Morgunblaðið - 05.01.2018, Side 8

Morgunblaðið - 05.01.2018, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2018 A ndri er viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og hefur yfir 10 ára reynslu í markaðsmálum. Eftir þrjú ár í markaðsdeild Nýherja hóf Andri störf hjá Google sem sérfræðingur í auglýsingaþjónustu fyrirtækisins, Google AdWords. Í kjölfarið gerðist hann fram- kvæmdastjóri vefmarkaðsfyrirtæk- isins Kansas sem varð hluti af mark- aðsstofunni Janúar árið 2014. Nú síðast starfaði Andri hjá Landsbank- anum þar sem hann var ábyrgur fyr- ir vef-markaðssetningu bankans. Andri leiðir ásamt Margeiri Ingólfs- syni nýtt teymi innan Hugsmiðj- unnar sem mun veita þjónustu í markaðssetningu á netinu og stefnu- mótun í vef- og markaðsmálum. ,,Markaðsmál snúast fyrst og fremst um notendaupplifun í staf- rænum heimi,“ segir Andri og tekur undir með blaðamanni að grunnur hans nýtist vel í ráðgjöf til fyr- irtækja, þar sem hann hefur upplifað að vera báðum megin við borðið, sem sérfræðingur í auglýsingaþjónustu Google og svo að kenna fyrirtækjum að nýta þjónustu Google AdWords til hins ýtrasta við herferðir. Andri lýsir Google AdWords sem einum helsta auglýsingavettvangi Google. ,,Rúmlega 90% af tekjum Google fara í gegnum þess auglýs- ingalausn, sem gefur til kynna hversu mikilvæg varan er fyrir fyr- irtækið. Við erum annars vegar með kostaða leitarniðurstöður og vefaug- lýsingar. Kostaðar leitarniðurstöður og vefauglýsingar „Kostaða leitarniðurstaðan virkar þannig að maður greiðir fyrir birt- ingar í leitarvél google, með því að maður býður í ákveðið leitarorð, og útbýr auglýsingu sem birtist þegar notandi Google leitar að leitarorð- inu,“ segir Andri og tekur dæmi. ,,Ef þú ert t.d. að selja skó á Ís- landi og notandi á Google leitar eftir skóm getur þín auglýsing náð til not- andans á mjög markvissan hátt. Þú hefur fulla stjórn á því hver sér aug- lýsinguna, getur stillt tungumál aug- lýsingarinnar á viðeigandi hátt og hægt er að nota fleiri viðbætur sem birtast ekki við lífrænar leitarnið- urstöður.“ Getur þú tekið dæmi um slíkt? ,,Já, sem dæmi: ef við höldum áfram með skóna, segjum að væn- legur viðskiptavinur sé að leita á sím- anum sínum, getur þú látið síma- númer birtast í auglýsingu sem auðveldar einstaklingnum að ná sam- bandi við þig.“ Vefauglýsingar, eða Google Display hlutinn, virka þannig að maður er með vefborða á hinum ýmsu vefsíðum líkt og Youtube, New York Times o.fl. Ef þú ert að reka fjölmiðil eins og New York Times getur þú skilgreint svæði sem geta farið inn í vefauglýsingahluta Google. „Það sem gerist þá er að í hvert sinn sem viðskiptavinur skoðar síðu fer af stað uppboð, þar sem sá sem er tilbúinn að greiða mest fyrir skoðun notandans fær auglýsinguna.“ Andri segir að fyrirtæki sem eru tilbúin að fara þessa leið, nýti sér oft hina hefðbundnu miðla áfram, en setji svo auka pening í þessar leiðir til að ná í viðskiptavini sem eru mót- tækilegir fyrir vörunni. Sneiðir framhjá þeim sem ekki eru í markhópnum ,,Það fara minni peningar í birtingar, þar sem þú reynir að sneiða framhjá öllum þeim sem eiga ekki erindi sem markhópur fyrir vöruna þína á net- inu.“ Facebook auglýsingarnar eru þekktar fyrir þessa virkni en Andri segir Google hafa komið fram á sjón- arsviðið mun fyrr en Facebook með þessa tækni. Hverjir eru helst að sækja Ad- Words námskeiðið hjá Hugsmiðj- unni? ,,Námskeiðið er hugsað fyrir alla sem vinna í markaðsmálum. Og til- gangur námskeiðsins er að gefa fólki innsýn inn í þessa vörld og fá því verkfærin sem það þarf til að byrja að nota Google AdWords í sínum fyr- irtækjum,“ segir Andri og leggur áherslu á að mikilvægt sé að mæla árangur sem og kenna leiðir til að besta árangur herferðarinnar. Andri er ekki frá því að mikil fram- för hafi verið á undanförnu ári á með- al fyrirtækja í ferðaþjónustu og smá- sölu í notkun á stafrænni markaðsetningu. ,,Fyrirtæki eru í meiri mæli að nota netmiðla í mark- aðssetningu á skilvirkan hátt. Ferða- þjónustan, sem dæmi, er að keppa í alþjóðlegu umhverfi og hefur þurft að hlaupa hraðast á þessu sviði að mínu mati síðustu misserin. Sýnileiki á Google fyrir þessa aðila er gríð- arlega mikilvægur.“ Næsta námskeið í Google Ad- Words verður í lok mánaðarins. „Námskeiðið er haldið í Hann- esarholti og er það námskeið að fyll- ast. Þá tökum við inn á næsta nám- skeið sem verður haldið í febrúar og svo koll af kolli,“ segir Andri í lokin. elinros@mbl.is Notendaupplifun í stafrænum heimi Sýnileikinn Í virkri samkeppni þarf viðskiptavinurinn að geta fundið þig. ,,Fyrirtæki eru í meiri mæli að nota netmiðla í markaðssetningu á skilvirkan hátt. Ferðaþjónustan, sem dæmi, er að keppa í alþjóðlegu um- hverfi og hefur þurft að hlaupa hraðast á þessu sviði að mínu mati síðustu misserin. Sýnileiki á Google fyrir þessa aðila er gríðarlega mikilvægur,“ segir Andri Már Kristinsson, ráðgjafi hjá Hugsmiðjunni. Andri Már Kristinsson er ráðgjafi hjá Hugsmiðjunni þar sem hann sérhæfir sig í stefnumótun og mark- aðssetningu á vefnum. Við spurðum Andra um nýtt námskeið á vegum Hugsmiðjunnar í AdWords. Gagnlegt ,,Námskeiðið er hugsað fyrir alla sem vinna í markaðsmálum,“ segir Andri Már um AdWords námskeiðið. Þín leið til fræðslu Sveitamennt styrkir starfsmenntun beint til sveitafélaga og stofnana þeirra á landsbyggðinni. Sjóðurinn veitir styrki í fræðsluverkefni á vegum stéttarfélaganna. Sjóðurinn veitir styrki til einstaklinga og sjá stéttarfélögin um afgreiðslu þeirra í umboði Sveitamenntar. Kynntu þér rétt þinn á www.sveitamennt.is Sveitamennt Guðrúnartún 1 • 105 Reykjavík • Sími 599 1450 • sveitamennt@sveitamennt.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.