Morgunblaðið - 05.01.2018, Síða 25

Morgunblaðið - 05.01.2018, Síða 25
FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 2018 MORGUNBLAÐIÐ 25 Þekking í þína þágu Er þinn tími kominn fyrir frekara nám? Frekari upplýsingar veitir Áslaug Bára, verkefnastjóri í síma 412 5952 eða í gegnum netfangið aslaug@mss.is Fjarnám og staðnám hefst í janúar 2018 og tekið er við skráningum núna Menntastoðir er undirbúningur til áframhaldandi náms og miðar við háskólabrú Keilis og frumgreina- deildir við Bifröst og H.R. Einnig má nýta einingar úr Menntastoðum inn í nám í framhaldsskóla s.s. grunn að iðnnámi. Sindri Heiðarsson Til að byrja með var ég ekki viss um hvort að það gengi upp að vera í skóla á sjó. En svo hefur allt gengið vonum framar. Allir starfsmenn MSS koma svo mikið til móts við þarfir mínar að hálfa væri nóg. Ég er að róa í skiptakerfinu 3-1 og hef aldrei þurft að taka auka frí túr til að sinna náminu. Fjarnám Menntastoða er sveigjanlegt og sniðið að þörfum fullorðinna námsmanna. Þú lærir þegar þér hentar og þar sem þú vilt! Kjörorð Menntastoða MSS eru: » Framúrskarandi fjarnámskennsla » Sveigjanleiki í námi, óháð tíma og rúmi » Metnaðarfull þjónusta og stuðningur við nemendur E itt af mest spennandi sviðum listaheimsins í dag er raflist- in. Þar blandast saman fersk- ustu straumar úr ýmsum átt- um og listamenn nýta sér eiginleika tækni, margmiðlunar og gagnvirkni til að skapa mergjaða nýja list. Undanfarna tíu vetur hefur Listaháskóli Íslands boðið upp á opin námskeið í raflist og ætti ekki að koma á óvart að námskeiðin hafa ver- ið mjög vel sótt. „Viðfangsefnið er gerð listaverka sem innihalda bæði hljóðræna og sjónræna þætti, eða önnur atriði sem tengjast upplifun í víðari skilningi. Verkin eru fjölbreytt en eiga það öll sameiginleg að nota rafmagn, í einhverju formi, sem mik- ilvægan þátt í verkinu,“ útskýrir Áki Ásgeirsson, stundakennari við LHÍ og margmiðlunarlistamaður. Auk Áka er kennslan á námskeiðinu í höndum Ríkarðs H. Friðrikssonar og Jespers Pedersen. Námskeiðið ber yfirskriftina Raflosti og er í ár haldið vikuna 23.-27. maí. Raflosti varð fyrst til í kringum listahátíðina Raflost sem haldin hefur verið árlega frá 2007. „Markmiðið með þeirri uppákomu var þríþætt: að fá hingað til lands erlenda listamenn og gúrúa og efna til ráðstefnu um raf- list, halda námskeið um listformið hjá Listaháskólanum og bjóða upp á dag- skrá sem væri opinn almenningi og leyfði landsmönnum að kynna sér hvað væri í gagni í þessum bransa,“ útskýrir Áki en alla tíð síðan 2007 hefur Raflosta lokið með sýningu á verkum nemendanna. Virkja hæfileikana Námið miðar að því að nemendur ljúki við smíði raflistaverks og vinna þeir saman í hópum. „Við reynum að velja fólk saman í hópa þannig að hæfileikar hvers og eins nýtist sem best. Þannig gæti t.d. einn meðlimur hóps verið með góðan bakgrunn í for- ritun á meðan annar er lunkinn við vinnslu á myndefni eða hljóði. Að gera verk að veruleika snýst þá oftast um að púsla saman þeirri kunnáttu sem hópurinn býr yfir.“ Samhliða tímum á vinnustofu eru haldnir fyrirlestrar þar sem nem- endur læra um þróun listformsins. „Tíminn er knappur og vinnudag- arnir iðulega langir á meðan á nám- skeiðinu stendur,“ segir Áki en hóp- urinn hefur aðgang að öllum tækjakosti LHÍ. Oft nýta nemend- urnir í listsköpuninni kláruð og ókláruð verk sem orðið hafa til í skól- anum yfir veturinn. „Það vill svo skemmtilega til að námskeiðið er haldið í lok skólaársins þegar nem- endur eru að hreinsa vinnustofur sín- ar eftir veturinn og á meðan á tiltekt- inni stendur myndast oft stórar hrúgur á göngum skólans og í gámum við skólabygginguna. Þar finna Raf- losta-nemendurnir oft nýtilega hluti og það sem sumir eru að bera út eru okkar nemendur að bera aftur inn og endurvinna.“ Áki á von á að margir Raflosta- nemendur muni heldur betur láta að sér kveða, enda raflistin listform framtíðarinnar, og eitthvað sem allir listamenn ættu að kunna góð skil á. Listaheimurinn er að breytast hratt og líklegt að raf- og tölvutæknin muni breyta listsköpun á jafn afgerandi hátt og prenttæknin eða ljós- myndatækni gerði á sínum tíma. „Öll list verður raflist, ef hún er ekki orðin það nú þegar,“ segir Áki. ai@mbl.is Krafturinn virkjaður í raflistinni Námskeiðið Raflosti ber nafn með rentu, en þar kynnast nemendur nýj- ustu straumum í raf- listaheiminum og vinna saman að því að skapa eigið verk á einni viku Innblástur Nemendahópurinn er fjölbreyttur, og farnar ólíkar leiðir í sköpuninni.Verkfæri Áki bendir á að raftæknin móti listina nú rétt eins og prenttæknin áður. Möguleikar Frá sýningu nemenda. Raflist er galopið og fjölbreytt listform.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.