Morgunblaðið - 05.01.2018, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2018
Í
var Þorsteinsson er viðskiptaþróunar- og markaðs-
stjóri Kolibri sem er leiðandi þjónustufyrirtæki á
sviði tækni og nýsköpunar. „Við hjá Kolibri höld-
um úti stafrænni viðskiptaröð (digital business
series) sem er námskeið fyrir þá sem eru í framvarð-
arsveit stafrænnar umbreytingar hjá fyrirtækjum.
Þessi framvarðarsveit er ýmist vörustjórar, hönnuðir
eða stjórnendur sem eru að kljást við breytingar eða
munu glíma við breytingar sem eru í vændum vegna
fjórðu iðnbyltingarinnar.“
Hvernig gengur þessi námskeiðaröð fyrir sig?
„Við héldum tvær vinnustofur á síðasta ári, eina í
maí um ferðalag viðskiptavinarins (Journey mapping)
með Chris Risdon og aðra í nóvember um hvernig við
teiknum upp þjónustu út frá snertipunktum við við-
skiptavini (Service blue printing) með Nick Remis.
Ferðalag viðskiptavinarins
Journey mapping er aðferðafræði sem gengur út á að
greina ferðalag viðskiptavinarins frá upphafi til enda.
Hvar upplifir viðskiptavinurinn áskoranir og hvar
gengur honum vel í snertingu við fyrirtækið? Chris
Risdon er þekktur fyrir hæfni sína í þessu fagi, hann
er yfir atferlishönnunarsviði (behavioral design) hjá
Capital One-bankanum. Þjónustusnertipunktar við-
skiptavinarins (Service blue printing) er aðferðafræði
sem gengur út á að greina snertifleti viðskiptavinarins
við fyrirtækið til að finna áskoranir og tækifæri. Nick
Remis var yfir þjónustuhönnun hjá Capital One-
bankanum.“
Ívar segir að á nýju ári verði Kolibri með fleiri
vinnustofur í þessari viðskiptaröð en nánar verði
greint frá því, m.a. á facebooksíðu fyrirtækisins.
Fjölbreytt þekking innan Kolibri
Þegar kemur að því að útskýra hlutverk Kolibri
í íslensku viðskiptalífi segir Ívar fyrirtækið
vera nýsköpunarfélaga fyrir önnur fyrirtæki á
markaði. „Við hjálpum fyrirtækjum að búa til
menningu og stafrænar lausnir til að takast á
við það sem er í vændum, einnig förum við
með fyrirtækjum í gegnum breytingar.“ Ívar
segir Kolibri hafa mestmegnis verið í
langtímasambandi við fyrirtæki, en
innan fyrirtækisins eru hönn-
unardeild, þróunardeild, forritarar
og margs konar sérfræðingar
sem geta veitt stuðning í breyt-
ingum. „Við teljum fjölbreytt
teymi Kolibri geta stutt þann
árangur sem metnaðarfull fyr-
irtæki setja sér.“
Ívar nefnir að það sé
skortur á hæfni á þessu sviði
í samfélaginu en hann sé
glaður að sjá að víða sé hægt
að sækja námskeið í Trello,
Asana og fleiri
agile-verkefnastjórnunar-
kerfum.
Hallarbylting í opinbera
geiranum áhugaverð
Hann óttast að við séum pínulítið
sein inn í stafrænu byltinguna. „Við
megum þó ekki gleyma því að hlut-
irnir gerast hratt hér á landi þegar við tökum við okk-
ur, en við höfum fundið mikla vakningu í samfélaginu
á síðustu sex mánuðum þessu tengda, sérstaklega
þegar talað er við stjórnendur fyrirtækja í landinu.
Það sem ég hefði mikinn áhuga á að sjá er að op-
inberi geirinn færi að taka við sér í þessum málum.
Þar tel ég tækifærin mikil, en þar er talsvert um
óunnin verk á sviði nýsköpunar að mínu mati. Ég
væri til í hallarbyltingu sem hefði mikil áhrif á þjón-
ustuupplifun almennings í landinu. Stjórnarsáttmáli
nýrrar ríkisstjórnar kemur vel inn á nýsköpunarmálin
og þess vegna er maður spenntur að sjá hvað gerist í
kjölfarið.“
Hann segir þá sem eru opnir fyrir því að nota alla
þá tækni sem í boði er auðveldlega geta náð sam-
keppnisforskoti á alþjóðavísu. „En þeir sem eftir sitja
munu upplifa samkeppnisvanhæfni á þessu sviði; sitja
eftir í samkeppninni, sem er ekki gott.“
Viðbrögðin við þjónustu Kolibri og þeirri hugsun
sem þeir fylgja er jákvæð í samfélaginu og lítur Ívar
framtíðina björtum augum. „Ég held að það verði
miklar breytingar í landinu á næstu fimm til tíu ár-
um.“
Fara menntun og hæfni alltaf saman?
Ívari er menntunarstig þjóðarinnar hugleikið og segir
tækifæri fyrir gagnagreinendur (data scientists) gíf-
urlega mikil í framtíðinni. „Þótt allir háskólar í heim-
inum tækju sig saman og framleiddu eins marga
gagnagreinendur og unnt er, þá segja rannsóknir okk-
ur að stórt gap muni myndast í náinni framtíð fyrir
fólk með þessa menntun.“ Hann segir að jafnframt
vanti stafsfólk til að túlka á milli tækni og viðskipta.
„Við þurfum einnig viðskiptafræðimenntað fólk, hag-
fræðinga, forritara og hönnuði svo eitthvað sé
nefnt.“
En hvaða breytingu hefur þessi stafræna
bylting í för með sér fyrir okkur?
„Almenningur mun öðlast miklu áhugaverð-
ari upplifun í framtíðinni, þar sem þjón-
ustustig er alltaf að hækka og upplifun við-
skiptavinarins að skipta meira og meira máli.“
Hann segist ekki vita hvernig mennt-
un verði hagað í framtíðinni, enda
sæki sér margir hæfni í gegnum
netið án þess að greiða fyrir
gráðuna í þekktum háskólum eins
og tíðkast hefur. „Khan Aca-
demy, Udemy, Coursera og fleiri
síður kenna fólki færni án þess
að selja þér gráðuna. Þú getur
lært að forrita og öðlast marg-
víslega hæfni með þessum
hætti. Þegar kemur að Ko-
libri erum við með bæði sjálf-
lært fólk en einnig menntað
fólk með ýmist meistara- eða
doktorsgráðu. Sjálflærði hóp-
urinn er í miklum minnihluta,
en fyrirtækið þarf í framtíðinni
að taka afstöðu til þessa eins og
annars sem við stöndum frammi
fyrir. Veljum við hæfasta fólkið
eða fólkið með bestu mennt-
unina? Fer þetta tvennt alltaf
saman?“ spyr hann að lokum.
Breytingar þær og áskoranir sem fyrirtæki standa frammi fyrir vegna fjórðu
iðnbyltingarinnar eru Ívari Þorsteinssyni hjá Kólibrí hugleiknar. Hann segir
gagnagreinendur í lykilstöðu hvað varðar tækifæri í framtíðinni.
Nýsköpunarfélagi í breytingum
Morgunblaðið/Hanna
Upplifun „Almenningur mun öðlast miklu áhugaverðari upplifun í framtíðinni, þar sem þjónustustig er alltaf að hækka og
upplifun viðskiptavinarins að skipta meira og meira máli,“ segir Ívar um breytingar í kjölfar stafrænu byltingarinnar.
Landsmennt
Styrkur þinn
til náms
Landsmennt er fræðslusjóður samtaka atvinnulífsins
og verkafólks á landsbyggðinni.
Sjóðurinn styrkir starfsmenntun beint til fyrirtækjanna sjálfra.
Sjóðurinn veitir styrki til einstaklinga og sjá stéttarfélögin
um afgreiðslu þeirra í umboði Landsmenntar.
Kynntu þér rétt þinn á www.landsmennt.is
Guðrúnartún 1 • 105 Reykjavík • Sími 599 1450 • landsmennt@landsmennt.is
Kennsla hefst 8. janúar
Skipholt - Kópavogur - Grafarvogur
Allur aldur frá 2ja ára
Nýtt
Jazzball
ett
Pilates
Silfur sv
anir
fyrir 65 á
ra+
Skipholt 50c
Nú einnig í Kópavogi og Grafarvogi