Morgunblaðið - 12.01.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 12.01.2018, Blaðsíða 12
EM í handbolta karla 2018 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2018 12 Íslenska lands- liðið mætir sænska landslið- inu í upphafsleik sínum á EM í Króatíu að þessu sinni. Tvisvar áð- ur hafa lið þjóð- anna leitt saman hesta sína í fyrstu umferð EM. Í bæði skipt- in hafa Svíar borið sigur úr býtum. Í fyrsta leik Íslands á EM, 21. jan- úar 2000 í Rijeka í Króatíu unnu Svíar öruggan sigur, 31:23. Gústaf Bjarnason var markahæstur í ís- lenska liðinu með fimm mörk. Átta árum síðan mættust liðin. aftur í upphafsleik keppninnar í Þrándheimi í Noregi. Aftur unnu Svíar örugglega, 24:19, eftir að hafa verið 10 mörkum yfir um skeið. „Niðurlæging í Niðarósi,“ sagði í fyrirsögn í Morgunblaðinu daginn eftir. iben@mbl.is Tvö töp fyrir Svíum í upp- hafsleikjum Gústaf Bjarnason C-RIÐILL Kristján Jónsson kris@mbl.is Mikill Balkanskagabragur er á riðlinum þar sem ríkjandi Evrópu- meistarar frá Þýskalandi spila. Þjóðverjar eru með Makedónum, Svartfellingum og Slóvenum í C- riðli sem leikinn verður í höf- uðborginni Zagreb. Sem sagt þrjú af fyrrverandi ríkjum Júgóslavíu saman í riðli sem leikinn er í fjórða fyrrverandi Júgóslavíuríkinu. Þjóðverjar mæta nú til leiks á sitt fyrsta stórmót eftir að Dagur Sigurðsson lét af störfum sem þjálf- ari liðsins. Áhugavert verður að sjá hvernig Þjóðverjum vegnar eftir velgengnisskeið Dags. Þýskaland var ekki á góðum stað þegar Dagur tók við og liðinu mistókst að komast á HM í Katar 2015. (Síðar var liðið þó handvalið inn í mótið af handboltastjórnmálamönnum en það er önnur saga og sorglegri.) Dagur stýrði liðinu á fjórum stór- mótum: Í Katar, á EM 2016, á ÓL 2016 og HM 2017. Liðið vann til gullverðlauna á EM og brons- verðlauna á Ólympíuleikunum. Féllu fyrir Katar í fyrra HM í Frakklandi í fyrra var að einhverju leyti keppni óvæntra úr- slita. Þjóðverjar fengu meðal ann- arra að finna fyrir því og töpuðu 20:21 fyrir Katar í 16-liða úrslitum. Þar af leiðandi er svolítið erfitt að segja fyrir um hvort þeir séu líkleg- ir til afreka en einnig þar sem nýr þjálfari heldur um stjórnartaum- ana, Christian Prokop. Miðað við leikmannahópinn og hefðina hjá Þjóðverjum eiga þeir þó möguleika á að komast í undanúrslitin. Slóvenía mun væntanlega berjast um sigurinn í riðlinum við Þýska- land í ljósi þess að Slóvenar lönd- uðu bronsverðlaunum á HM í fyrra. Liðið komst auk þess í 8-liða úrslit- in á ÓL í Ríó. Slóvenar hafa oft átt frambærilegt lið en liðið blómstraði í Frakklandi undir stjórn Veselins Vujovic sem iðulega kemst á blað í vangaveltum um bestu handknatt- leiksmenn sögunnar. Áhugavert verður að sjá hvernig leikmenn Slóveníu finna sig í mótinu því nú eru væntingarnar vafalaust miklar. Makedónía var í riðli með Íslandi í undankeppninni. Makedónía á snjalla leikmenn eins og áður, eins og Kiril Lazarov, en liðinu hefur ekki tekist að stimpla sig inn sem eitt af fjórum bestu liðunum á stór- mótunum og spila um verðlaun. Það hafnaði þó í 5. sæti á EM 2012. Að þessu sinni er liðið blandað eldri og yngri leikmönnum en markvörð- urinn Borko Ristovski er aftur kominn í landsliðið. Spánverjinn Raúl Gonzalez stýrir liðinu og hann er í fremstu röð enda gerði hann lið Vardar að Evrópumeisturum og mun taka við stórliði PSG næsta sumar. Gonzalez er líklegur til að bæta varnarleik liðsins verulega. Erfitt hjá Svartfellingum Búist er við því að Svartfjallaland muni eiga erfitt uppdráttar í C- riðlinum. Liðið er þó að keppa á EM í fjórða sinn en hefur hins veg- ar ekki enn unnið leik. Hand- boltaþekkingin er þó fyrir hendi í landinu því Svartfjallaland átti um tíma eitt allra besta lið heims í kvennaflokki. Sú hefð sem þar myndaðist gæti smitast yfir til karlalandsliðsins með tíð og tíma en ekki er búist við miklu af liðinu í þetta skiptið. Þjóðverjar eru líklegir í Balkanskagariðlinum  Er líf eftir Dag?  Slóvenar öflugir  Makedónía sterkari en Svartfjallaland AFP Meistararnir Þjóðverjar eru ríkjandi Evrópumeistarar en Dagur Sigurðs- son stýrði þeim til sigurs í Póllandi fyrir tveimur árum. D-RIÐILL Kristján Jónsson kris@mbl.is Ólympíumeistararnir frá Dan- mörku eru í sterkum riðli á EM í Króatíu. D-riðillinn fer fram í Var- azdin en þar leika einnig Spánn, Ungverjaland og Tékkland. Danir fara nú á stórmót með gamla hornamanninn Nikolaj Jac- obsen við stjórnvölinn. Ljóst er að Jacobsen kann ýmislegt fyrir sér enda stýrði hann RN Löwen til sig- urs í Þýskalandi á árinu. Guð- mundur Guðmundsson fór með Dani á fjögur stórmót, HM 2015, EM 2016, ÓL 2016 og HM 2017. Guðmundur sló öllum við á Ólymp- íuleikunum í Ríó en í hinum þremur mótunum léku Danir ekki um verð- laun. En Danir hafa burði til að spila um verðlaun eins og þeir hafa haft á stórmótum um langa hríð. EM hefur til dæmis átt mjög vel við Danina. Þeir urðu meistarar bæði 2008 og 2012 en fóru auk þess í úr- slitaleikinn 2014. Á meðan Danir eiga leikmenn í heimsklassa eins og Mikkel Hansen og Niklas Landin geta þeir unnið hvaða lið sem er þegar þeir eru vel upplagðir. Alltaf meðal þeirra bestu Spánn er eitt þeirra liða sem yfir- leitt tekst að halda sér á meðal þeirra bestu í heimi. Hafa geysilega oft spilað um verðlaun á stórmót- unum en þeim hefur þó aldrei tekist að vinna EM. Ekki vantar þó verð- launin frá EM en þar hafa Spán- verjar fengið fern silfurverðlaun og tvenn bronsverðlaun. Er þó ekki langt síðan EM var komið á kopp- inn. Á umliðnum árum hefur Spánn verið það lið sem hinir sigursælu Frakkar hafa átt hvað erfiðast með að leika gegn. Spánverjar hafa hins vegar ekki verið jafn stöðugir og gengið til að mynda illa gegn Dön- um í nokkur skipti. Spánn komst í undanúrslit á HM í Katar og í úr- slitaleikinn á EM 2016. Þeir náðu hins vegar ekki inn á ÓL í Ríó, sem kom mjög á óvart. Á HM í fyrra tap- aði Spánn með eins marks mun fyr- ir Króatíu í 8-liða úrslitum. Ungverjar í þriðja sæti? Ungverjar slógu Dani út úr HM í Frakklandi í fyrra í 16-liða úrslitum og mæta því væntanlega óhræddir í leikinn gegn Danmörku. Þeir féllu úr keppni í 8-liða úrslitum þegar þeir töpuðu fyrir Norðmönnum. Fyrirfram er búist við að Spánn og Danmörk verði fyrir ofan Ung- verjaland en reynslan sýnir að ekki er hægt að bóka neitt í þeim efnum. Handboltinn er afar vinsæll í Ungverjalandi og vel er fylgst með landsliðunum báðum. Auk þess eru tvö stórlið á evrópskan mælikvarða í landinu, Veszprém og Pick Szeg- ed. Árangur Ungverja í gegnum ár- in er svipaður og hjá okkur Íslend- ingum. Einu sinni hafa þeir unnið til verðlauna á stórmóti hjá körl- unum en liðið lék til úrslita á HM í Sviss 1986 þegar stórskyttunnar Peters Kovacs naut enn við. Tékkarnir án Jicha Gera má ráð fyrir að það verði hlutskipti Tékka að verma botnsæt- ið í riðlinum og missa af keppninni í milliriðlinum. Tékkar ættu þó að bíta frá sér enda sjaldan með lið sem valtað er yfir á stórmótunum. Þeir fengu jafn mörg stig og við Ís- lendingar í undankeppninni en þrjú lið komust áfram í lokakeppnina. Makedónía vann riðilinn. Ef til vill má segja að nýtt skeið sé runnið upp hjá Tékkum þar sem Filip Jicha er hættur. Þótt hann hafi ver- ið nokkuð á sjúkralistanum á síð- ustu árum var það engu að síður leikmaður sem var einn sá besti í heimi um tíma enda lék hann með bæði Kiel og Barcelona á ferlinum. Ýmislegt getur breyst hjá lands- liðum þegar slíkir menn hverfa á braut og Tékkar eru að aðlagast því en Jicha lék sinn síðasta lands- leik 2016. Firnasterkur riðill í Varazdin  Hvað gerir Jacobsen með Dani?  Spánn aldrei unnið EM  Ungverjar sterkari en Tékkar AFP Sigurvegarar Danir koma fullir sjálfstrausts á EM eftir að hafa sigrað Frakka í úrslitaleik „Gulldeildarinnar“ í Frakklandi um síðustu helgi. Þeir eru í mjög sterkum riðli með Spánverjum, Ungverjum og Tékkum. Fimbulkuldi, frábær stemn- ing í Spodek-höllinni og hrikaleg vonbrigði yfir niðurstöðu ís- lenska landsliðsins. Þetta er svona það sem situr sterkast í minningunni frá heimsókn minni til Katowice í Póllandi fyrir tveimur árum þar sem ég fjallaði um Ísland á EM 2016. Þetta og sú staðreynd að Ivano Balic var ennþá að vinna með sömu hár- greiðslu þó að hárunum hafi að- eins fækkað. Eins dísætur og sigurinn var á Noregi í fyrsta leik þá voru vonbrigðin hreint ótrúleg yfir tapinu gegn Hvít-Rússum í næsta leik. Maður trúði bara ekki eigin augum þegar Hvít- Rússarnir skoruðu nánast úr hverri einustu sókn, og unnu að lokum 39:38. Í öngum mínum yfir úrslit- unum var ég samt fljótur að sjá að tapið þyrfti ekki að jafngilda heimsendi. Til dæmis þyrfti Kró- atía bara að vinna Noreg og þar með væri Ísland öruggt áfram í milliriðla. Ég nenni ekki að fara út í nákvæmar útskýringar á þessu, en þarna skipti sem sagt máli að hafa unnið Noreg (26:25) og bara tapað með einu marki fyrir Hvít-Rússum, og þó skorað 38 mörk. En Króatía vann ekki Noreg. Jafnræði var með liðunum allan leikinn og staðan jöfn fimm mín- útum fyrir leikslok, en Norð- menn unnu 34:31. Norðmenn enduðu raunar á að spila um bronsverðlaun á mótinu, einmitt við Króata sem unnu þá auðvit- að sigur, þegar það hafði enga þýðingu fyrir okkur Íslendinga. Síðasti leikurinn í riðlinum vekur ekki skemmtilegar minn- ingar. Ísland var níu mörkum undir eftir aðeins korters leik gegn hinu sterka liði Króata, og átti aldrei möguleika. Ekki líst mér betur á að mæta þeim núna. Noregur hafði unnið Hvít-Rússa og þar með var ljóst að Ísland yrði eina liðið sem eftir sæti en hin færu til Kraká. Hryggilegast við þetta var að nokkrir okkar dáðustu leikmanna, alla vega Snorri Steinn, Róbert og Alex- ander, léku þarna sitt síðasta stórmót og sáu möguleikann á að fara á ÓL í Ríó hverfa. BAKVÖRÐUR Sindri Sverrisson sindris@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.