Morgunblaðið - 05.01.2018, Side 14

Morgunblaðið - 05.01.2018, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2018 A ndrea starfaði síðast sem mannauðsstjóri RÚV og hefur komið víða við eins og á sviði menntamála og verið forstöðumaður fjarskiptafyr- irtækis sem hefur skilað henni víð- tækri stjórnendareynslu. Nýverið lauk hún námi í jákvæðri sálfræði og hefur samhliða flutt erindi um hvernig má hagnýta fræðin á vinnu- stöðum og í vinnusambandinu öllu. Hún segir jákvæða sálfræði hafa gagnast henni vel í þjónustuveit- ingu og breytingastjórnun þar sem lögð er áhersla á að skapa vinsam- legt umhverfi og koma fólki í gegn- um breytingar á umhyggjusaman hátt. Hvað er jákvæð sálfræði? „Jákvæð sálfræði er þverfagleg, vísindaleg nálgun sem hefur það markmið að efla rannsóknir á já- kvæðum hliðum mannsins eins og styrkleikum, vellíðan og hamingju. Hér er á ferðinni mikilvæg verk- færakista í nútímasamfélagi sem einkennist af hraða, breytingum, streitu og neysluhyggju. Hægt er að hagnýta fræðin með jákvæðum inngripum og ýta undir og efla það sem er jákvætt þ.e. hugsanir, til- finningar og hegðun.“ Öflug leið til að vinna gegn streitu Getur þú komið með dæmi um já- kvæð inngrip? „Það er hægt að bæta líðan og ýta undir og efla það sem er já- kvætt. Að greina styrkleika og nota þá jafnvel á nýjan hátt er gott dæmi sem og vinna með þakklæti. Oft er þetta líka spurning um fram- setningu til að hjálpa fólki að velja hollari kostinn þegar kemur að hreyfingu og mataræði. Fjölmargir þekkja síðan núvitund og margar rannsóknir hafa verið gerðar til dæmis á ástundun núvitundaræf- inga og niðurstöður sýna að hér er á ferðinni öflug leið til að vinna gegn streitu, hefur jákvæð áhrif á ónæmiskerfið og þannig mætti lengi telja. Þeir sem vilja vera vak- andi fyrir því sem er að gerast vilja jafnvel kynnast hvaða aðstæður eru góðar fyrir þá og þeir sem vilja bregðast við af yfirvegun ættu að prófa.“ Hvers vegna ákvaðstu að fara í jákvæða sálfræði? „Ég hef í mínu starfi sem stjórn- andi verið að fóstra nærumhverfið, hvetja fólk til að sækja styrk í hvort annað og tala saman. Ég hef verið að nýta mér jákvæða sálfræði í starfi í langan tíma og vildi bara kafa dýpra í niðurstöður rannsókna á sviðinu og efla mig á sviðinu. Já- kvæð sálfræði er mikilvæg verk- færakista í leik og starfi.“ Að skapa hvetjandi umræðuhefð Þú hefur verið að flytja erindi, get- ur þú gefið mér dæmi um slík er- indi? „Ég hef verið að flytja erindi um allt er varðar vinnustaði og vinnu- sambandið út frá víðtækri reynslu af mannauðsmálum og stjórnun. Það er af svo mörgu að taka en ég get nefnt erindi um bætt samskipti, starfsskilyrði, vinnumenningu og liðsheild. Jákvæð sálfræði hefur reynst mér vel er kemur að breyt- ingastjórnun og þjónustuveitingu þar sem mér finnst mikilvægt að skapa vinsamlegt umhverfi og koma fólki í gegnum breytingar á umhyggjusaman hátt. Í stefnumót- un í dag þarf að skora á viðteknar venjur og hvernig hlutirnir eru unnir. Til að víkka sviðið með nýrri hugsun og sköpunarkrafti er mik- ilvægt að skapa hvetjandi umræðu- hefð og auka skilning fólks á tilvist og tilveru sinni og tengsl við um- heiminn. Eins og þú heyrir þá er erfitt að koma með „Elevator pitch“ í þessu sambandi enda margskonar áskoranir í ólíkum fyrirtækjum og stofnunum.“ Hvernig geta vinnustaðir nýtt sér jákvæða sálfræði? „Við verjum oft stórum hluta úr sólarhring á vinnustaðnum sem er staður sem getur haft mikil áhrif á heilsu okkar, bæði slæma og góða. Í ráðgjöf og fræðslu er hægt að gera starfsfólk meðvitað um ábyrgð á eigin heilsu. Þá er unnið mark- visst með áhrifaþætti heilbrigðis, hollu vali komið inn á radarinn og unnið er markvisst að skapa um- gjörð og aðstöðu þannig að fólk eigi kost á að hafa góð áhrif á heilsu sína. Það þarf alltaf að nálgast hvert verkefni með þyrlusýn og eiga einstaklingsbundin úrræði eins og heilsuefling vel við þegar skipu- lagsmálin og vinnuskilyrði eru í lagi. Stjórnendur verða að sjálf- sögðu að ganga fram með góðu for- dæmi og hægt er að hafa mikil áhrif á staðarblæinn með fjölmörg- um aðferðum jákvæðrar sálfræði í hvatningu, leiðsögn, stjórnháttum og styðjandi samskiptamynstri já- kvæðrar forystu. Það er ekkert fyr- irtæki, stofnun eða skipulagsheild án starfsfólks og það er þörf á að vökva sig og aðra.“ Fyrirhöfn sem leið að velgengni Hvernig tekstu á við mótlæti, áskoranir? „Hugur okkar hallast að því nei- kvæða og mikilvægt er að vera meðvitaður um þessa neikvæðu slagsíðu. Síðan erum við lítið annað en vaninn. En sveigjanleiki hugans er staðreynd og við getum brotist út en það tekur á að taka inn góðar venjur og velja sér jákvætt viðhorf eins og grósku hugarfar. Hugarfar þitt hefur áhrif á það hvernig þú lif- ir lífi þínu og það er ekki spurning um fjölda áskorana eða erfiðleika í lífinu heldur hvernig við tökumst á við lífið. Þegar þú ert í festu hug- arfari þá forðast þú áskoranir, finnst velgengni annarra ógnandi og lítur á fyrirhöfn sem veikleika. Í grósku hugarfari tekstu á við áskoranir, þú lítur á velgengni ann- arra sem lærdóm og hvatningu og lítur á fyrirhöfn sem leið að vel- gengni. Mér gengur nokkuð vel í þessu.“ Hvert er hægt að leita ef fólk hefur áhuga á að fá þig til að tala eða vera með erindi? „Ég er í símaskránni.“ Nördar eru fyrirmyndirnar Hver er þín skoðun á því að fólk mennti sig eða læri nýja hæfni á lífsleiðinni? „Það eina sem er öruggt í lífinu eru breytingar og mikilvægt er að uppgötva sig aftur og aftur. Ég vil sjá íslenska skólakerfið með svarta beltið í náinni framtíð til að auka samkeppnishæfni og geri landið að áhugaverðum valkosti eins og í ný- sköpun. Skapandi hugsun er hæfni- þáttur sem er afar mikilvægur því að í landslagi morgundagsins felast tækifæri sem þarf að nálgast með ferskleika og skapandi nálgunum til að auka gæði og verðmæti í sátt við náttúru og menn. Það er eðlilegt að vera áttavilltur þar sem ný störf verða til sem krefjist annars konar hæfni. Við þurfum ekki að vera með námskeiðablæti en þurfum alltaf að halda áfram að vaxa. Þegar við lær- um nýja hluti verða til nýjar teng- ingar milli taugafruma en eins og vöðvafrumur þá þurfa taugafrumur að vera í þjálfun til að vera í formi. Það eru spennandi tímar og við er- um hluti af þróuninni.“ Áttu þér fyrirmyndir? „Já, nörda. Þeir ná árangri á sínu sviði.“ elinros@mbl.is „Ég vil sjá íslenska skólakerfið með svarta beltið“ Jákvæð sálfræði er mik- ilvæg verkfærakista í leik og starfi, að sögn Andreu Róbertsdóttur en hún notar hana mikið í starfi sínu sem stjórn- andi. Að hennar mati er mikilvægt að víkka svið- ið með nýrri hugsun og sköpunarkrafti þar sem einstaklingar uppgötva sig aftur og aftur á tím- um breytinga. Morgunblaðið/Árni Sæberg Jákvæðni „Það er hægt að bæta líðan og ýta undir og efla það sem er jákvætt. Að greina styrkleika og nota þá jafnvel á nýjan hátt er gott dæmi sem og vinna með þakklæti. Oft er þetta líka spurning um framsetningu til að hjálpa fólki að velja hollari kostinn þegar kemur að hreyfingu og mataræði,“ segir Andrea Róbertsdóttir. Námið er sérsniðið að íslenskri ferðaþjónustu með sterkri tengingu við leiðandi fyrirtæki í greininni. Áhersla er lögð á stjórnun ferðaþjónustu í víðu samhengi, allt frá stærri hótelum og veitingastöðum til móttöku gesta í þjónustumiðstöðvum og umsjón ferða um hálendið. Hólaskóli - HáskólinnáHólum Hólum í Hjaltadal 551 Sauðárkrókur Sími 455 6300 holaskoli@holar.is www.holar.is w w w .h ol ar .is BA í stjórnun ferðaþjónustu ogmóttöku gesta Ferðaþjónusta er skemmtilegt og síbreytilegt fag þar sem starfsfólk tekst á við flókin verkefni alla daga. Ný námsleið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.