Morgunblaðið - 12.01.2018, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 12.01.2018, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2018 15 gegn Austurríki missti Ísland niður þriggja marka forskot. Brugðust þá krosstrén sem máltækið getur um en Guðjón Valur Sigurðsson brenndi af dauðafæri í næstsíðustu sókninni og Ólafur Stefánsson tapaði boltanum í þeirri síðustu. Saga landsliðsins geymir hins veg- ar marga frábæra leiki þegar liðið hefur verið komið í erfiða stöðu í keppnum. Á þessari öld hafa Íslend- ingar og Danir glettilega oft gert jafntefli á handboltavellinum. Til dæmis á ÓL í Peking. Í Linz hinn 23. janúar 2010 hafði Ísland hins vegar betur 27:22. Sigur sem í raun lagði grunninn að bronsverðlaunum Ís- lands í keppninni því Ísland fór með fjögur stig með sér í milliriðilinn. Fyrstu mörk Arons Íslendingar voru geysilega ákveðnir þrátt fyrir sálrænt erfiða niðurstöðu í leikjunum á undan. Ís- land komst snemma í 7:2 gegn Dön- um en Danir svöruðu því með átta mörkum í röð. Leikurinn markaði þó þau tímamót að þar leit fyrsta mark Arons Pálmarssonar fyrir A- landsliðið á stórmóti dagsins ljós. Hann var settur á miðjuna um miðjan fyrri hálfleik og skilaði tveimur mik- ilvægum mörkum fyrir hlé. Þá var Ólafur Guðmundsson á leikskýrslu í fyrsta skipti á stórmóti. Var Ísland yfir 15:13 að loknum fyrri hálfleik. Íslenska liðið gat varla óskað sér betri frammistöðu fyrri hluta síðari hálfleiks gegn ríkjandi Evrópumeisturum því Ísland jók for- skotið í 20:14. Staðan var þá orðin vænleg. Danir minnkuðu muninn í 23:20 en komust ekki nær og Íslend- ingar lönduðu sigri án þess að hand- boltaunnendur þyrftu að fálma eftir sprengitöflunum eins og svo oft á lokamínútunum þegar þessar þjóðir takast á. Björgvin varði 20 skot Á viðbrögðum manna að leiknum loknum mátti sjá að þeir voru sam- mála um að markvarsla og varnar- leikur hefðu gert gæfumuninn. Mesta hrósið fengu því þeir Sverre Jak- obsson, Ingimundur Ingimundarson og Björgvin Páll Gústavsson sem varði 20 skot og þar á meðal vítakast frá Lars Christiansen sem var ein öruggasta vítaskytta af sinni kynslóð í heiminum. Sverre og Ingimundur náðu að binda vörnina afar vel saman sem þótti mikil framför frá fyrstu tveimur leikjunum. Guðjón Valur var markahæstur með sex mörk og gerði alls 39 mörk á mótinu eins og Arnór Atlason, sem aldrei hefur verið jafn drjúgur í markaskorun og í Aust- urríki 2010. Ólafur Stefánsson var valinn í úrvalslið mótsins. Danir áttu ekki möguleika „Danirnir áttu hreinlega ekki möguleika í leiknum. Þeir hlupu á vegg á móti stórkostlegri vörn okkar, Björgvin var frábær í markinu og stemningin og einbeitingin sem mað- ur upplifði í liðinu var meiriháttar,“ sagði þjálfarinn Guðmundur Guð- mundsson við Morgunblaðið en hon- um til aðstoðar voru Óskar Bjarni Óskarsson og Gunnar Magnússon. Hans Óttar Lindberg minntist einnig á vörn Íslendinga. „Íslending- arnir spiluðu rosalega flottan leik og við áttum bara ekki möguleika gegn þeim að þessu sinni. Vörn þeirra var alveg meiriháttar og við áttum bara engin svör á móti henni,“ sagði hinn íslenskættaði Lindberg í samtali við Guðmund Hilmarsson. Góð byrjun gegn Norðmönnum Karlalið Norðmanna hefur sótt mjög í sig veðrið á alþjóðavettvangi á allra síðustu árum. Ekki hefur svo sem vantað fyrirmyndir í kvennaliði Þóris Hergeirssonar þar í landi til að læra af. Íslendingum hefur þó tekist að halda taki sínu á Norðmönnum í stórmótunum. Á EM í Danmörku ár- ið 2014 lentu þjóðirnar saman í geysi- lega sterkum riðli því þar voru einnig Ungverjar og Spánverjar. Fyrsti leikur Íslands á mótinu var gegn Noregi og var geysilega mik- ilvægt að landa sigri til að komast áfram í milliriðil. Spánn var ríkjandi heimsmeistari og Ungverjaland lék um verðlaun á ÓL tveimur árum fyrr í London en minnumst ekki orði á það meir. Ísland sigraði Noreg 31:26 hinn 12. janúar í Álaborg. Eins og í hinum tveimur leikjunum sem hér hafa verið rifjaðir upp var byrjun íslenska liðs- ins í leiknum sérlega góð. Ísland komst í 6:1 og var 16:10 yfir að lokn- um fyrri hálfleik. Lykilmaður í sóknarleik Íslands, Aron Pálmarsson, sneri sig á ökkla á fyrsta korterinu og kom ekki meira við sögu í leiknum. Hann hafði þá gert tvö mörk en íslensku landsliðs- mennirnir létu ekki þá blóðtöku á sig fá. Liðið lék virkilega vel og leit aldrei um öxl. Um tíma í síðari hálfleik var staðan 22:19 en spennan í leiknum varð ekki meiri en svo. Sverre Jak- obsson tók hraustlega á Norð- mönnum og fékk þrjár brottvísanir en það kom ekki að sök. Vignir Svav- arsson „fór hamförum“ í miðri vörn- inni sagði í umfjöllun Ívars Bene- diktssonar í Morgunblaðinu. Guðjón með 200. EM-markið Fyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðs- son var markahæstur með 9/2 mörk og rauf 200 marka múrinn í Evrópu- leikjum í leiknum. Alexander Pet- ersson var ekki með á mótinu og Ólafur Stefánsson hafði látið staðar numið með landsliðinu. Hlutverk Ás- geirs Arnar Hallgrímssonar var því mun stærra en yfirleitt áður og hann skilaði sex mörkum gegn Noregi. Aron Kristjánsson stýrði íslenska liðinu í mótinu og Gunnar Magnússon var honum til aðstoðar. „Það var mik- il grimmd í mönnum í upphafi leiks- ins. Þannig tókst okkur aðeins að slá Norðmenn út af laginu. Vörnin var frábær og markvarslan einnig sem gaf okkur kost á að refsa Norð- mönnum með hraðaupphlaupum. Auk þess var sóknarleikurinn beittur, var vel stýrt. Þar af leiðandi var um að ræða afar góðan leik hjá okkur að mörgu leyti,“ sagði Aron við Morg- unblaðið. Frábært að geta slökkt í þeim „Þetta var alveg geggjað og gaman að eiga smáhlutverk í þessum flotta leik,“ sagði Gunnar Steinn Jónsson við Morgunblaðið en hann lék sinn fyrsta leik á stórmóti með íslenska landsliðinu. Gunnar þurfti að láta til sín taka vegna meiðsla Arons og gerði það. „Norðmenn voru kok- hraustir fyrir leikinn og því frábært að geta slökkt í þeim á sannfærandi hátt.“ Ísland hafnaði í 5. sæti á EM 2014 eftir sigur á Póllandi, 28:27, í leiknum um 5. sætið. Ísland tapaði einungis tveimur leikjum af sjö þegar upp var staðið og gerðist það gegn toppliðum, Spáni og Danmörku. Markahæstir á EM Mörk Fjöldi leikja 1 Guðjón Valur Sigurðsson 256 51 2 Ólafur Stefánsson 184 33 3 Snorri St. Guðjónsson 143 33 4 Róbert Gunnarsson 107 37 5 Arnór Atlason 89 26 6 Alexander Petersson 87 27 7 Aron Pálmarsson 76 23 8 Ásgeir Örn Hallgrímsson 63 36 9 Patrekur Jóhannesson 57 16 10 Sigfús Sigurðsson 44 22 11 Valdimar Grímsson 41 6 12 Vignir Svavarsson 35 36 13 Rúnar Kárason 31 13 14 Þórir Ólafsson 31 18 15 Dagur Sigurðsson 28 16 16 Einar Örn Jónsson 28 11 17 Gústaf Bjarnason 23 10 18 Jaliesky Garcia 18 5 19 Einar Hólmgeirsson 17 10 20 Róbert Sighvatsson 17 16 Leikjahæstir á EM Leikir Fjöldi móta 1 Guðjón Valur Sigurðsson 51 9 2 Róbert Gunnarsson 37 7 3 Ásgeir Örn Hallgrímsson 36 7 4 Vignir Svavarsson 36 6 5 Snorri Steinn Guðjónss. 33 6 6 Ólafur Stefánsson 33 6 7 Alexander Petersson 27 5 8 Arnór Atlason 26 5 9 Björgvin Páll Gústavss. 24 4 10 Sverre A. Jakobsson 24 4 11 Aron Pálmarsson 23 4 12 Sigfús Sigurðsson 22 4 13 Hreiðar Levý Guðmundss. 21 4 14 Ólafur A. Guðmundsson 20 4 15 Þórir Ólafsson 18 3 16 Guðmundur Hrafnkelss. 17 3 17 Dagur Sigurðsson 16 3 18 Patrekur Jóhannesson 16 3 19 Róbert Sighvatsson 16 3 20 Jafnir með 14 leiki: Ingimundur Ingimundars. 14 2 Logi Geirsson 14 2 Kári Kristján Kristjánss. 14 3 Rúnar Sigtryggsson 14 2 Morgunblaðið/Kristinn Danaleikurinn Ingimundur Ingimundarson, Logi Geirsson, Sverre Jakobsson og Arnór Atlason fagna sigrinum sæta gegn Dönum í Austurríki 2010. Ísland á EM í handknattleik karla EM 2000 Króatíu 1 sigur 5 töp 11. sæti af 12 Þjálfari: Þorbjörn Jón Jensson Ísland - Svíþjóð 23:31 Ísland - Portúgal 25:28 Ísland - Rússland 23:25 Ísland - Danmörk 24:26 Ísland - Slóvenía 26:27 Ísland - Úkraína 26:25 Ísland - Spánn 24:24 Ísland - Slóvenía 31:25 Ísland - Sviss 33:22 Ísland - Frakkland 26:26 Ísland - Júgóslavía 34:26 Ísland - Þýskaland 29:24 Ísland - Svíþjóð 22:33 Ísland - Danmörk 22:29 EM 2002 Svíþjóð 4. sæti af 16 Þjálfari: Guðmundur Þórður Guðmundsson 4 sigrar 2 töp2 jafnt. Ísland - Slóvenía 28:34 Ísland - Ungverjal. 29:32 Ísland - Tékkland 30:30 EM 2004 Slóveníu 13. sæti af 16 Þjálfari: Guðmundur Þórður Guðmundsson 1 jafntefli 2 töp Ísland - Serb./Svartfj. 36:31 Ísland - Danmörk 28:28 Ísland - Ungverjal. 31:35 Ísland - Rússland 34:32 Ísland - Króatía 28:29 Ísland - Noregur 33:36 EM 2006 Sviss 7. sæti af 16 Þjálfari: Viggó Valdemar Sigurðsson 2 sigrar 3 töp1 jafnt. Ísland - Svíþjóð 19:24 Ísland - Slóvakía 28:22 Ísland - Frakkland 21:30 Ísland - Þýskaland 27:35 Ísland - Ungverjal. 36:28 Ísland - Spánn 26:33 EM 2008 Noregi 11. sæti af 16 Þjálfari: Alfreð Gíslason 2 sigrar 4 töp Ísland - Serbía 29:29 Ísland - Austurríki 37:37 Ísland - Danmörk 27:22 Ísland - Króatía 26:26 Ísland - Rússland 38:30 Ísland - Noregur 35:34 Ísland - Frakkland 28:36 Ísland - Pólland 29:26 EM 2010 Austurríki 3. sæti af 16 Þjálfari: Guðmundur Þórður Guðmundsson 4 sigrar 1 töp3 jafnt. Ísland - Noregur 31:26 Ísland - Ungverjal. 27:27 Ísland - Spánn 28:33 Ísland - Austurríki 33:27 Ísland - Makedónía 29:27 Ísland - Danmörk 23:32 Ísland - Pólland 28:27 EM 2014 Danmörku 5. sæti af 16 Þjálfari: Aron Kristjánsson 4 sigrar 2 töp1 jafnt. Ísland - Noregur 26:25 Ísland - Hv.-Rússl. 38:39 Ísland - Króatía 28:37 EM 2016 Póllandi 13. sæti af 16 Þjálfari: Aron Kristjánsson 1 sigur 2 töp Ísland - Króatía 29:31 Ísland - Noregur 34:32 Ísland - Slóvenía 32:34 Ísland - Ungverjal. 27:21 Ísland - Spánn 26:31 Ísland - Frakkland 29:29 EM 2012 Serbíu 10. sæti af 16 Þjálfari: Guðmundur Þórður Guðmundsson 2 sigrar 3 töp1 jafnt. Samtals 24 töp 9 jafnt. 20 sigrar Heildarmarkatala: 1.519 : 1.548 EM-leikir: 53 Leikmenn alls: 58

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.