Morgunblaðið - 05.01.2018, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 05.01.2018, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2018 2000 1945 mm 600 mm Hæð: 900 mm Þyngd: 125 kg Ramia advanced 1500 Lengd: 1340 mm Breidd: 500 mm Hæð: 850 mm Hobby Lengd: 1480 mm Breidd: 500 mm Hæð: 820 mm HEFILBEKKIR FYRIR VERKSTÆÐI SKÓLA OG HANDVERKSFÓLK Lauga gi 29 | sími 552 4320 | verslun@brynja.is | brynja.is Elite Lengd: Breidd: ve Opið virk a dag a frá 9-18 lau frá 1 0-16 N ámskeiðið er hluti af end- urmenntun Landbúnaðar- háskólans. Okkur lék for- vitni á að vita meira um þetta girnilega námskeið. Hvað geturðu sagt mér um námskeiðið Gotterí úr garðinum? „Námskeiðið Gotterí úr garð- inum er hugsað fyrir þá sem vilja fara af stað með matjurtaræktun í eigin garði, á svölunum heima hjá sér eða jafnvel bara í eldhúsglugg- anum. Það hentar þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í matjurtaræktun en einnig þeim sem vilja hressa upp á þekkinguna og auka við tegundaúrvalið í rækt- un.“ Geturðu lýst fyrir mér hvernig námskeiðið gengur fyrir sig? „Námskeiðið er byggt upp þannig að fyrst er farið yfir helstu atriði sem þarf að hafa í huga í ræktun, svo sem val á fræi, helstu tegundir sem koma til greina í ræktun, sáningu og uppeldi plantna, undirbúning jarðvegs fyr- ir útplöntun eða val á jarðvegi í potta og ker, gróðursetningu og umhirðu plantna á ræktunartím- anum. Síðan er farið yfir helstu aðferðir við geymslu til að græn- metið nýtist sem best fram á vet- urinn. Þegar fjallað hefur verið um þessi grundvallaratriði er verkleg æfing þar sem þátttak- endur sá til nokkurra tegunda plantna sem þeir taka svo með sér heim í lok dags.“ Áhuginn vex með ári hverju Er námskeiðið vel sótt? „Já, námskeiðið hefur verið vel sótt þegar það hefur verið í boði og þátttakendur verið mjög ánægðir að námskeiði loknu.“ Hverjir sækja námskeiðið? „Þeir sem sækja námskeiðið koma alls staðar að, með mismikla reynslu í ræktun en eiga það allir sameiginlegt að hafa mikinn áhuga á að auka við eigin ræktun matjurta.“ Hefur þú sjálf alltaf haft áhuga á ræktun? „Það má segja að ég hafi smit- ast af ræktunarbakteríunni á unglingsárum þegar ég hóf störf í gróðrarstöð og þessi áhugi hefur einfaldlega vaxið með ári hverju. Þetta er að ég held ólæknandi baktería.“ Hvað mælir þú með að byrja á að rækta fyrir þá sem hafa áhuga en eru að stíga sín fyrstu skref? „Fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í ræktun er sniðugt að byrja smátt, velja fáar tegundir til ræktunar og auka svo smám saman við sig, eftir því sem safn- ast í reynslusarpinn. Tegundir eins og radísur eða salat eru auð- veldar í uppeldi frá fræi þannig að þar mætti stíga fyrstu sporin en svo er alltaf gaman að henda nið- ur nokkrum kartöflum, þær skila góðri uppskeru fyrir lágmarks- fyrirhöfn og ekkert betra en ný- uppteknar kartöflur með soðningu að sumarlagi. Aðalmálið er að komast af stað, þora að byrja og þess vegna getur verið sniðugt að byrja á því að fara á námskeið.“ Matjurtir eru ómissandi Hvernig nýtir þú veturinn fyrir ræktun? „Ég gróðurset trjáplöntur og fjölæringa á haustin og fram á vetur eða þangað til frost er kom- ið í jörðu. Eftir áramótin fer ég að skoða frælista og velta fyrir mér hvað mig langar að rækta næsta sumar. Stundum hef ég sáð gul- rótum eða radísum í potta snemma að vori og haft úti í glugga, það getur líka verið skemmtilegt verkefni fyrir krakka. Um leið og fer að birta á vorin finnst mér nauðsynlegt að koma kryddjurtum af stað í glugg- um, eins og kóríander og dilli, en stundum hleypur tíminn frá mér á vorin þannig að ég fer þá bara í næstu gróðrarstöð og kaupi for- ræktað grænmeti sem ég get þá gróðursett hjá mér.“ En aðrar árstíðir? „Yfir sumartímann vil ég hafa blómlegt í kringum mig þannig að ég nota töluvert af sumarblómum í ker og potta. Ég er mjög hrifin af fjölærum plöntum og er hægt og rólega að koma mér upp girnileg- um fjölæringabeðum. Matjurtir eru ómissandi, ég er alltaf með eitthvað af kryddjurtum og salati, brokkolí og grænkál eru ofarlega á vinsældalistanum og vonandi næ ég að endurnýja kartöflugarðinn minn næsta sumar.“ Hvað þykir þér best að rækta hér á landi? „Þetta er eins og að eiga að gera upp á milli barnanna sinna, mér finnst bara best að rækta plöntur.“ Hvernig sérðu fyrir þér lífræna ræktun í framtíðinni? „Ég tel að lífræn ræktun eigi eftir að vaxa á Íslandi í framtíð- inni því eftirspurn eftir slíkum vörum fer sívaxandi. Sífellt fleiri neytendur velta umhverfismálum mikið fyrir sér og vilja fá að vita nákvæmlega hvar og hvernig mat- jurtir þeirra hafa verið ræktaðar. Þá skiptir það líka máli að óháður aðili votti framleiðsluaðferðirnar en slík vottun fyrirfinnst í lífrænni ræktun.“ elinros@mbl.is Matjurtaræktun í eigin garði Það verður sífellt vin- sælla að fara út í garð og ná í heimaræktað salat, kartöflur og gott- erí. Enda hafa margir sagt að fátt jafnist á við að standa í stígvélunum úti í garði, í ró og friði, að ræta sinn eigin mat. Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur er með girnilegt námskeið sem hún kallar Gotterí úr garðinum. Ástríða „Ég gróðurset trjáplöntur og fjölæringa á haustin og fram á vetur eða þangað til frost er komið í jörðu. Stundum hef ég sáð gulrótum eða radísum í potta snemma að vori og haft úti í glugga, það getur verið skemmtilegt verkefni fyrir krakka.“ Morgunblaðið/Eggert Lexíur „Námskeiðið er byggt upp þannig að fyrst er farið yfir helstu atriði sem þarf að hafa í huga í ræktun, svo sem val á fræi, helstu tegundir sem koma til greina í ræktun, sáningu og uppeldi plantna, undirbúning jarðvegs fyrir útplöntun eða val á jarðvegi í potta og ker, gróðursetningu og umhirðu plantna á ræktunartímanum,“ segir Guðríður um námsfyrirkomulagið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.