Morgunblaðið - 05.01.2018, Síða 22

Morgunblaðið - 05.01.2018, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2018 M argir hafa bent á að eftir bankahrunið virtist verða sprenging í áhuga Íslend- inga á prjóni og hekli. Guð- rún Hannele Henttinen í Storkinum segir þetta ekki alveg rétt, því um hafi verið að ræða alþjóðlega bylgju sem var komin af stað vel fyrir hrun. „Við sem störfum í greininni vorum búin að finna þetta lengi, og mátti í skynja í aðdraganda hrunsins ein- hvers konar hugarfarsbreytingu. Hún birtist í því að fólk fór að endur- skoða lífsstíl sinn og sækja í auknum mæli í hannyrðir af ýmsu tagi, og sást m.a. í aukinni sölu á bókum og blöð- um um hannyrðir. Áhuginn á prjóni jókst samt svo sannarlega á Íslandi eftir hrun og lopapeysan gekk í end- urnýjun lífdaga.“ Hannele grunar að netið hafi líka hjálpað til. „Þökk sé samfélagsmiðl- unum þá breiddist hannyrðaáhuginn hraðar út, og fólk gat notað staði eins og Facebook og Ravelry til að sýna sköpunarverk sín og skiptast á ráð- um.“ Rótgróin búð Storkurinn er elsta hannyrðaverslun landsins, stofnuð fyrir 64 árum, var um árabil í miðborginni en er nú til húsa í Síðumúla 20. Auk þess að bjóða upp á mikið úrval af garni og prjón- um selur verslunin einnig hvers kyns hannyrðavarning og heldur nám- skeið. Menntaðir textílkennarar ann- ast kennsluna og er mest áhersla lögð á prjón og hekl. Námskeiðin eru bæði fyrir byrj- endur og lengra komna. „Við höfum haldið grunnámskeið sem henta bæði algjörum byrjendum og þeim sem hafa prjónað eða heklað í mörg ár en vilja rifja upp og skerpa á þekking- unni. Svo byrjuðum við í fyrra með svokölluð meistaranámskeið sem eru fyrir fólk sem er mjög flinkt í sínum hannyrðum en vill bæta við sig og læra eitthvað nýtt.“ Námskeið Storksins hafa verið vin- sæl, enda jafnast fátt á við að fá vand- aða leiðsögn þegar læra þarf réttu handtökin við prjón eða hekl. „Það má læra allt mögulegt á netinu, og byrja á grunninum á stöðum eins og YouTube, en til að fara dýpra er gott að hafa vanan kennara við hliðina á sér. Auk handleiðslunnar fylgja nám- skeiðunum líka vönduð námsgögn sem nemendur taka með sér heim og nota sem verkfæri til að hjálpa sér að bæta færnina,“ segir Hannele. „Handavinna er í eðli sínu þannig að hún lærist best af einhverjum sem sýnir hvernig á að gera hlutina, að- stoðar og endurtekur, og lagar sig að því að hver og einn nemandi lærir á mismunandi hátt.“ Spennt fyrir útsaumi Þegar hún er spurð um nýjustu strauma og stefnur í hannyrðum seg- ir Hannele að saumaskapur njóti sí- fellt meiri vinsælda og æ fleiri hafi gaman af að dunda sér við saumavél- ina eða fást við útsaum. „Útsaumur er mjög hefðbundin grein hannyrða en hægt að finna á henni nýja og spennandi vinkla fyrir nýja tíma. Þeir sem komast á lagið hafa oft á orði að útsaumur sé mjög slakandi iðja, og hægt að detta inn í nokkurs konar innhverfa íhugun á meðan fengist er við útsauminn,“ útskýrir Hannele en hjá Storknum er boðið upp á út- saumsnámskeið eftir áramót þar sem kennt er í anda danska handavinnu- skólans í Skals. Mikill áhugi er líka á nýju hekl- námskeiði þar sem hekluð eru leik- föng. „Þátttakendur hafa verið of- boðslega ánægðir og hjá Storkinum höfum við sjaldan fundið aðra eins já- kvæða bylgju í kringum námskeið. Á þessu námskeiði heklum við þrívíð leikföng á borð við bangsa, kanínur og mýs, sem eru á bilinu 20-30 cm á hæð og var útkoman úr síðasta nám- skeiði ótrúlega flott.“ En er það ekki bara fyrir fólk með ákveðna hæfileika að prjóna eða hekla? Þarf ekki mikla nákvæmni og þolinmæði til að hafa gaman af hann- yrðum af þessu tagi – og er ekki nauðsynlegt að vera rétthentur? Ald- eilis ekki, segir Hannele: „Það er ekk- ert mál að kenna örvhentum að prjóna, en aðeins flóknara að kenna þeim að hekla –en samt vel gerlegt. Þá er hekl og prjón ekki bara fyrir konur, og sjáum við það greinilega í búðinni að þeim karlmönnum fer fjölgandi sem prjóna, svo að jafnvel er ástæða til að efna til sérstaks nám- skeiðs gagngert fyrir karla.“ Það eina sem þarf, að sögn Hann- ele, er áhuginn. „Margir halda að það sé bara fyrir þolinmæðisfólk að prjóna eða hekla, en þolinmæðin lær- ist, og þegar búið er að komast yfir erfiðasta hjallann er þetta ákaflega ánægjuleg leið til að stytta sér stund- ir og skapa fallega muni.“ ai@mbl.is Ekkert jafnast á við leiðsögn góðs kennara Prjóna- og heklnámskeiðin hjá Storkinum eru vel sótt og áhugi á nýjum námskeiðum þar sem læra má útsaum og leikfangahekl Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hugarfar Guðrún Hannele Henttinen í Storkinum segir hannyrðaáhugann hafa byrjað að aukast löngu fyrir hrun. Úrval Feykinóg er af fyrsta flokks garni og prjónavörum í búðinni. Þekking Námskeiðin eru vel sótt, bæði af byrjendum og lengra komnum. KRINGLUNNI ISTORE.ISSérverslun með Apple vörur Betri þjónusta Við kappkostum að veita viðskiptavinum okkar skjóta og góða þjónustu. Ef tæki keypt hjá okkur bilar lánum við samskonar tæki á meðan viðgerð stendur. Við gerum betur í þjónustu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.