Morgunblaðið - 07.02.2018, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2018
Mest seldu ofnar
á Norðurlöndum
áreiðanlegur hitagjafi
10 ára ábyrgð
Draghálsi 14 - 16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is
Morgunblaðið/Hari
Heilsu- og lífsstílsmarkþjálfi Linda Björk starfar á Íslandi og í Portúgal.
NÚNA… heitir hún Linda
Björk Guðrúnardóttir og er nýbúin
að koma sér upp aðstöðu á Man-
hattan hárgreiðslustofunni í Egils-
höll þar sem hún er sjálfstætt
starfandi heilsu- og lífsstílsmark-
þjálfi með áherslu á meðferð sem
ætlað er að auka fólki vellíðan og
einbeitingu. „Þótt margt hafi drifið
á dagana síðan Grýlurnar voru og
hétu hef ég undanfarin átta ár
unnið markvisst að því að byggja
upp starfsferil á þessu sviði og láta
drauminn rætast um að starfa í
fleiri en einu landi. Undanfarið hef
ég verið í samstarfi við fimm
stjörnu hótel í Algarve í Portúgal
um svipaða meðferð og ég býð upp
á hér heima.“
Starfa sinna vegna er Linda
Björk á ferð og flugi og yfirleitt
ekki lengur en sex vikur á hvorum
stað, Íslandi og Portúgal. Leiðin
að draumastarfinu var hvorki bein
né greið og raunar með miklum
ólíkindum eins og kemur í ljós síð-
ar í viðtalinu. Hana skortir a.m.k.
ekki efni í ævisöguna, sem hún er
byrjuð að skrifa og er „alveg frá
því áður en ég fæddist“ eins og
hún lýsir henni.
Förum þó ekki lengra en til
æskuáranna, áður en Linda Björk
varð Grýla. „Ég ólst upp á Bíldu-
dal, fyrst hjá ömmu og afa til átta
ára aldurs, síðan hjá mömmu og
manni hennar. Fimmtán ára var
ég rekin að heiman, sem varð mér
gríðarlegt áfall, og fór þá aftur til
ömmu og afa, sem þá bjuggu á
Eyrarbakka. Ég hafði verið í
klassísku tónlistarnámi, skrifað
mikið og var alltaf að semja tón-
list, en hætti öllu slíku og fór bara
að djamma. Innst inni var ég þó
mikil ömmustelpa, gekk í ullarbol
og tók lýsi. Eftir tvo vetur á
heimavistinni í Gagnfræðaskól-
anum í Reykholti í Borgarfirði
hætti ég í skóla og tók ekki upp
þráðinn fyrir en löngu seinna.“
Seldi trommusettið
fyrir barnarúm
Fljótlega eftir Linda Björk byrj-
aði í Grýlunum fluttist hún til
Reykjavíkur. Þegar Grýlukaflanum
lauk trommaði hún um skeið með
hljómsveit sem var fastráðin á
Keflavíkurflugvelli en hundleiddist
að spila alltaf annarra manna lög –
trommaði yfir sig svo notuð séu
hennar orð. „Síðan vann ég í mörg
ár á röntgendeild Landakotsspít-
ala, varð ólétt 1984 og seldi
trommusettið fyrir barnarúm. Ég
var löngu hætt að djamma, keypti
íbúð og var ein að basla með son-
inn þar til ég sló til 1990 og tók
boði vinkonu minnar um að koma
og búa hjá sér í Lundi í Svíþjóð.“
Þar ytra kynntist Linda Björk
Íslendingi sem hún bjó með næstu
sjö árin. Hún dreif sig í mennta-
skóla og tók stúdentspróf áður en
dóttir þeirra leit dagsins ljós 1994.
Fram að því hafði hún verið viðloð-
andi félagsmiðstöð til að virkja at-
vinnulausa, sem hún hafði ásamt
fleirum verið beðin um að setja á
laggirnar.
„Eftir dvölina í Lundi bjuggum
við á Englandi þar sem sambýlis-
manninum hafði verið boðin rann-
sóknarstaða í háskóla. Árið 1996
fluttum við til Húsavíkur og ég
byrjaði að vinna í sparisjóðnum.
Þótt ég ætti ekki rætur á þessum
slóðum ákvað ég að búa þar áfram
með börnunum eftir að ég og sam-
býlismaðurinn skildum. Þeim leið
vel, ég var í góðu starfi, söng í
kór, tók fjórða stig bæði á píanó
og í klassískum söng og eitt ár í
djasssöng í Tónlistarskólanum á
Húsavík,“ segir Linda Björk, sem
hafði líka nóg að gera í félagslífi
bæjarins, lék meira að segja Jakob
í Bangsímon, sem Leikfélagið Bú-
kolla sýndi í Ljósvetningabúð.
Alþjóðalögfræði í Friðarhá-
skóla Sameinuðu þjóðanna
Þótt í henni hafi lengi blundaði
löngun til að fara í háskóla fannst
henni slíkt bara vera fyrir klárt
fólk – ekki hana. Sjálfstraustið var
ekki upp á marga fiska. Henni óx
Grýlan sem losaði
orkuna úr læðingi
1981 Linda Björk Hreiðarsdóttir var átján ára og hafði aldrei spilað átrommur þegar hún fór í prufu hjá Ragnhildi Gísladóttur sem vant-
aði trommuleikara í Grýlurnar. Hún náði að halda takti, var ráðin
og spilaði með þessari þekktustu kvennasveit íslensku rokksögunnar
þar til sveitin hætti 1983. Grýlurnar sendu frá sér fjögurra laga plötu
og breiðskífuna Mávastellið, fóru í tónleikaferðalög til útlanda og á
kostum í kvikmyndinni Með allt á hreinu. En hvar er hún nú,
trommarinn sem barði húðirnar í smellum á borð við Sísí fríkar út
og íslenska frægðarsólin varpaði um hríð geislum sínum á?
Frægðarsól Grýlanna reis hæst þegar þær léku í kvikmynd Stuðmanna,
Með allt á hreinu, árið 1982, undir nafninu Gærurnar. Árið eftir gáfu þær
út breiðskífuna Mávastellið. Hljómsveitin fór í tónleikaferð til Norður-
landanna og Bandaríkjanna í boði Íslendingafélagsins þar.
Hljómsveitin var skipuð þeim Ragnhildi Gísladóttur, söngkonu og
hljómborðsleikara, Herdísi Hallvarðsdóttur bassaleikara, Ingu Rún
Pálmarsdóttur gítarleikara og Lindu Björk trommuleikara sem allar fóru
í sína áttina hver eftir að sveitin lagði upp laupana.
Með allt á hreinu
GRÝLURNAR 1981-1983
Grýlurnar F.v. Ragnhildur, Inga Rún, Linda Björk og Herdís.