Morgunblaðið - 07.02.2018, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2018
innbyggðum gufugleypi
SpAnhellubORðmeð
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
lOSnAðu Við hÁfinn
Þýska hönnunarfyrirtækið BORA hefur unnið til
margra verðlauna fyrir BORA spanhelluborðin sem eru
með innbyggðum gufugleypi. Sparaðu pláss njóttu
hreins lofts þegar þú eldar og losnaðu við fitu sem sest
um allt eldhús sem fylgir eldamennskunni.
ÞÝSK VeRðlAunAhönnun
Sjámyndbönd á friform.is
5 ára ábyrgð á öllum raftækjum
TÆKNIBYLTING
InnByggðuRgufugleypIR í helluBORðI.
MeIRApláSS, engIn fItA, BetRAlOft.
fRÁbÆR
nÝjung
enginn hÁfuR
eKKeRtVeSen
Opið:
Mán. - fim. kl. 09 til 18
föstudaga kl. 09 til 17
laugardagar kl. 11 til 15
Sveitarfélagið Hörgársveit hlaut í
gær Orðsporið 2018, hvatningar-
verðlaun sem eru veitt á degi leik-
skólans, 6. febrúar ár hvert.
Fram kemur í tilkynningu frá
Kennarasambandi Íslands að Hörg-
ársveit hljóti verðlaunin í ár fyrir að
vera það sveitarfélag sem státi af
hæsta hlutfalli leikskólakennara
sem starfa við uppeldi og menntun
leikskólabarna en hlutfall leikskóla-
kennara í leikskólanum Álfasteini í
Hörgársveit sé 84 prósent og því vel
Orðsporið fór til
Hörgársveitar
Í Álfasteini Orðsporið var afhent í leikskólanum Álfasteini í gær.
yfir lögbundnu lágmarki sem er
66,66%.
Sól í hjarta
Heilsuleikskólinn Álfasteinn sem
er eini leikskóli Hörgársveitar hefur
verið starfræktur í 22 ár og rúmar
32 börn. Leikskólastjóri er Hugrún
Ósk Hermannsdóttir og hefur hún
verið við stjórnvölinn nánast frá
upphafi. Einkunnarorð Álfasteins
eru „með sól í hjarta“ og er áhersla
lögð á umhyggju fyrir barninu.
Tillaga Bjartrar
framtíðar um að
sýnt verði frá
leik Íslands og
Argentínu í loka-
keppni HM í
knattspyrnu á
risaskjá á Garða-
torgi var lögð
fram á bæjar-
ráðsfundi Garða-
bæjar í morgun.
„Í tilefni af fyrsta landsleik Íslands
í lokakeppni HM í Rússlandi í
sumar, leggur Björt framtíð til að
bæjarfélagið beiti sér fyrir skipu-
lagningu viðburðar á Garðatorgi,
þar sem íbúum og öðrum áhuga-
sömum verði boðin sýning á leikn-
um á stórum skjá,“ segir í tillög-
unni. Í greinargerð með henni
kemur fram að leikurinn verði spil-
aður laugardaginn 16. júní.
Leikurinn við Arg-
entínu á risaskjá
Fótbolti Sýningin
yrði á Garðatorgi.
Töluvert dregur
úr fjölgun brott-
fara erlendra
ferðamanna um
Keflavíkurflug-
völl á milli ára í
janúar nú miðað
við síðustu ár,
samkvæmt taln-
ingum Ferða-
málastofu og
Isavia í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar. Aukningin nem-
ur 8,5 prósentum milli áranna 2017
og 2018 sem er álíka aukning og
var í nóvember og desember. Á
milli áranna 2016 og 2017 var aukn-
ingin hins vegar 75,3 prósent. Á
milli 2015 og 2016 var hún 23,6 pró-
sent og á milli áranna 2014 og 2015
var aukningin 34,5 prósent.
Dregur úr fjölgun
vetrarferðamanna
Ferðamenn Fækk-
un varð í janúar.
Tillögu Mörtu
Guðjónsdóttur,
borgarfulltrúa
Sjálfstæðis-
flokksins, þess
efnis að hafinn
verði undirbún-
ingur að því að
hefja útsend-
ingar frá nefnd-
um og ráðum
borgarinnar var
vísað frá með tíu atkvæðum gegn
fjórum á borgarstjórnarfundi í dag.
Einn borgarfulltrúi sat hjá. Marta
og Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi
VG og forseti borgarstjórnar, tók-
ust nokkuð harkalega á um tillög-
una en Líf skildi ekki hvers vegna
verið væri að leggja hana fram
núna. Líf benti á að Júlíus Vífill
Ingvarsson, fyrrverandi borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hefði
lagt fram svipaða tillögu fyrir
þremur árum og heimilt væri að
sýna frá fundum, væri þess óskað.
Tillaga um beinar
útsendingar felld
Marta
Guðjónsdóttir
Dómstólasýslan
verður til húsa á
Suðurlandsbraut
14, 108 Reykja-
vík. Leigusamn-
ingur til fimm
ára var undirrit-
aður í dag. Starf-
semin mun flytj-
ast þangað 15.
mars næstkom-
andi í rúmlega
200 fermetra húsnæði. Í húsnæðinu
verður meðal annars gert ráð fyrir
fundaraðstöðu stjórnar dómstóla-
sýslunnar sem sömuleiðis má nýta
fyrir fræðslu af ýmsum toga, fyrir
starfsmenn dómstólanna og aðra.
Einnig verður jafnframt gert ráð
fyrir aðstöðu fyrir nefnd um dóm-
arastörf og dómnefnd um hæfni
umsækjenda um embætti dómara
(hæfnisnefnd).
Dómstólasýslan fær
200 fm húsnæði
Dómstólasýslan
Samningur til 5 ára.