Morgunblaðið - 15.02.2018, Blaðsíða 1
SAMSTARFSAÐILARMIKILVÆGIR
Aeolus er róbót sem sér um heimilsverkin og meira til. 4
Unnið
Prendo Simulations hefur þróað hermi-
líkön og þjálfunarbúnað þar sem læra
má stjórnun með tölvuleik. 7
VIÐSKIPTA
Jón Helgi Pétursson hjá Íslenskrum verðbréfum
segir mikilvægt að hafa öfluga samstarfsa
sem veita gott aðgengi að upplýsingum
LÆRT ÍGEGNUMLEIK
í samvinnu við
ðila
. 4
FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2018
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.
Óánægja vegna afskipta
Mikillar óánægju gætir nú í hlut-
hafahópi greiðslukortafyrirtækisins
Borgunar vegna framgöngu Birnu
Einarsdóttur, bankastjóra Íslands-
banka, gagnvart stjórn fyrirtækisins.
Bankinn á 63,5% í Borgun á móti öðr-
um hluthöfum. Tilnefnir bankinn þrjá
af fimm stjórnarmönnum þess.
Óánægjan mun lúta að því sem
heimildarmenn ViðskiptaMoggans
kalla „óeðlileg“ afskipti bankastjór-
ans af ráðningarferli nýs forstjóra
Borgunar.
Undir lok síðasta árs var tilkynnt
um að Haukur Oddsson myndi láta af
starfi forstjóra fyrirtækisins eftir tíu
ár í starfi. Var ráðgjafarfyrirtækinu
Intellecta falið að sjá um umsóknar-
ferlið en tengiliður þess við fyrir-
tækið var Erlendur Magnússon,
stjórnarformaður Borgunar. Ákvað
stjórnin í byrjun nýs árs að ráða í
starfið Sæmund Sæmundsson, sem
verið hafði framkvæmdastjóri hjá
Sjóvá til þess tíma. Meðan á ráðning-
arferlinu stóð mun Birna hafa haft
samband við stjórnarmenn og lagt
mjög hart að þeim að ráða Katrínu
Olgu Jóhannesdóttur, fyrrverandi
eiganda Já og núverandi formann
Viðskiptaráðs Íslands, í starfið. Birna
á sæti í stjórn og framkvæmdastjórn
Viðskiptaráðs.
Aðalfundur Borgunar fer fram um
miðjan mars næstkomandi. Hefur
Íslandsbanki nú tilkynnt tveimur
stjórnarmönnum af þremur sem
bankinn tilnefnir, að ekki sé óskað
starfskrafta þeirra lengur á vettvangi
Borgunar. Þar mun vera um stjórn-
arformanninn og Sigrúnu Helgu Jó-
hannsdóttur meðstjórnanda að
ræða. Athygli vekur að þriðji stjórn-
armaðurinn, Björg Sigurðardóttir,
mun aftur verða tilnefnda af bank-
anum. Björg er eiginkona Gunnars
Baldvinssonar, forstjóra Almenna
lífeyrissjóðsins, sem um langt árabil
hefur átt í nánu samstarfi við Ís-
landsbanka og var raunar í rekstri
bankans allt til miðs árs 2009.
Aðeins óháðir stjórnarmenn
Hluthafar í Borgun telja banka-
stjóra Íslandsbanka hafa stigið inn á
starfssvið stjórnar fyrirtækisins
með afskiptum af fyrrnefndu
ráðningarferli. Hafa þeir í samtölum
við ViðskiptaMoggann vísað í sátt
sem Íslandsbanki gerði við
Samkeppniseftirlitið árið 2014
vegna framkvæmdar á greiðslu-
kortamarkaði. Fól sáttin í sér
greiðslu 380 milljóna króna í sekt
ásamt því að bankinn féllst á að til-
nefna einvörðungu óháða stjórn-
armenn af sinni hálfu í stjórn fyrir-
tækisins.
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Íslandsbanki hefur ákveðið
að skipta út tveimur stjórn-
armönnum sínum í Borg-
un. Fyrir skemmstu urðu
þeir ekki við fyrirmælum
um að ráða tiltekinn ein-
stakling í stól forstjóra.
Samsett mynd/Elín Arnórsdóttir
Bankastjóri Íslandsbanka hafði afskipti af ráðningarferli forstjóra Borgunar.
Úrvalsvísitalan
EUR/ISK
2.000
1.900
1.800
1.700
1.600
1.500
15.8.‘17
15.8.‘17
14.2.‘18
14.2.‘18
1.789,67
1.760,17
130
125
120
115
110
127,6
125,05
Undir lok þessa árs losna ríflega 80
kjarasamningar á almennum vinnu-
markaði. Í mars á næsta ári losna 135
samningar á opinbera markaðnum og
gera má ráð fyrir að margir þeirra
endi á borði ríkissáttasemjara.
Bryndís Hlöðversdóttir hefur haft í
nógu að snúast frá þeim tíma þegar
hún tók við embættinu árið 2015 en
hún segir að nú standi aðilar vinnu-
markaðarins og stjórnvöld í raun á
krossgötum. Nauðsynlegt sé að breyta
vinnulagi við kjarasamningagerðina og
einnig að finna leið til vinnslu launa-
upplýsinga sem sátt geti ríkt um.
Í ítarlegu viðtali í ViðskiptaMogg-
anum í dag ræðir hún um embættið og
áskoranir þess og fer m.a. yfir hvaða
valdheimildir ríkissáttasemjarar í öðr-
um löndum hafa uppi í erminni þegar
reynir á. Það eru heimildir sem Bryn-
dís segir að mætti leiða í lög
hér á landi einnig.
Embættið skortir heimildir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bryndís segir nauðsynlegt að breyta
verklagi við samningagerðina.
Bryndís Hlöðversdóttir
segir að embætti ríkis-
sáttasemjara mætti hafa
fleiri verkfæri þegar kemur
að úrlausn kjaradeilna.
8
Sjóðir stóru tæknifyrirtækj-
anna, eins og Google og Ama-
zon, eru ekki geymdir sem
reiðufé heldur
skuldabréf.
Tæknifyrirtækin
verða að bönkum
10
Í nýliðnu útboði lækkaði verð-
ið sem Sky greiðir fyrir að
sýna fótboltaleiki, úr 11 millj-
ónum punda í 9,3
milljónir á leikinn.
Minna greitt fyrir
úrvalsdeildarleiki
11