Morgunblaðið - 07.02.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2018
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
KOMDU OG
REYNSLUAKTU
NÝJUM NISSANMICRA
NISSANMICRA
VERÐ FRÁ: 2.190.000 KR.
HUGVITSSAMLEG
NEYÐARHEMLUN
ELDSNEYTISNOTKUN FRÁ:
DÍSIL 3,2 L/100 KM.*
BENSÍN 4,4 L/100 KM.*
AKGREINAVIÐVÖRUN
OG LEIÐRÉTTING
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
6
5
2
6
*M
ið
að
vi
ð
up
pg
ef
na
rt
öl
ur
fra
m
le
ið
an
da
um
el
ds
ne
yt
is
no
tk
un
íb
lö
nd
uð
um
ak
st
ri.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Rannsóknaskipið Árni Friðriksson
fer til frekari loðnumælinga um leið
og veður leyfir. Haldið verður á
loðnuslóð vestur af Vestfjörðum og
landgrunnskanturinn kannaður aust-
ur að Kolbeinseyjarhrygg.
Markmiðið er að kanna hvort bæst
hafi í loðnugöngur norðvestur af
landinu frá mælingum í lok janúar.
Ekki er fyrirhugað að fara austur fyr-
ir land og mæla göngurnar, sem þá
voru mældar í tveimur yfirferðum, að
sögn Þorsteins Sigurðssonar, fiski-
fræðings og sviðsstjóra uppsjávarlíf-
ríkis á Hafrannsóknastofnun.
Gæti skilað sér á lengri tíma
Hann segir að rökin fyrir þessum
leiðangri séu þau að síðustu ár hafi
hluti hrygningargöngunnar komið
seint inn á landgrunnskantinn norð-
vestur af landinu. Í haust hafi loðnan
verið langt norður í hafi og allt eins sé
líklegt að hún skili sér inn á lengri
tíma. Vandinn sé hins vegar sá að
veðurspáin sé afleit, en reynt verði að
sæta lagi þegar rofi til. Hann segir að
hitt rannsóknaskipið, Bjarni Sæ-
mundsson, sé í öðrum verkefnum.
Útreikningum á loðnumælingum
beggja rannsóknaskipanna með að-
komu veiðiskipa, lauk á föstudag í síð-
ustu viku. Í kjölfarið var gefin út
fréttatilkynning þar sem sagði meðal
annars:
„Gildandi aflaregla byggist á því að
skilja eftir 150 þúsund tonn til hrygn-
ingar með 95% líkum. Tekur aflaregl-
an tillit til óvissumats í mælingunum,
vaxtar og náttúrulegrar dánartölu
loðnu, auk þess sem afrán þorsks, ýsu
og ufsa á loðnu er metið.
Samkvæmt samantekt endurtek-
inna bergmálsmælinga er metið að
hrygningarstofn loðnu hafi verið
849.000 tonn hinn 15. janúar. Þá er
tekið tillit til þess afla sem hafði
veiðst þegar mælingar voru gerðar. Í
samræmi við ofangreinda aflareglu
verður heildaraflamark á vertíðinni
2017/2018 því 285 þúsund tonn, eða 77
þúsund tonnum hærra en ákvarðað
var í október síðastliðnum.“
Mikilvægt að sé vel gert
Meðal útgerðarmanna og sjó-
manna voru væntingar um meiri
aukningu og spurður hvort sérfræð-
ingar Hafrannsóknastofnunar hafi
orðið fyrir miklum þrýstingi segir
Þorsteinn Sigurðsson: „Við skiljum
hvaða hagsmunir eru að baki og
mikilvægi þess að þetta sé gert vel.
Það er það sem við höfum reynt að
gera og eftir þeim reglum sem við
vinnum með. Það er slæmt ef menn
skilja ekki nýju aflaregluna því við
höfum oft farið yfir hana með hags-
munaaðilum. Það er þá verkefni að
gera það enn einu sinni, en það gerist
ekki fyrr en að lokinni loðnuvertíð.“
Garðar Svavarsson, framkvæmda-
stjóri uppsjávarsviðs HB Granda,
segir á heimasíðu fyrirtækisins að út-
gerðarmenn standi með vísinda-
mönnum í þeirri vegferð að ná sem
best utan um stöðu loðnustofnsins og
tryggja að nýting hans sé með ábyrg-
um hætti.
Er óbreytt aflaregla best?
,,Það verður hins vegar að eiga sér
stað málefnalegt samtal um hvort nú-
verandi óbreytt aflaregla sé best til
þess fallin að tryggja hámarks af-
rakstur með ábyrgum hætti. Ég geri
ráð fyrir því að þetta samtal muni
eiga sér stað á komandi mánuðum.
Verkefnið núna er að fara yfir það
með Hafrannsóknastofnun hvaða
kostir eru í stöðunni. Trú okkar er að
tilefni sé til að leyfa meiri loðnuveiði,
ákvörðun um slíkt verður þó ein-
göngu tekin ef niðurstaða frekari
mælinga gefur tilefni til þess,“ er haft
eftir Garðari á heimasíðunni.
Enn haldið til loðnumælinga
Kannað hvort bæst hafi í göngur norðvestur af landinu Í haust var loðnan langt norður í hafi
Morgunblaðið/Börkur Kjartansson
Víkingur AK Eftir gott kast á miðunum fyrir austan land í lok janúar, Halldór Jónasson, Albert Páll Albertsson og
Brynjar Ingason. Síðustu daga hafa nokkur uppsjávarskipanna reynt fyrir sér á kolmunna fyrir sunnan Færeyjar.
Eftir aukningu um 77 þúsund
tonn í síðustu viku verður
heildaraflamark á loðnu við
Ísland 285 þúsund tonn á ver-
tíðinni. Af þeim kvóta koma
alls 199.826 tonn í hlut Ís-
lendinga. Samkvæmt samn-
ingum við nágrannaþjóðir
mega Færeyingar veiða
14.250 tonn við landið. Heim-
ildir Grænlendinga voru
31.350 tonn, en þeir fram-
seldu um 20 þúsund tonn til
Evrópusambandsins, sem aft-
ur framseldi þær heimildir til
Noregs. Grænlendingar mega
því veiða 11.350 tonn, en
Norðmenn alls 73.824 tonn af
loðnu í lögsögunni á þessari
vertíð.
Í fyrra var endanlegur
heildarkvóti upp á 299 þús-
und tonn gefinn út er nokkuð
var liðið á vertíð. Þar af komu
196 þúsund tonn í hlut ís-
lenskra skipa og var verðmæt-
ið áætlað um 17 milljarðar.
Mikið var fryst af hrognum í
lok vertíðar, en nú hafa nokk-
ur útgerðarfyrirtæki veitt
verulegan hluta af kvótanum.
199.826 tonn
til Íslendinga
HEIMILDIR Í LOÐNU