Morgunblaðið - 15.02.2018, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2018 7ATVINNULÍF
GÓÐ HEYRN
GLÆÐIR SAMSKIPTI!
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
Með þeim heyrist talmál sérstaklega vel vegna þess
að þau þekkja tal betur en önnur tæki.
Tæknin sem
þekkir tal
Nýju ReSound LiNX 3D
eru framúrskarandi heyrnartæki
ReSound LiNX3
Guy Giffin er gagnrýninn á við-
skiptaháskóla og þær aðferðir sem
notaðar eru til kennslu þar í verk-
efnastjórnun og stjórnun almennt.
„Háskólar um allan heim virðast
vera fastir í einhverju tímaleysi. Á
meðan nýsköpun og þróun er geysi-
lega hröð í geirum eins og bílum,
tölvum, fjarskiptum og geimtækni,
þá er menntun, og sérstaklega
stjórnendamenntun, nánast á sama
stað og hún var á fyrir 500 árum. Það
er engin þróun eða nýsköpun í
gangi,“ segir Giffin í samtali við
ViðskiptaMoggann.
Giffin segir að þeir hjá Prendo
Simulations hafi áttað sig á því fyrir
allnokkru að hugbúnaður gæti hjálp-
að til við að gera vönduð hermilíkön,
einskonar tölvuleiki þar sem fólk
myndi læra stjórnun með leik og með
því að takast á við verkefnin. Slík
nálgun sé ekki fyrir hendi í stjórn-
endamenntun dagsins í dag. Hann
talar um aðferðina sem kennsluað-
ferð 21. aldarinnar. „Stjórnendur
dagsins í dag standa frammi fyrir
síauknu flækjustigi í sínum verk-
efnum. Sífellt flóknari sviðsmyndum,
þar sem fjöldi hagsmunaaðila kemur
að málum. Þeirra bíða sífellt erfiðari
ákvarðanatökur og upplýsingar eru
gjarnan ófullkomnar. Allt þetta
þurfa verkefnastjórar að glíma við í
raunveruleikanum, og við byggjum
það inn í leikina okkar. Við köllum
þetta hermi, en þetta er í raun
menntun með leik.“
Allir aðrir æfa sig
Giffin bendir á til útskýringar að í
leikhúsi séu haldnar æfingar fyrir
leiksýningar, flugmenn þjálfi færni
sína í hermum, og tónlistarmenn æfi
sig fyrir tónleika, svo dæmi séu tek-
in. „Til dæmis varð ekkert mann-
skætt flugslys á öllu árinu 2017 í
flugiðnaðinum í heiminum. Þetta er
vegna þess að þeir taka þjálfunina
mjög alvarlega. Þarna eru menn að
nota 50 milljóna dala flugherma.
Verkefnastjórar til samanburðar
fara á fimm daga námskeið og þylja
svo upp eitthvað utanbókar í prófi,
og verða svo vottaðir verkefna-
stjórar.“
Giffin segir að þarna sé hægt að
gera mun betur og spara fyrir-
tækjum þar með stórfé. „Það er í
raun óábyrgt hvernig fólk er að fá
próf í verkefnastjórn.“ Hann bætir
við að einnig mætti breyta menntun í
grunnskólum þannig að börnin
lærðu hluti sem nýttust þeim þegar
út í atvinnulífið verður komið. „Við
ættum að kenna þeim að leysa
vandamál, vinna saman í hópum, og
stuðla að skapandi hugsun og taka
ákvarðanir.“ Hann segir að í Banda-
ríkjunum sé verið að reyna slíkar
breytingar. „Svona hlutir eru nota-
drýgri en latína og jafnvel saga. Í
dag er hægt að finna upplýsingar um
alla hluti á netinu á nokkrum sek-
úndubrotum. Það er orðið meira um
vert að læra að gera hluti en kunna
hluti.“
Stjórnendamenntun eins í 500 ár
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Guy Giffin er framkvæmda-
stjóri Prendo Simulations
sem hefur þróað hermi-
líkön og þjálfunarbúnað til
að þjálfa fólk í að leiða flók-
in verkefni. Hann hélt nám-
skeið á vegum MPM-náms
Háskólans í Reykjavík.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Margir helstu viðskiptaháskólar í heimi nota búnaðinn, en verkefnastjórnunarnám er mjög vinsælt um allan heim.
Verkefnastjórarnir Edda Dröfn
Daníelsdóttir frá Landspítalanum
og Ólafur Magnús Birgisson,
sjálfstætt starfandi ráðgjafi í
alþjóðlegum vatnsaflsvirkjana-
verkefnum, voru ánægð með
námskeiðið, þrátt fyrir að yfirferð-
in hafi verið hröð, en verkefnið var
að byggja enskan fótboltaleik-
vang á einum degi.
„Maður gerir sér betur grein
fyrir því í svona verkefnahermun
hvað það getur farið að þrengja
mikið að þér eftir því sem lengra
inn í verkefnið er komið, bæði í
tíma og kostnaði,“ segir Ólafur.
„Við gerðum þau mistök t.d. að
halda ekki hagsmunaaðilum nógu
vel upplýstum, og það kom í bakið
á okkur í herminum þegar leið á
verkefnið,“ segir Edda.
Byggðu enskan fót-
boltavöll á einum degi