Morgunblaðið - 15.02.2018, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 15.02.2018, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2018FÓLK Landsnet Ásmundur Bjarnason hefur verið ráðinn í starf forstöðumanns upplýsingatækni Landsnets þar sem hann mun stýra uppbyggingu og þróun á upplýsingakerfum fyrirtækisins. Í tilkynningu kemur fram að Ásmundur er menntaður rekstrarverkfræðingur M.Sc. frá Álaborgar- háskóla og tölvunarverkfræðingur frá HÍ. Hann hefur undanfarið ár starfað við upplýsingatækniráðgjöf hjá KPMG á Íslandi og þar á undan var hann forstöðumaður upplýsingatækni hjá Sjóvá. Ráðinn í starf forstöðumanns upplýsingatækni SPROTAR Kvika Lilja Jensen mun taka sæti í framkvæmdastjórn Kviku. Lilja hefur starfað hjá Kviku, áður MP banka, frá árinu 2012 og sem yfirlögfræðingur bankans frá árinu 2015. Lilja er með BS-gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands og ML gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Íris Arna Jóhannsdóttir verður yfir skipulagsþróun sam- stæðu. Hún mun hafa yfirumsjón með daglegum rekstri á skrifstofu forstjóra og sinna ýmsum málum fyrir dóttur- félög bankans sem stjórnarformaður Kvika Securities í London og lögfræðingur Júpíters. Íris Arna var yfirlögfræð- ingur Virðingar hf. frá árinu 2016 og fram að samruna Virð- ingar og Kviku. Íris Arna er með kandídatspróf í lögfræði frá Háskóla Íslands og LL.M-gráðu í banka- og fjármála- lögfræði frá The London School of Economics and Politi- cal Science. Ólöf Jónsdóttir mun veita forstöðu stefnumótun og rekstrarstjórnun. Hún mun leiða þróunar- og umbótaverk- efni sem liggja þvert á deildir bankans og stýra rekstrar- nefnd bankans. Ólöf starfaði hjá Auði Capital og síðar Virðingu frá árinu 2008 og fram að samruna Virðingar og Kviku, m.a. sem fjármálastjóri og framkvæmdastóri rekstrarsviðs og forstöðumaður áhættustýringar og upplýsingatæknisviðs. Ólöf er með B.Sc í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc í aðgerðarrannsóknum frá The London School of Economics and Political Science. Skipulagsbreytingar hjá Kviku banka VISTASKIPTI Að mati Tommy Ahlers er mikilvægt að þegar stjórnvöld styðja við bakið á nýsköpun og sprotastarfi að þau var- ist þá freistingu að reyna að velja hverjir munu standa uppi sem sigur- vegarar. Hann segir líka að ný tækni og nýjar lausnir muni valda víð- tækum breytingum á samfélagi og vinnumarkaði, en þar sé samt lítið að óttast og geti valdið miklu tjóni ef brugðist er við með því að reyna að hægja á komu fjórðu iðnbyltingar- innar með inngripum og verndar- stefnu. Tommy er einn af fremstu leiðtog- um danska sprotasamfélagsins, situr í frumkvöðlaráði og tæknirofsráði Danmerkur og flutti erindi á Við- skiptaþingi sem haldið var í gær. Um þær breytingar sem fjórða iðn- byltingin mun hafa í för með sér segir Tommy að ekki þurfi að hafa áhyggj- ur af að gervigreind og sjálfvirkni muni gera stóra hópa fólks atvinnu- lausa. Ný störf verði til í stað þeirra gömlu, nema hvað það verða störf þar sem mannshöndin skapar meiri verð- mæti og gagnast fleirum. „Þegar sjálfakandi bílar munu koma á göt- urnar má t.d. reikna með að fækki mikið í stétt leigubílstjóra. En þar með er ekki sagt að þeir sem vinna við akstur í dag þurfi að mæla göt- urnar, því það mun enn þurfa fólk til að hafa eftirlit með sjálfakandi bíl- unum. Og hver verður þá betur til þess fallinn en reyndur atvinnubíl- stjóri að vakta heilu flotana af bílum úr fjarska og geta gripið inn í ef vand- ræði koma upp? Þekking þeirra mun áfram nýtast, og þarf ekki mikla við- bótarþjálfun fyrir þetta nýja hlut- verk, en munurinn verður sá að einn maður mun getað hjálpað hundruð- um viðskiptavina að komast á milli staða samtímis, frekar en að geta að- eins ekið eina ferð í einu ef hann sæti sjálfur á bak við stýrið.“ Þurfa sveigjanlegt menntakerfi Tommy vill leiðrétta þann mis- skilning að í sjálfvirkni- og gervi- greindarvæddu hagkerfi verði aðeins í boði störf fyrir tölvusnillinga. „Ég kann t.d. ekki sjálfur gervigreindar- forritun, en hef samt engar áhyggjur af framtíðinni. Það sem ég hef frekar áhyggjur af er að fólk taki að örvænta, og að stjórnmálamenn gangi á lagið líkt og við höfum t.d. séð gerast í Bandaríkjunum með kjöri Trumps sem halda má fram að hafi verið komið í embætti af kjósendum sem óttast að falla á milli þilja í þeim breytingum sem eru handan við hornið.“ Þar með er ekki sagt að ekki sé hægt að stuðla að því að breyting- arnar gangi sem best og sársauka- lausast fyrir sig. Tommy segir öflugt og sveigjanlegt menntakerfi vera sterkasta tækið til að hjálpa sem flestum að ná að aðlagast nýjum kröf- um vinnumarkaðarins. „Eitt af því sem þarf að gerast er að við hugsum menntakerfið upp á nýtt. Það gengur ekki lengur að láta fólk fara í háskóla í nokkur ár í kringum tvítugt og sleppa því svo lausu út á vinnumark- aðinn um hálfþrítugt og láta þar við sitja. Það gæti þurft að vera regla frekar en undantekning að t.d. í kringum 35 ára aldurinn taki fólk sér hlé frá störfum í eitt eða tvö ár og bæti við sig menntun á nýju sviði, og setjist kannski aftur á skólabekk í hálft ár 40 eða 45 ára gamalt.“ Menntakerfið myndi þurfa að geta tekið við þessum nemendum, og sinnt þörfum þeirra rétt, og eins þyrfti vinnumarkaður og námslánakerfi að koma til móts við þá: „Þetta fólk er komið á annan stað í lífinu hálffertugt eða hálffimmtugt, með börn á sínu framfæri og ýmsar fjárhagslegar skuldbindingar, og þarf á annars kon- ar stuðningi að halda en ungir náms- menn.“ Einstaklingarnir þurfa líka að bera ábyrgð á sjálfum sér, að sögn Tommy, og ekki ætlast til þess að aðrir hugsi fyrir því hvernig þau geta orðið best í stakk búin fyrir kröfur vinnumarkaðarins. „Sumir virðast hugsa sem svo að þeir hafi gert nóg með því að fá framhaldsmenntun, og vinna svo í fimm eða tíu ár, og reka sig svo á að þekking þeirra og kraftar nýtast ekki lengur – að finnst að þá sé það einfaldlega hlutverk stjórnvalda að gefa þeim pening.“ Elti englafjármagnið Bæði á Íslandi í Danmörku er stjórnvöldum mjög í mun að leggja sprotafyrirtækjum lið og stuðla að nýsköpun. Tommy segir að vissulega fyrir þessar tvær litlu og vel mennt- uðu þjóðir felist mjög spennandi tækifæri í þeirri tæknibyltingu sem er í sjónmáli, en stuðningurinn við ný- sköpunina verði að taka mið af skila- boðum markaðarins. „Það er ekki góðs viti ef stjórnvöld ákveða upp á sitt eindæmi að leggja t.d. ofuráherslu á róbotatækni eða þróun gervigreindar. Stjórnvöld eru ekki góð í að velja sigurvegara, heldur þarf markaðurinn að finna það út og gera til þess hundruð og þúsundir til- rauna með ólíkum fyrirtækjum og frumkvöðlum,“ útskýrir Tommy. „Ef stjórnvöld vilja hjálpa, þá ættu þau að fara leiðir á borð við að láta viðbót- arfjármagn fylgja fjárfestingum englafjárfesta; láta markaðinn koma auga á efnilegu hugmyndirnar og gefa þeim síðan meiri stuðning. Það er einmitt þetta sem var gert með góðum árangri á stöðum eins og Ísrael og Kísildal, þar sem framlög frá hinu opinbera fylgdu fjármagni einkaaðila.“ Þar með er ekki sagt að stjórnvöld megi ekki setja metnaðarfull mark- mið á ákveðnum sviðum. Skýr og já- kvæð skilaboð stjórnmálamanna geti hleypt eldmóði í frumkvöðla og laðað að bæði fjármagn og hæfileikafólk. Minnist Tommy t.d. frægrar ræðu John F. Kennedy frá 1961 þar sem hann setti stefnuna á tunglið, eða þegar Barack Obama sagðist árið 2016 vilja sjá Bandaríkin finna lækn- ingu við krabbameini. „Skýr og kröft- ug sýn getur verið mjög öflugt tæki, en það þýðir ekki að stjórnvöld séu endilega með lokasvarið, og viti bestu leiðina að settu marki.“ Tommy segir þvert á móti að þegar stjórnmálamenn leita lausna þá hætti þeim oft til að velja verkefni sem geta verið nokkurs konar minnisvarðar um embættistíð þeirra: stórar bygg- ingar og verksmiðjur sem hægt er að taka skóflustungu að, og síðan vígja með því að klippa á borða að fjöl- miðlum viðstöddum. „Við sjáum þessa hegðun t.d. í danska heilbrigð- iskerfinu um þessar mundir, þar sem reynt er að bæta kerfið með því að byggja fimm nýja og dýra „ofur“- spítala. Á sama tíma hefur verið beint á að eitt af undirstöðuvandamálum danskrar heilbrigðisþjónustu er lé- legur hugbúnaður, og eitthvað sem hægt væri að laga á tiltölulega ódýr- an og einfaldan hátt – nema hvað það tíðkast ekki að klippa á borða og kalla til fréttamenn þegar nýr hugbúnaður er tekinn í notkun.“ Stuðningurinn elti einkafjármagnið Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Skynsamlegt er að fylgja fordæmi Ísraels og Kísildals þegar kemur að aðstoð stjórnvalda við sprota og ný- sköpun. Danskur nýsköpunarfrömuður segir vinnumark- að fjórðu iðnbyltingarinnar kalla á að fólk getið tekið sér frí frá störfum á fertugs- og fimmtugaldri til að mennta sig. Tommy Ahlers segir stjórn- völd ekki geta vitað hvað verður ofaná, heldur þurfi hundruðir og þúsundir tilrauna í atvinnulífinu til að finna sigurvegarann. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon                             ! "#$ %&'&'  ()*    +,-.&'  / 0  $   1           

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.