Morgunblaðið - 05.01.2018, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2018
A
ndri er viðskiptafræðingur
frá Háskólanum í Reykjavík
og hefur yfir 10 ára reynslu í
markaðsmálum. Eftir þrjú
ár í markaðsdeild Nýherja hóf Andri
störf hjá Google sem sérfræðingur í
auglýsingaþjónustu fyrirtækisins,
Google AdWords.
Í kjölfarið gerðist hann fram-
kvæmdastjóri vefmarkaðsfyrirtæk-
isins Kansas sem varð hluti af mark-
aðsstofunni Janúar árið 2014. Nú
síðast starfaði Andri hjá Landsbank-
anum þar sem hann var ábyrgur fyr-
ir vef-markaðssetningu bankans.
Andri leiðir ásamt Margeiri Ingólfs-
syni nýtt teymi innan Hugsmiðj-
unnar sem mun veita þjónustu í
markaðssetningu á netinu og stefnu-
mótun í vef- og markaðsmálum.
,,Markaðsmál snúast fyrst og
fremst um notendaupplifun í staf-
rænum heimi,“ segir Andri og tekur
undir með blaðamanni að grunnur
hans nýtist vel í ráðgjöf til fyr-
irtækja, þar sem hann hefur upplifað
að vera báðum megin við borðið, sem
sérfræðingur í auglýsingaþjónustu
Google og svo að kenna fyrirtækjum
að nýta þjónustu Google AdWords til
hins ýtrasta við herferðir.
Andri lýsir Google AdWords sem
einum helsta auglýsingavettvangi
Google. ,,Rúmlega 90% af tekjum
Google fara í gegnum þess auglýs-
ingalausn, sem gefur til kynna
hversu mikilvæg varan er fyrir fyr-
irtækið. Við erum annars vegar með
kostaða leitarniðurstöður og vefaug-
lýsingar.
Kostaðar leitarniðurstöður
og vefauglýsingar
„Kostaða leitarniðurstaðan virkar
þannig að maður greiðir fyrir birt-
ingar í leitarvél google, með því að
maður býður í ákveðið leitarorð, og
útbýr auglýsingu sem birtist þegar
notandi Google leitar að leitarorð-
inu,“ segir Andri og tekur dæmi.
,,Ef þú ert t.d. að selja skó á Ís-
landi og notandi á Google leitar eftir
skóm getur þín auglýsing náð til not-
andans á mjög markvissan hátt. Þú
hefur fulla stjórn á því hver sér aug-
lýsinguna, getur stillt tungumál aug-
lýsingarinnar á viðeigandi hátt og
hægt er að nota fleiri viðbætur sem
birtast ekki við lífrænar leitarnið-
urstöður.“
Getur þú tekið dæmi um slíkt?
,,Já, sem dæmi: ef við höldum
áfram með skóna, segjum að væn-
legur viðskiptavinur sé að leita á sím-
anum sínum, getur þú látið síma-
númer birtast í auglýsingu sem
auðveldar einstaklingnum að ná sam-
bandi við þig.“
Vefauglýsingar, eða Google
Display hlutinn, virka þannig að
maður er með vefborða á hinum
ýmsu vefsíðum líkt og Youtube, New
York Times o.fl. Ef þú ert að reka
fjölmiðil eins og New York Times
getur þú skilgreint svæði sem geta
farið inn í vefauglýsingahluta Google.
„Það sem gerist þá er að í hvert
sinn sem viðskiptavinur skoðar síðu
fer af stað uppboð, þar sem sá sem er
tilbúinn að greiða mest fyrir skoðun
notandans fær auglýsinguna.“
Andri segir að fyrirtæki sem eru
tilbúin að fara þessa leið, nýti sér oft
hina hefðbundnu miðla áfram, en
setji svo auka pening í þessar leiðir
til að ná í viðskiptavini sem eru mót-
tækilegir fyrir vörunni.
Sneiðir framhjá þeim
sem ekki eru í markhópnum
,,Það fara minni peningar í birtingar,
þar sem þú reynir að sneiða framhjá
öllum þeim sem eiga ekki erindi sem
markhópur fyrir vöruna þína á net-
inu.“
Facebook auglýsingarnar eru
þekktar fyrir þessa virkni en Andri
segir Google hafa komið fram á sjón-
arsviðið mun fyrr en Facebook með
þessa tækni.
Hverjir eru helst að sækja Ad-
Words námskeiðið hjá Hugsmiðj-
unni?
,,Námskeiðið er hugsað fyrir alla
sem vinna í markaðsmálum. Og til-
gangur námskeiðsins er að gefa fólki
innsýn inn í þessa vörld og fá því
verkfærin sem það þarf til að byrja
að nota Google AdWords í sínum fyr-
irtækjum,“ segir Andri og leggur
áherslu á að mikilvægt sé að mæla
árangur sem og kenna leiðir til að
besta árangur herferðarinnar.
Andri er ekki frá því að mikil fram-
för hafi verið á undanförnu ári á með-
al fyrirtækja í ferðaþjónustu og smá-
sölu í notkun á stafrænni
markaðsetningu. ,,Fyrirtæki eru í
meiri mæli að nota netmiðla í mark-
aðssetningu á skilvirkan hátt. Ferða-
þjónustan, sem dæmi, er að keppa í
alþjóðlegu umhverfi og hefur þurft
að hlaupa hraðast á þessu sviði að
mínu mati síðustu misserin. Sýnileiki
á Google fyrir þessa aðila er gríð-
arlega mikilvægur.“
Næsta námskeið í Google Ad-
Words verður í lok mánaðarins.
„Námskeiðið er haldið í Hann-
esarholti og er það námskeið að fyll-
ast. Þá tökum við inn á næsta nám-
skeið sem verður haldið í febrúar og
svo koll af kolli,“ segir Andri í lokin.
elinros@mbl.is
Notendaupplifun í stafrænum heimi
Sýnileikinn Í virkri samkeppni þarf viðskiptavinurinn að geta fundið þig. ,,Fyrirtæki eru í meiri mæli að nota netmiðla í markaðssetningu á skilvirkan hátt. Ferðaþjónustan, sem dæmi, er að keppa í alþjóðlegu um-
hverfi og hefur þurft að hlaupa hraðast á þessu sviði að mínu mati síðustu misserin. Sýnileiki á Google fyrir þessa aðila er gríðarlega mikilvægur,“ segir Andri Már Kristinsson, ráðgjafi hjá Hugsmiðjunni.
Andri Már Kristinsson er ráðgjafi hjá Hugsmiðjunni
þar sem hann sérhæfir sig í stefnumótun og mark-
aðssetningu á vefnum. Við spurðum Andra um nýtt
námskeið á vegum Hugsmiðjunnar í AdWords.
Gagnlegt ,,Námskeiðið
er hugsað fyrir alla sem
vinna í markaðsmálum,“
segir Andri Már um
AdWords námskeiðið.
Þín leið
til fræðslu
Sveitamennt styrkir starfsmenntun beint til sveitafélaga
og stofnana þeirra á landsbyggðinni.
Sjóðurinn veitir styrki í fræðsluverkefni á vegum
stéttarfélaganna.
Sjóðurinn veitir styrki til einstaklinga og sjá stéttarfélögin
um afgreiðslu þeirra í umboði Sveitamenntar.
Kynntu þér rétt þinn á www.sveitamennt.is
Sveitamennt
Guðrúnartún 1 • 105 Reykjavík • Sími 599 1450 • sveitamennt@sveitamennt.is