Morgunblaðið - 15.02.2018, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2018FRÉTTIR
Við fjármögnum
innflutninginn
fyrir þitt fyrirtæki
Nánari upplýsingar
má finna á kfl.is
Íslensk verðbréf eru eitt af fáum
íslenskum fjármálafyrirtækjum
sem hafa höfuðstöðvar sínar utan
höfuðborgarsvæðisins, er líka í
hópi elstu fjármálafyrirtækja
landsins og fagnaði 30 ára afmæli
í fyrra. Jón Helgi Pétursson sett-
ist í framkvæmdastjórastólinn
síðasta sumar.
Hverjar eru helstu áskor-
anirnar í rekstrinum þessi
misserin?
Helstu áskoranir felast í starfs-
umhverfi fyrirtækisins. Það ríkir
mikil samkeppni á sviði verð-
bréfaviðskipta en á sama tíma
eru eðlilega gerðar ríkar kröfur
af hálfu löggjafans og opinberra
eftirlitsaðila. Það er því verðugt
verkefni að ná fram eðlilegri arð-
semi rekstrar og um leið að upp-
fylla umræddar kröfur. Við erum
þó mjög bjartsýn á að ná því
fram hjá okkur eftir talsverðar
sviptingar undanfarið.
Hver var síðasta ráðstefna
sem þú sóttir?
Sat mjög áhugaverða ráðstefnu
hjá samstarfsaðila okkar Aber-
deen Standard Life í Edinborg í
nóvember síðastliðnum. Það er
afar mikilvægt fyrir fjármálafyr-
irtæki eins og okkur að hafa öfl-
uga samstarfsaðila og þar með
aðgengi að upplýsingum um hvað
er að gerast í heiminum.
Hvaða bók hefur haft mest
áhrif á hvernig þú starfar?
Ég sæki mest í bækur sem
fjalla um fólk fyrr á öldum sem
tekst að vinna úr erfiðum að-
stæðum án þess þó að gera það á
kostnað annarra. Ég reyni að til-
einka mér þetta viðhorf í mínu
lífi, a.m.k. þar sem það á við.
Hvernig heldurðu þekkingu
þinni við?
Fyrst og fremst með sam-
skiptum við fólk en einnig með
því að lesa mér til um hin ýmsu
mál og fylgjast vel með fréttum
af fjármálamörkuðum.
Hugsarðu vel um líkamann?
Almennt séð þá tel ég mig
gera það, reyni að borða hollan
mat og hreyfa mig. Aftur á móti
á ég það til að borða fullmikið,
velja mér hreyfingu sem e.t.v.
hentar mér ekki sem best og taka
of langar pásur frá þeirri tegund
hreyfingar sem ég ætti helst að
stunda.
Hvert væri draumastarfið ef þú
þyrftir að finna þér nýjan
starfa?
Það er svolítið erfitt að svara
því þar sem núverandi starf er al-
gjör draumastaða. Það væri hins-
vegar líka gaman að geta haft
það að atvinnu að starfa innan
íþróttahreyfingarinnar með einum
eða öðrum hætti. Undanfarin 20
ár hef ég verið formaður íþrótta-
félags og golfklúbbs og það væri
vissulega spennandi að geta helg-
að sig slíku starfi að fullu.
Hvað myndirðu læra ef þú
fengir að bæta við þig nýrri
gráðu?
Líklega myndi það tengjast sál-
fræði eða sögu, sem eru jafn-
framt þau fög sem ég hafði
minnstan áhuga á þegar ég var
yngri. Með árunum hefur áhugi
minn hnikast frá því að hugsa
einungis um það sem gert er yfir
í að hugsa um af hverju eitthvað
er gert.
Hvaða kosti og galla sérðu við
rekstrarumhverfið?
Oft á tíðum geta ákveðnir
þættir verið bæði kostir og gallar.
Smæð markaðarins er dæmi um
slíkt þar sem hún getur verið
kostur hvað það varðar að ná til
helstu viðskiptavina en að sama
skapi galli þar sem möguleikar til
sérhæfingar eru takmarkaðri.
Hvað gerirðu til að fá orku og
innblástur í starfi?
Ég tel að lykillinn að því að ná
sem bestum árangri í starfi sé að
ná fram góðu jafnvægi milli vinnu
og einkalífs. Því má segja að það
sem ég geri utan vinnunnar,
hvort heldur sem er að verja tíma
með fjölskyldunni, sprikla í fót-
bolta eða fara í göngur að hausti,
gerir mig orkumeiri og einbeittari
í starfi.
SVIPMYND Jón Helgi Pétursson, frkvstj. Íslenskra verðbréfa
Smæð markaðarins
er bæði kostur og galli
GRÆJAN
Loksins er von á
róbot á mark-
aðinn sem getur
orðið að liði á
heimilinu. Aeo-
lus á að geta not-
að venjulega
ryksugu til að
halda gólfinu
hreinu, og jafn-
vel mundað kúst. Ef drasl er á borð-
um eða óhreint leirtau tínir Aeolus
það upp og setur á sinn stað. Ertu
þyrstur en nennir ekki að standa
upp úr sófanum? Segðu þá Aeolus að
skjótast inn í eldhús fyrir þig og
sækja drykk í
ísskápinn.
Aeolus
vakti mikla
lukku þegar
hann var
frumsýndur á
CES-
raftækjasýn-
ingunni í janúar og á róbotinn að
vera tilbúinn til afhendingar síðar á
þessu ári. Ekki hefur fengist upp-
gefið hvað þetta tækniundur mun
kosta en framleiðendurnir segja
verðmiðann svipaðan og á utan-
landsferð fyrir fjögurra manna fjöl-
skyldu. ai@mbl.is
Róbot sem
hugsar vel
um þig
Skynjarar vakta umhverfið.
Aeolus er
á stærð
við 12 ára
krakka,
en mun
hlýðnari.
NÁM: Stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1994; B.Sc. í
rekstrarfræði frá Háskólanum á Akureyri 1997; MBA í stjórnun frá
The University of Hull 1998. Próf í verðbréfaviskiptum lokið 2001.
STÖRF: Ráðgjafi hjá Rekstri og ráðgjöf Norðurlandi ehf. 1998-
2000; sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Höfðhverfinga 2000-2005;
framkvæmdastjóri ÍV sjóða hf. 2005-2016; forstöðumaður rekstr-
arsviðs Íslenskra verðbréfa hf. 2016-2017; framkvæmdastjóri Ís-
lenskra verðbréfa hf. frá júní 2017.
ÁHUGAMÁL: Flestar íþróttir, þá helst knattspyrna og ver ég ef-
laust að sumra mati helst til miklum tíma í að fylgjast með því
skemmtilega sporti. Er reyndar afar vel kvæntur og er áhugi kon-
unnar litlu minni. Tvö yngri börnin æfa knattspyrnu og gerði elsta
barnið það líka á yngri árum. Stunda golf af áhuga fremur en
getu.
FJÖLDKYLDUHAGIR: Er kvæntur Írisi Þorsteinsdóttur leikskóla-
kennara og eigum við þrjú börn, Birtu Maríu 18 ára, Þorstein
Ágúst 16 ára og Ingu Sóleyju 9 ára.
HIN HLIÐIN
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
„Með árunum hefur áhugi minn hnikast frá því að hugsa einungis um það
sem gert er yfir í að hugsa um af hverju eitthvað er gert.,“ segir Jón Helgi.