Morgunblaðið - 05.01.2018, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 05.01.2018, Qupperneq 17
mótorhjólapróf þegar við kynnt- umst svo eiginkonan er búin að vera á kafi í mótorhjólum næstum jafnlengi og ég,“ bætir hann við. „Svo höfum við náttúrulega alið börnin upp í þessu og þau byrja 6 ára gömul að læra á mótorhjól,“ segir Njáll og kímir við. „Ef mað- ur vill móta nemendur þá er betra að fá þá unga til náms. Ef fólk byrjar ungt að læra þessi fræði þá hefur það einfaldlega meiri um- ferðarvitund, það er ekki flóknara en það. Ungt fólk sem hefur verið með skellinöðrupróf í tvö ár áður en það tekur bílprófið er mun bet- ur undirbúin fyrir umferðina þeg- ar kemur að því að taka bílbrófið, það leynir sér ekki.“ Gott að koma aftur og fríska upp á kunnáttuna Að endingu bendir Njáll á nýjung sem hann og félagar í Sniglunum – Bifhjólasamtökum lýðveldisins – buðu upp á síðasta vor og aftur á vori komanda. Þar gefst útskrif- uðum „hjólurum“ kostur á að koma aftur og bæta við kunn- áttuna. „Þarna var um að ræða aksturs- tækninámskeið, annars vegar hugsað til þess að gefa fólki kost á að fríska upp á sig eftir veturinn og hins vegar til að læra eitthvað nýtt í leiðinni. Þú getur nefnilega alltaf lært eitthvað nýtt, alveg sama hversu góður þú ert á hjól- inu. Þetta er aðallega beygju- tækninámskeið og það er nokkuð sem nýtist þátttakendum vel því þegar skoðað er hvernig slys verða á mótorhjólum þegar ekki er um árekstur er að ræða, þá er það yfirleitt á svona stöðum, það er að segja í varasömum beygjum. Að kenna fólki að taka beygjuna getur skipt heilmiklu máli. Þetta er líka skemmtilegur partur af því að hjóla, að halla sér í beygjuna, fá tilfinningu fyrir hjólinu og ná almennilegu valdi á tækninni. Þá er þetta eins og að vera í flugvél á föstu landi,“ bætir Njáll við og kímir. „Við erum með fleiri slík námskeið í skoðun og það er óhætt að mæla með því að fólk kíki til okkar og fríski upp á sig einu sinni á ári.“ Nánari upplýsingar um nám- skeiðin má skoða á vefsvæði skól- ans: www.adalbraut.is jonagnar@mbl.is Mótorhjólanámið „Ég hef verið með fólk í náminu sem kláraði það á viku og aðrir hafa farið sér hægar og tekið allt sumarið í þetta. Það er langbest að gera þetta bara hver á sínum hraða,“ segir Njáll Gunn- laugsson um námið hjá Aðalbraut. FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2018 MORGUNBLAÐIÐ 17 Eins og Njáll nefnir í textanum eru það einkum „café racer“ hjólin sem heilla um þessar mundir og síðustu misserin. Hjólin eru einkum ætluð í styttri túra og nafnið varð til í Englandi upp úr 1960 meðal yngri töffara sem skutust á milli kaffihúsa á hjólunum sín- um. Þetta Honda CB500 frá 1977 er þvottekta café racer. Fortíðarþrá Fjölskyldan Börnin hans Njáls hafa æft sig á mótorhjóli síðan þau voru sex ára og hér er það elsta, Dýrfinna Mjöll Njálsdóttir að prófa 125 rsm hjól í fyrsta skipti á æfingarsvæði VÍK í Bolöldu. Hér hefur eplið augljóslega fallið býsna nálægt eikinni. Þarftu stuðning til að komast á toppinn? Rannís hefur umsjón með innlendum og erlendum samkeppnissjóðum á sviði menntunar og æskulýðsstarfs, þar á meðal eru Erasmus+ og Nordplus menntaáætlanir Evrópusambandsins og Norðurlanda. Fjöldi einstaklinga, fyrirtækja, stofnana og skóla hafa fundið hugmyndum sínum farveg með stuðningi þessara sjóða. Auk þess styður eTwinning skólasamstarf á netinu. Taktu skrefið og kynntu þér þá möguleika sem standa þér til boða á rannis.is/menntun. Næstu umsóknarfrestir 1. og 15. febrúar Nordplus

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.