@mbl.is
Forsíðumyndina tók Eggert
Jóhannesson
Prentun
Landsprent ehf.
Það er gömul saga og ný að við áramót er staldrað við og mat lagt á
stöðuna; við klöppum okkur á bakið fyrir það sem vel tókst til og reyn-
um að draga lærdóm af því sem miður fór. En óháð þessu er rétt að
horfa fram á veginn og hugsa með sér sem svo: hvað vil ég fá út úr
árinu sem er rétt nýhafið? Hvert vil ég að leið mín liggi héðan af bless-
uðum byrjunarreitnum?
Markmiðin sem upp úr þessum hugleiðingum spretta eru jafn marg-
vísleg og þið, lesendur góðir, eruð. Þar af leiðandi kennir ýmissa grasa
í þessu sérblaði okkar um skóla og námskeið ýmiskonar. Sumt námið
er hugsað fyrir hugann fyrst og fremst, annað beinist að færni til
handar. Flest er þó þesslegt að það þjálfar hvort tveggja í senn og ekki
er verra ef maginn uppsker svo verðlaun að loknu námskeiði en í
blaðinu er að finna viðtöl við umsjónarmenn matreiðslu- og rækt-
unarnámskeiða, þar sem matur og matseld frá grunni er allstaðar í
brennidepli. Allir finna sér vonandi eitthvað fróðlegt til skoðunar. Það
veit hamingjan að öll getum við á okkur blómum bætt. Enginn er svo
lærður eða lémagna fyrir aldurs sakir að hann geti ekki lært eitthvað í
viðbót, hvort heldur er til gagns, gamans eða hvors tveggja.
Morgunblaðið/Hari
Nýtt ár kallar á nýjan kafla
5.janúar.2018
Kári Eyþórsson, einstaklings- og
fjölskylduráðgjafi, hjálpar fólki að
ná fram styrkleikunum sínum og
nýta þá betur í lífi og leik.
10
Á námskeiði Önnu Sigríðar Páls-
dóttur í Skálholti er farið í saumana
á meðvirkni, og hvernig stuðla má
að heilbrigðari samskiptum innan
og utan fjölskyldunnar.
29
Andrea Róbertsdóttir segir mik-
ilvægt að víkka sviðið með nýrri
hugsun og sköpunarkrafti þar sem
einstaklingar uppgötva sig aftur og
aftur á tímum breytinga.
14
Nemum í alþjóðlegum fagháskólum gefst einstakt tækifæri til
að kynnast suðupotti hugmynda, stefnum og straumum víða
að úr heiminum. Nám erlendis opnar einnig möguleika á að
hitta „rétta“ fólkið og komast áfram á alþjóðlegum markaði.
International
Education
& Know How
Háskólanám erlendis
á sviði skapandi greina