Morgunblaðið - 12.01.2018, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 12.01.2018, Qupperneq 6
MÓTHERJARNIR Kristján Jónsson kris@mbl.is Ísland mætir Svíþjóð, Króatíu og Serbíu í A-riðli Evrópumótsins í Split í Króatíu en þrjú af þessum fjórum liðum komast áfram og leika í milliriðli í Zagreb. Morgunblaðið fékk Gunnar Magnússon, þjálfara Hauka og fyrr- verandi aðstoð- arþjálfara ís- lenska landsliðsins, til að fara yfir mótherj- ana þrjá og við hverju má búast í leikjunum gegn þeim. Fyrsti leik- urinn er gegn Sví- um í dag, föstu- daginn 12. janúar, og það er upphafsleikur A-riðilsins klukkan 17.15 en klukkan 19.30 eigast við grannþjóðirnar Króatía og Serbía. Náðu góðum árangri á HM „Kristján Andrésson er núna á sínu öðru stórmóti með Svíana. Að mínu mati spiluðu þeir skemmti- legan handbolta á HM í fyrra og end- uðu í 6. sæti eftir að hafa tapað fyrir Frökkum í 8-liða úrslitum. Þeir hafa eins og við Íslendingar verið að ganga í gegnum ákveðin kynslóða- skipti og þess vegna var 6. sætið i Frakklandi góður árangur,“ segir Gunnar um árangur Svía undir stjórn Kristjáns í fyrra. Gunnar seg- ist sjá fyrir sér að lið Svíþjóðar og Ís- lands séu nokkuð jöfn. Betri í að verjast en sækja „Liðin mættust í tveimur æfinga- leikjum í október og þótt það sé ekki alveg marktækt myndi ég ætla að við værum að fara í 50-50-leik á móti Svíum. Styrkleiki Svíanna hefur allt- af verið vörn og markvarsla. Mark- varðarparið frá Rhein-Neckar Löw- en, þeir Appelgren og Palicka, klikkar sjaldan. Þá eru þeir með frá- bæra hornamenn; Tolbring sam- herja þeirra frá Löwen og Ekberg sem spilar með Kiel fremsta í flokki. Þótt línumaðurinn sterki Andreas Nilsson verði ekki með þeim á EM eru þeir með marga sterka línu- menn,“ bendir Gunnar á en sænska liðið þykir öflugra í að verjast en sækja. Útilína Svía er spurningarmerki „Ef maður á að reyna að finna ein- hverja veikleika þá er spurning hvernig útilínan kemur út úr þessu móti. Það mun mæða mikið á Lukas Nilsson og Jim Gottfridsson. Svíar eru með marga unga og spennandi leikmenn og það er spurning hvort þeir ná að springa út í Króatíu. Einn- ig er varnarmaðurinn öflugi Tobias Karlsson hættur með landsliðinu og hann hefur bundið saman sænsku vörnina síðustu ár. Því er spurning hvernig Kristjáni tekst að fylla það skarð. Við þurfum engu að síður að eiga mjög góðan fyrsta leik í Króatíu til að leggja Svía að velli. Markmenn okkar þurfa að halda í við sænsku markmennina og til þess þurfum við að spila mjög góða vörn. Sóknarlega þurfum við að vera mjög agaðir því við megum ekki hleypa Svíunum í auðveld hraðupphlaupsmörk. Aron Pálmars og Guðjón Valur verða að draga vagninn. Við getum unnið Svía á góðum degi og við skulum vona að þetta verði okkar dagur.“ Króatar vilja gull á heimavelli Gunnar reiknar með Króötum mjög sterkum á heimavelli og telur að þeir geti farið alla leið í mótinu. „Króatar ætla að tjalda öllu sem til er á heimavelli og ljóst að þeir ætla sér að vinna sinn fyrsta sigur á Evr- ópumótinu í ár. Þeir hafa náð aftur í þjálfarann skrautlega, Lino Cervar, sem gerði þá að heimsmeisturum í Portúgal 2003 og ólympíumeisturum í Aþenu 2004. Síðan þá hafa þeir ekki unnið neitt. Þeir náðu „aðeins“ í silf- ur þegar þeir héldu HM árið 2009 og núna ætla þeir sér gullið og ekkert annað. Þó svo að Duvnjak sé nýkom- inn til baka eftir erfið meiðsli mun Cervar pressa hann til að fórna sér í þetta verkefni,“ segir Gunnar og tel- ur markvörsluna nánast eina spurningarmerkið varðandi Króata. Cindric og Karagic lykilmenn „Það verður bara að segjast eins og er að þeir virka mjög sterkir og þeir munu fá góðan stuðning á pöll- unum. Lykilmenn þeirra fyrir utan Duvnjak eru Luka Cindric og Igor Karagic. Ef maður á að reyna að finna einhverja veikleika hjá þeim þá hefur markvarslan verið döpur á sumum mótum. Annars eru þeir með sterka leikmenn í öllum stöðum.“ Varðandi taktíkina segir Gunnar að Íslendingar þurfi eða leysa fram- liggjandi 3-2-1-vörn Króata en það hefur stundum reynst okkar mönn- um erfitt. Verðum að leysa varnarleikinn „Ef við ætlum að vinna Króatíu verðum við að ná að leysa varnarleik þeirra. Þeir spila mikið svokallaða „3-2-1 Balkan“ sem líkist kannski mest ÍBV-vörninni sem við þekkjum hér heima. Okkur hefur nánast alltaf gengið mjög illa á móti þessari vörn. Varðandi sóknarleikinn hjá þeim þá eru þeir mjög sterkir maður á mann og með góðar klippingar. Þetta verð- ur því mjög erfitt verkefni og það þarf allt að ganga upp hjá okkur til að við getum fengið eitthvað út úr þessum leik. Ég spái því að Króatar mæti Frökkum í úrslitaleik og ég held að þeir fái ekki miklu betra tækifæri en þetta til að verða loksins Evrópu- meistarar. Gott að enda á Serbum Það er mjög gott að mæta Serbum í síðasta leiknum í riðlinum því þeir eru óskrifað blað fyrir mót. Þegar þetta er skrifað er óvíst hvernig hóp- urinn þeirra mun líta út en það er samt ljóst að þeir verða án sterkra manna. Nú eru markvörðurinn Milic og skytturnar Rnic og Abutovic dottnir út úr hópnum. Einhverjar sögur eru um að fleiri sterkir leik- menn muni detta út í viðbót,“ segir Gunnar og segir Íslendinga geta nýtt fyrstu tvo leiki Serba til að kort- leggja liðið. Góðir í gömlu Júgóslavíu „Þjálfarinn Jovica Cvetkovic er tekinn við þeim aftur en hann þjálf- aði liðið á árunum 2006-2009. Þrátt fyrir að einhverjir leikmenn séu ekki leikfærir eru þeir með fullt af öfl- ugum mönnum. Auk þess hefur Serbum alltaf gengið vel þegar þeir hafa spilað á stórmótum í gömlu Júgóslavíu. Það verður fróðlegt að sjá hvaða lið þeir mæta með til Kró- atíu og það mun koma okkur til góða að geta séð þá í fyrstu tveimur leikj- unum. Okkur hefur oftast gengið vel á móti Serbíu og ég er sannfærður um að við vinnum þennan leik og tryggjum okkur áfram í milliriðil.“ Markvarsla og vörn lykilatriði gegn Svíum  Gunnar Magnússon fer yfir andstæðinga Íslands á EM  Svíaleikurinn verður 50/50  Gegn Króatíu þarf allt að ganga upp  Fróðlegt að sjá lið Serbanna MARKVERÐIR Vladimir Cupara Tibor Ivanisevic HORNAMENN Dobrivoje Markovic Nemanja Ilic Darko Dukic Bogdan Radivojevic LÍNUMENN Mijail Marsenic Bojan Beljanski SKYTTUR Petar Dordic Milan Jovanovic Nemanja Obradovic Nemanja Zelenovic Marko Vujin MIÐJUMENN Zarko Sesum Petar Nenadic Stefan Vujic ÞJÁLFARI Jovica Cvetkovic SERBÍA EM í handbolta karla 2018 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2018 6 SVÍÞJÓÐ Heimsmeistari: 1954, 1958, 1990 og 1999. Silfur á HM: 1964, 1997 og 2001. Brons á HM: 1938, 1961, 1993 og 1995. Evrópumeistari: 1994, 1998, 2000 og 2002. Silfur á ÓL: 1992, 1996, 2000 og 2012. Árangur á EM: 1994: Evrópumeistari 1996: 4. sæti 1998: Evrópumeistari 2000: Evrópumeist- ari 2002: Evrópumeistari 2004: 7. sæti 2008: 5. sæti 2010: 15. sæti 2006: 4. sæti 2008: 2. sæti 2010: 2. sæti 2012: 3. sæti 2014: 4. sæti 2016: 3. sæti SERBÍA Brons á HM: 1999 og 2001. Silfur á EM: 2012. Brons á EM: 1996. Árangur á EM:5 1996: 3. sæti 1998: 5. sæti 2002: 10. sæti 2004: 8. sæti 2006: 9. sæti 2010: 13. sæti 2012: 2. sæti 2014: 13. sæti 2016: 15. sæti 2012: 12. sæti 2014: 7. sæti 2016: 8. sæti KRÓATÍA Heimsmeistari: 2003. Silfur á HM: 1995, 2005 og 2009. Brons á HM: 2013. Ólympíumeistari: 1996 og 2004. Brons á ÓL: 2012. Silfur á EM: 2008 og 2010. Brons á EM: 1994, 2012 og 2016. Árangur á EM: 1994: 3. sæti 1996: 5. sæti 1998: 8. sæti 2000: 6. sæti 2002: 16. sæti 2004: 4. sæti Árangur mótherja Íslands MARKVERÐIR Ivan Stevanovic, Kadetten Ivan Pesic, Meshkov Brest Mirko Alilovic, Veszprém HORNAMENN Lovro Mihic, Wisla Plock Zlatko Horvat, RK Zagreb Manuel Strlek, Kielce Ivan Cupic, Vardar Skopje LÍNUMENN Marino Maric, Melsungen Igor Vori, RK Zagreb Zeljko Musa, Magdeburg SKYTTUR OG MIÐJUMENN Domagoj Duvnjak, Kiel Luka Stepancic, París SG Marko Kopljar, Füchse Berlín Jakov Gojun, Füchse Berlín Igor Karacic, Vardar Skopje Stipe Mandalinic, Füchse Berlín Marko Mamic, Kielce Luka Cindric, Vardar Skopje ÞJÁLFARI Lino Cervar KRÓATÍA MARKVERÐIR Andreas Palicka, RN Löwen Mikel Appelgren, RN Löwen HORNAMENN Jerry Tollbring, RN Löwen Hampus Wanne, Flensburg Niclas Ekberg, Kiel Mattias Zachrisson, Füchse B. LÍNUMENN Jesper Nielsen, París SG Fredric Pettersson, Toulouse Max Darj, Bergischer SKYTTUR OG MIÐJUMENN Lukas Nilsson, Kiel Simon Jeppsson, Flensburg Philip Henningsson, Kristianst. Jim Gottfridsson, Flensburg Linus Arnesson, Bergischer Johan Jakobsson, Sävehof Albin Lagergren, Kristianstad ÞJÁLFARI Kristján Andrésson SVÍÞJÓÐ Gunnar Magnússon AFP Króatar Domagoj Duvnjak er lykilmaður í liði Króata en spurningin er hvort hann sé hversu mikið hann getur beitt sér, nýstiginn upp úr meiðslum. Reuters Svíar Kristján Andrésson er á leið á sitt annað stórmót sem landsliðsþjálfari Svía en hann stýrði þeim til sjötta sætis á HM í Frakklandi fyrir ári síðan.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.