Morgunblaðið - 07.02.2018, Side 8

Morgunblaðið - 07.02.2018, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2018 Þórshöfn í Fær- eyjum verður heiðursgestur á Menningarnótt í Reykjavík í ágúst næstkomandi. Boðið var stað- fest á síðasta fundi borgarráðs. Af þessu tilefni hefur Dagur B. Eggertsson borgarstjóri ritað Anniku Olsen, borgarstjóra í Þórshöfn, formlegt boðsbréf. Þar kemur fram að Menn- ingarnótt sé afmælishátíð Reykja- víkurborgar og verði haldin í 23. skipti hinn 18. ágúst 2018. „Menn- ingarnótt er hátíð sem allir borgar- búar skapa og upplifa saman, úti á torgum og götum miðborgarinnar, í bakgörðum og söfnum, fyrirtækjum og ekki síst í húsunum í bænum,“ segir borgarstjóri. Dagur rifjar upp að um árabil hafi tíðkast að bjóða völdum sveitar- félögum að vera heiðursgestur á Menningarnótt. „Tórshavnar komm- una var slíkur gestur á hátíðinni 2007. Dagskrá Tórshavnar þótti tak- ast mjög vel og vorum við afar snort- in af framlögum þeirra frábæru listamanna ykkar sem þátt tóku,“ segir Dagur. sisi@mbl.is Þórshöfn heiðursgest- ur í ágúst Annika Olsen Ekki verður sagt að þeir stjórn-málamenn sem skora hæst á mælistiku stjórnmálalegs rétttrún- aðar séu endilega í hópi hinna skemmtilegustu. En þeir komast sumir langt á blind- um rétttrúnaði.    Lýðræðið er ungten jafnvel langt fram eftir stuttum líftíma þess þótti það megin- forsenda þess að taka mætti stjórn- málamenn alvarlega að þeir væru sannanlega með leiðinlegustu mönnum. Það þótti gáfnamerki gott.    Þeir sem varð á að sýna smásnert af kímnigáfu áttu lengi vel erfitt uppdráttar. Þótt útlit lúti smekk, sem er mismunandi, þá er talið að Trudeau forsætisráðherra Kanada sé með snotrustu stjórn- málamönnum. Væri til embætti æðstaprests rétttrúnaðar fengi hann það án auglýsingar.    Á opnum fundi nýlega leiðréttiTrudeau konu sem talaði um „the mankind“ (mannkynið) og taldi betra að tala um „the people- kind“ (fólkskynið).    Á Íslandi leysti höfundur Njáluþetta gervivandamál í eitt skipti fyrir öll þegar hann kunn- gerði að Bergþóra væri í senn „kvenskörungur“ og „drengur góður“.    Kannski þess vegna amast eng-inn karl við „móðurmálinu“, „móður jörð“, né því að móður- eyrað sé þunnt þegar afkvæmið á í hlut. Og þótt körlum þyki vænt um börnin sín efast varla nokkur um að mildast sé móðurhjartað. Þeir hafa loks gefið eftir allt gort um karl- legginn enda kvenleggurinn örugg- ari. Justin Trudeau Hugprúður riddari rétttrúnaðar STAKSTEINAR Íbúafundur um borgarmál í dag miðvikudag 7. febrúar kl. 20:00 í Golfskálanum Grafarholti Hvert stefnir Reykjavík Kaffi og kleinur í boði Allir velkomnir Veður víða um heim 6.2., kl. 18.00 Reykjavík -3 skýjað Bolungarvík -4 snjóél Akureyri -3 skýjað Nuuk -2 snjókoma Þórshöfn 0 léttskýjað Ósló -4 skýjað Kaupmannahöfn -3 skýjað Stokkhólmur -5 snjókoma Helsinki -5 snjókoma Lúxemborg -1 snjókoma Brussel 0 snjókoma Dublin 3 léttskýjað Glasgow 3 heiðskírt London 2 snjóél París -1 snjókoma Amsterdam 0 heiðskírt Hamborg -1 heiðskírt Berlín -2 heiðskírt Vín 0 skýjað Moskva -13 snjókoma Algarve 13 heiðskírt Madríd 5 skýjað Barcelona 11 skýjað Mallorca 10 rigning Róm 12 rigning Aþena 13 heiðskírt Winnipeg -22 skýjað Montreal -7 snjókoma New York -1 alskýjað Chicago -12 snjókoma Orlando 21 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 7. febrúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:49 17:36 ÍSAFJÖRÐUR 10:08 17:27 SIGLUFJÖRÐUR 9:51 17:09 DJÚPIVOGUR 9:22 17:01 Matvælastofnun varar neytendur með glútenóþol við vegan-græn- metislasagna. Varan er merkt glútenlaus en inniheldur heil- hveiti (glúten). Grímur kokkur sem framleiðir vöruna hefur í samráði við Matvælastofnun hafið innköllun á öllum lotum sem framleiddar eru fyrir 5. febrúar 2018. Glúten er einn af þeim ofnæm- is- og óþolsvöldum sem skylt er að merkja á innihaldslýsingu á matvælum. Einnig voru gerðar athugasemdir varðandi aðra þætti á merkingum vörunnar. Innkalla lasagna vegna glútens Viðskipti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.